Dagur - 16.04.1984, Page 3
16. apríl 1984 - DAGUR -15
Derrick og Hany
- Þeir eru venjulega tveir
saman á vellinum, og það vita
allir hvað þeir eru að hugsa
þegar KA, félagið þeirra
stendur í eldlínunni. Þeir eru
ósparir á að láta álit sitt í Ijós
og hrósa þá bæði og finna að
þegar það á við. Hverjir eru
þetta?
Jú, þeir eru Árni Ingimundar-
son og Haukur Jakobsson, tveir
eldheitir KA-menn og hafa verið
í áratugi. Sumir kalla þá Derrick
og Harry vegna þess að þeir
þykja líkjast samnefndum leyni-
lögreglumönnum úr sjónvarpinu
en hvað um það.
Við spjölluðum við þá Árna og
Hauk, þessa brennandi heitu
áhugamenn. Það er ekki nóg með
að þeir mæti á alla leiki KA í
meistaraflokki, þeir fylgjast einn-
ig með yngri flokkunum og í vet-
ur hafa þeir haft nóg að gera á
sunnudagsmorgnum. Þeir hafa
byrjað á því „hita upp" með
kaffisopa í KA-herberginu og
síðan hafa þeir fylgst með æfing-
um í íþróttahöliinni. En hvað
segja þeir um þennan mikla
áhuga sinn og fleira almennt sem
varðar félagið þeirra?
Haukur er með
100% mætingu
á æfingar
„Blessaður vertu, ég fer a
hvern einasta leik, og ég er
óhress ef ég kemst ekki á allar
æfingar hjá KA líka, þeir segja
að ég sé með um 100% æfinga-
sókn,“ segir Haukur Jakobs-
son, fyrrum leikmaður KA og
„yfírstuðningsmaður“ félags-
ins í dag.
„Ég hef þetta venjulega þannig
að ég flýti mér heim úr vinnunni,
fer í bað og svo fer ég á æfingar
fram eftir kvöldinu. Ef KA er
ekki að æfa þá fer ég bara út á
Þórsvöll og fylgist með andstæð-
ingunum. Svo hef ég mjög gaman
af að fylgjast með þeim yngri
bæði á æfingum og í keppni. Eg
er búinn að gera þetta lengi og
hef fylgst með mörgum af þeim
strákum sem eru í meistaraflokki
síðan þeir voru smá „nubbar“.
Haukur var 16 ára gamall þeg-
ar hann hóf að leika með meist-
araflokki og það var komið haust
árið 1969 - 20 árum síðar - þegar
hann lagði skóna á hilluna.
„Ég rétt náði þeim í klof
sumum af þessum körlum sem ég
var að spila gegn, blessaður
vertu. Einu sinni varð ég svo
frægur að komast í landslið en
lék reyndar ekki landsleik.
Landsliðið lék þá við sovéska lið-
ið Dynamo Moskva og ég meidd-
ist þegar 20 mínútur voru eftir af
leiknum. Og hver heldur þú að
hafi verið varamaður fyrir mig?
Það var enginn annar en fjár-
málaráðherrann okkar hann Al-
bert Guðmundsson,“ - og nú er
Hauki skemmt.
En við plötum hann dálítið.
Árni Ingimundar gaf okkur
„comment“ um Hauk sem leik-
mann og Haukur segir um vin
sinn Árna: „Hann var helvíti
góður, laginn, útsjónarsamur og
mjög sterkur í skallaboltunum.
Annars var það svo með Árna að
hann var góður í öllu, það skipti
ekki máli hvort það var fótbolti,
handbolti, golf, skíði eða sund,
hann var svo fjölhæfur."
- Og hvernig leggst knatt-
spyrnusumarið 1984 í þig sem
KA-aðdáanda?
„Mer líst vel á þetta. Að vísu
eiga línurnar ennþá eftir að skýr-
ast og við eigum eftir að sjá
hvernig heildin kemur út hjá KA
en það sem ég hef séð á æfingum
fram að þessu lofar góðu.“
....bara að boltinn værí nú farínn að rúlla... Þeir voru mættir í stúkuna Árni og Haukur sl. fimmtudag, svona „til
að máta aðeins gömlu góðu sætin“. En þeir félagar verða að bíða eins og aðrir eftir því að snjóa leysi, því miður.
Mynd: KGA.
„KA þarf ekki að
kvíða framtíðmni‘
- segir hinn eldheiti KA-maðurÁrni Ingimundarson
„Það hefur því miður komið
fyrir að ég hef misst af leik
með KA undanfarin ár, en ef
það hefur verið þá hef ég ekki
verið í bænum,“ segir Árni
Ingimundarson, einn alharð-
asti stuðningsmaður KA af
mörgum hörðum. Árni sést
gjarnan á vellinum ásamt
Hauki Jakobssyni, öðrum gall-
hörðum KA-manni og þá vant-
ar ekki á völlinn nema eitthvað
sérstakt hafí komið upp á.
