Dagur - 18.04.1984, Qupperneq 17
18. apríl 1984 - DAGÚR -17
Skíðalandsmótið í Hlíðarfjalli
Kl. 11.00 Svig kvenna seinni
ferö.
Kl. 11.30 Stórsvig karla seinni
ferð.
Kl. 11.00 Skíðaganga fl. 16-18
ára stúlkna 3,5 km.
Kl. 11.20 Skíðaganga fl. 19 ára
og eldri kvenna 5 km.
Kl. 12.00 Skíðaganga fl. 17-19
ára pilta 10 km.
Kl. 12.10 Skíðaganga fl. 20 ára
og eldri karla 15 km.
Föstud. 20. aprfl.
Kl. 11.00 Boðganga kvenna.
Kl. 12.00 Boðganga karla.
Laugard. 21. aprfl.
Kl. 9.00 Svig karla fyrri ferð.
Kl. 9.45 Stórsvig kvenna fyrri
ferð.
Kl. 11.00 Svigkarlaseinniferð.
Kl. 11.45 Stórsvig kvenna
seinni ferð.
Kl. 13.00 Skíðastökk.
Sunnud. 22. aprfl.
Kl. 10.00 Flokkasvig kvenna
fyrri ferð.
Kl. 10.30 Flokkasvig karla fyrri
ferð.
Kl. 11.00 Flokkasvig kvenna
seinni ferð.
Kl. 11.30 Flokkasvig karla
seinni ferð.
Skíðalandsmótið 1984 verður
sett með viðhöfn í íþróttahöll-
inni á Akureyri í kvöld og hefst
setningarathöfnin kl. 20.
Á þetta mót mætir allt besta
skíðafólk landsins og eru alls
26 gullverðlaun til reiðu fyrir
sigurvegara í hinum ýmsu
greinum. Nægur snjór er í
Hlíðarfjalli og allt tilbúið eftir
mikið undirbúningsstarf til
þess að mótið megi fara sem
best fram. Það verður því mik-
ið um að vera en dagskrá móts-
ins er sem hér segir:
Miðvikud. 18. aprfl.
Kl. 20.00 Mótssetning í Höll-
inni.
Fimmtud. 19. apríl.
Kl. 9.00 Svig kvenna fyrri ferð.
Kl. 9.30 Stórsvig karla fyrri
ferð.
Nanna Leifsdóttir verður í baráttunni á Skíðalandsmótinu í Hlíðarfjalli.
Tekjur félaganna í 1. deild frá ríkisfjölmiðlunum:
Þórsarar fengu
aðeins um 3%!
Tekjur liðanna í 1. deild ís-
landsmótsins í knattspymu á
síðasta sumri af útsendingum
útvarps og sjónvarps frá
leikjum liðanna eru fróðlegar
tölur ýmissa hluta vegna.
Alls námu þessar tekjur rúm-
lega 161 þúsund krónum og þar
af voru 105.400 krónur vegna
sjónvarpsútsendinga. En það
sem vekur mesta athygli er
hvernig þessar krónur skiptast á
milli félaganna. Af þeim tölum
má sjá að það er ekki sama hvar
á landinu félögin eru staðsett, og
ekki virðist heldur skipta máli
hvernig félögin standa sig í 1.
deildinni.
Tekjur Þórs sem var nær allt
mótið í fyrra í baráttu efstu liða
eru þannig ekki nema 4.400
krónur og eru þær til komnar
vegna tveggja útvarpslýsiriga.
Þær eru um 3% af heildarupp-
hæðinni sem félögin fengu. Ef við
lítum eingöngu á tekjur vegna
sjónvarpsútsendinga kemur fram
að þar fengu Þórsarar ekki eina
einustu krónu af þeim rúmlega
105 þúsund krónum sem félögin
fengu í sinn hlut!
Þetta segir ýmislegt. Félag eins
og Valur sem var í botnbaráttu
allt sumarið hafði í heildartekjur
21.650 krónur og þar af 15.050
vegna sjónvarps. Víkingar sem
einnig voru í botnbaráttunni
fengu enn meira eða rúmlega 27
þúsund og voru ríflega 18 þúsund
vegna sjónvarpsins. Lítum nánar
á skiptingu milli félaganna:
Á fundi forráðamanna 1.
deildarliðanna nk. keppnistíma-
bil sem haldinn var fyrir helgina
komu þessi mál m.a. til umræðu.
Stefán Gunnlaugsson formaður
knattspyrnudeildar KA lagði
fram þá tillögu að þessum tekjum
yrði jafnað á milli félaganna
þannig að allir fengju jafnt. Sú
tillaga hafði hvorki hljómgrunn
hjá forráðamönnum KSÍ né for-
svarsmönnum félaganna. Fulltrúi
Vals bar þá fram tillögu um að í
lok keppnistímabilsins yrði fénu
skipt þannig að þau lið sem yrðu
efst í 1. deildinni fengju meira en
hin þannig að peningunum yrði
jafnað út eftir því hvar liðin
hafna í lok mótsins. Sú tillaga
hafði heldur ekki hljómgrunn.
Það er því Ijóst að félögin á
Reykjavíkursvæðinu sem hafa
mestar tekjur að öllu óbreyttu
vegna útsendinga útvarps og
sjónvarps ætla sér að sitja áfram
að kökunni. Það verður því
áfram háð duttlungum íþrótta-
fréttamanna ríkisfjölmiðlanna
hvernig skipting verður í sumar.