„Ég horfi líka mikið á yngri
flokkana,“ sagði Árni er við
ræddum við hann. „Ég hætti því
reyndar í nokkur ár einhverra
hluta vegna en tók aftur upp
þráðinn og hef fylgst með þeim
yngri í 2-3 ár og það er ekki síður
skemmtilegt en fara á leiki meist-
araflokks.
Það eru áberandi efni í yngri
flokkunum hjá KA í dag, efni á
efni ofan. KA þarf því ekki að
kvíða framtíðinni ef þessir piltar
halda áfram.“
- Þú komst talsvert við bolt-
ann sjálfur á þínum yngri árum?
„Já blessaður vertu. Ég var far-
inn að spila með meistaraflokki
þegar ég var sjálfur í 3. flokki og
ætli ég hafi ekki spilað með
meistaraflokki hátt í 20 ár. Ég
byrjaði sem senter en þvældist
síðan um og spilaði allar stöður
nema í markinu. Síðustu árin,
eða eftir að Tommi Steingríms
hætti þá fór ég í stöðuna hans í
vörninni.“
- Við ræddum við þá Árna og
Hauk sinn í hvoru lagi og báðum
þá að segja álit sitt hvor á öðrum
sem knattspyrnumanni. Árni
sagði um Hauk:
„Hann var mjög góður, alveg
sérstaklega en þó hafði hann sína
galla karlinn eins og aðrir. Hon-
um hætti til þess að vera dálítið
fastheldinn á boltann. Ég man
eina góða sögu um það. Það var
í leik á Húsavík og Haukur var
búinn að fara tvær ferðir um völl-
inn með tuðruna. Ekki voru allir
ánægðir með þetta og Baldur
Árnason kallaði í hann og sagði:
„Haukur, ef þú ætlar heim með
boltann þá er vegurinn þarna!!“-
og að sjálfsögðu benti Baldur í
áttina að þjóðveginum.“
99
Sami
kjarninn
hjá KA i sumar
- Kvennalið KA í fyrsta skipti í 1. deild
íí
„Ég sé ekki betur en að það
verði sami kjarninn í kvenna-
knattspyrnunni hjá KA og var
í fyrra,“ segir Hinrik Þórhalls-
son þjálfari. Hinrik hélt um
stjórnartaumana sl. sumar er
KA lék í 2. deild, en í sumar
bíður annað og erfíðara hlut-
skipti stúlknanna, það að leika
í Norður-Austurlandsriðli 1.
deildar. Við spurðum Hinrik
fyrst hvað honum þætti um
þessa nýju skiptingu á 1. deild-
inni, að láta leika í tveimur
riðlum.
„Mér leist ekki svo illa á þessa
hugmynd þegar ég sá hana fyrst.
En þegar maður fór að gera sér
betur grein fyrir þeim ókostum
sem fylgja þessari skiptingu
breyttist það álit fljótlega.
Þetta þýðir að lið eins og KA
fær ekki nema 6 leiki í íslands-
mótinu, tvo leiki gegn Þór og tvo
gegn Hetti og Súlunni. Og það
hljóta allir að sjá að þetta er allt
of lítið af leikjum. Það er geysi-
lega erfitt að halda uppi æfingum
frá því snemma á árinu og fram
á haust fyrir ekki fleiri verkefni.
Það koma að vísu inn í þetta mót
á Akureyri og Bikarkeppni en
þetta er allt of lítið.
Guðmundur Ingólfsson, Birgir Karlsson og
Guðmundur Steingrímsson spila dinnerjazz
fyrir matargesti Smiðjunnar alla páskahelgina,
frá og með skírdagskvöldi.
Einnig spilar Þorvaldur Hallgrímsson fyrir matargesti.
Opið á Bauta alla páskana
frá kl. 10-22 og í Smiðju í hádeginu og
á kvöldin nema í hádeginu á skírdag.
Það er kominn tími til þess að
mínu mati að breyta þeim hugs-
unarhætti að fjárhagsmál sunn-
anliðanna ráði alltaf ferðinni eins
og var með þessari ákvörðun.
Hún var eingöngu tekin til að lið-
in fyrir sunnan þyrftu ekki að
leggja út í ferðakostnað.“
- En hvað með KA-liðið í
sumar?
„Eins og ég sagði áðan þá er
um sama kjarnann að ræða. Að
vísu höfum við misst okkar mikla
markaskorara Sigrúnu Sævars-
dóttur en það kemur maður í
manns stað. Við höfum verið
með tvær æfingar inni í allan vet-
ur og byrjuðum nýlega að æfa úti
einnig. Að undanförnu hefur
bæst við fjöldi af nýjum stelpum
sem hafa komið á æfingar og
hvað fjöldann snertir þá þurfum
við engu að kvíða.“
- En hvað með möguleikana
á að vinna riðilinn og komast í
úrslitaleik við sigurvegarann fyrir
sunnan?
„Það er ekki gott að segja.
Ætli baráttan verði ekki við Þórs-
stelpumar og svo má alls ekki
afskrifa Hött. Ég held að þetta
geti orðið skemmtileg keppni,“
sagði Hinrik.