Félag: Aiis: V/sjónvarps:
Akranes 32.937 23.900
Víkingur 27.075 18.275
ÍBV 24.337 15.300
Valur 21.650 15.050
KR 13.000 8.600
Breiðablik 11.925 7.525
ÍBK 9.875 7.075
ÍBÍ 8.650 6.450
Þróttur 7.625 3.225
Þór 4.400 0.000
161.474 105.400
„I stíl við annað“
~ segir formaður Knattspyrnudeildar Þórs
„Það er greinilegt að við verð-
um áfram að eiga það undir
Bjarna Felixsyni og öðrum
starfsmönnum ríkisfjölmiðl-
anna hvort við höfum yfir
höfuð einhverjar tekjur af lýs-
ingum Ieikja eins og önnur
félög,“ sagði Guðmundur Sig-
urbjömsson formaður knatt-
spyrnudeildar Þórs er við
ræddum við hann.
„Við buðum Bjarna norður á
sl. sumri þegar enn voru nokkrar
umferðir eftir af mótinu og hann
hafði það til athugunar að koma
norður en ekkert varð úr því.
Miðað við hvernig Þór stóð sig í
1. deildinni sl. sumar er það
furðulegt að liðið skyldi aðeins
sjást í 2-3 mínútur í sjónvarpi
landsmanna.
Þetta er eins og annað sem að
okkur snýr, og varla von á góðu
þegar ekki mátti ræða ferða-
kostnaðarmál landsbyggðarlið-
anna á ársþingi KSÍ á Húsavík í
vetur hvað þá meira. Þetta er
bara í stíl við annað,“ sagði Guð-
mundur.
Kl. 11.00 Skíðaganga fl. 20 ára
og eldri karla 30 km.
Kl. 11.10 Skíðaganga fl. 17-19
ára pilta 15 km
Kl. 11.20 Skíðaganga fl. 19 ára
og eldri kvenna 7,5
km.
Kl. 11.25 Skíðaganga fl. 16-18
ára stúlkna 5 km.
20.00 Mótsslit í Sjallanum.
Bikarkeppni KRA:
Þórsararnir
mæta Vaski
- í fyrsta leiknum
Fyrsti opinberi knattspyrnu-
leikurinn á Akureyri á þessu
ári verður háður á Sana-vellin-
um á mánudag kl. 16 og leika
þá Þór og Vaskur í Bikar-
keppni KRA.
Þrjú lið taka þátt f mótinu,
Þór, Vaskur og KA en þremur
öðrum liðum, Völsungi, Tinda-
stóli og KS var boðin þátttaka
sem ekki var þegin.
Áformað er að leikur Vasks og
KA fari fram á Sana-vellinum 1.
maí og Þór og KA leiki síðasta
leik mótsins á sama stað sunnu-
daginn 6. maí.
1-x-2 1-X-2
Gctraunasérfræðingarnir eiga frí um helgina vegna þess að engir get-
raunaseðlar fyrir páskalcikina cru í gangi. Þeim veitir sjálfsagt ekki
af hvfldinni því árangur þeirra í síðustu viku var slakur. Pálmi var
með 5 rétta, Tryggvi með 4, Eiríkur með 2 og Einar Pálmi sem enn
heldur forustunni var aðeins með einn leik réttan! - Staðan er nú
þannig að Einar er með 38, Tryggvi 35, Pálmi 34 og Eiríkur 26. Og
við fengum kappana til að tjá sig um gang mála og framtiðarhorfur í
keppni þeirra.
Tryggvi Gíslason, 35:
„Jú ég reyni að sjálfsögðu að sigra en það getur
orðið erfitt vegna þess að séra Pálmi hefur Guð
almáttugan með sér í baráttunni. - Annars vil ég
segja það að þátttaka mín í þessum leik og áhugi
á knattspyrnu hefur komið mörgum nemendum
mínum á óvart. Þeir vissu ekki að í steinhjarta
mínu leyndist þessi breyskleiki að hafa áhuga
fyrir knattspyrnu, en þann áhuga hef ég haft frá
því ég var barn.“
Pálmi Matthíasson, 34:
„Ég vil byrja á því að tilkynna það að Watford
vinnur Bikarkeppnina og við Elton John munum
hrósa sigri yfir Everton í úrslitaleiknum. Hvað
þessa keppni í Degi varðar vil ég aðeins segja
það að markmið mitt í íþróttum hefur alltaf ver-
ið að taka þátt en ekki að sigra og svo er með
þessa keppni. Varðandi það að Guð standi með
tnei vu i-a eini'"t'is segja að Guð fer ekki í
manngreinaráln >g fyrir honum eru allir
menn jafnir."
Einar Pálmi Árnuson, 38:
„Þetta hefur verið misgott hjá mér til þessa, allt
frá einum til átta. Ég held að ég hafi of mikið vit
á ensku knattspyrnunni því ef óvænt úrslit verða
eins og síðast þá fer illa fyrir mér. Það er gaman
að presturinn og skólameistarinn eru farnir að
sýna eitthvað af viti, en blaðamaðurinn ESE er
að mínu viti algjört „súkkulaði" í þessum get-
raunaleik.
Eiríkur S. Eíríksson, 26:
„Það er margsannað mál að þeim sem hafa mik-
ið vit á ensku knattspyrnunni gengur illa í get-
raununum og það sannast áþreifanlega á mér.
Það breytir því ekki að ég hef fundið upp nýtt
kerfi sem ég ætla að nota eftir páskana og það
kerfi er svo pottþétt að það mun færa mér sigur.
En mikið var ég ánægður með að Einar Pálmi
skyldi bara hafa einn réttan síðast, það breytir
öllu.“
l-x-2 1-X-2