Dagur - 25.04.1984, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 25. apríl 1984
Fórstu oft á skíði
um páskana?
Pétur Sigursveinsson:
Nei, ég fer ekki á skíði
Gunnar Ármannsson:
Aldrei, ég nennti því ekki.
Ingveldur Sveinsdóttir:
Ég fór ekkert á skíði - ég á
ekki skíði og það er svo dýrt
að leigja þau.
Sveinn Guðfínnsson:
Nei, ég læt allt slíkt eiga sig.
„Eg er Nútímamaður“
- Kolbeinn Gíslason umboðsmaður NT á Akureyri í viðtali Dags-ins
NT leit fyrst dagsins Ijós í gær
og hefur vart farið framhjá
mörgum. Umboðsmaður NT
á Akureyri er Kolbeinn nokk-
ur Gíslason, og ekki nóg með
að hann sjái um dreifingu
blaðsins hér fyrir norðan, hann
er einnig blaðamaður NT á
Akureyri. Kolbeinn er tvítugur
Akureyringur, reyndar inn-
fluttur frá Garðabæ, eins og
hann segir sjálfur. „Við flutt-
um hingað þcgar ég var tólf
ára, en reyndar hafði ég verið
hér á hverju einasta sumri í
mörg ár áður.“ Hann er sonur
Gísla Jónssonar framkvæmda-
stjóra FA og Þórunnar Kol-
beinsdóttur röntgentæknis.
Dagur átti stutt spjall við Kol-
bein í gær, þcgar hann gat gef-
ið sér tíma, en það fór ekki
milli mála að hann hafði mikið
að gera.
„Jú, það hefur verið alveg of-
boðslega mikið að gera í dag, ég
er búinn að vera á þönum út um
allan bæ. Ég hef ekki orðið var
við annað en að viðtökur fólks
við blaðinu séu mjög góðar - enn
sem komið er allavega þó reynsl-
an sé ekki orðin mikil. En ég á
ekki von á öðru en góðum við-
tökum.“
- Nú ert þú umboðsmaður
jafnt sem blaðamaður, er þetta
ekki mikið starf?
„Jú. Mest á meðan verið er að
koma blaðinu upp og kynna það
hér í bænum - þetta þróast senni-
lega eitthvað þegar frá líður. NT
er lifandi blað og allt sem því við-
kemur verður reynt að hafa sem
mest lifandi. Til dæmist verður
blaðburðarbörnunum gefinn
kostur á að vinna sér inn happ-
drættismiða sem dregið verður úr
þegar líður á sumarið. Vinning-
urinn er ferð til Stuttgart þar sem
degi verður eytt með Ásgeiri Sig-
urvinssyni og síðan farið á knatt-
spyrnuleik með liði hans. Svo er
ætlunin að koma á fót hér á Ak-
ureyri knattspyrnuliði NT. Nú,
við leggjum mikið upp úr lausa-
sölu og strax um hádegi verða
blaðburðarbörn með blaðið til
sölu í göngugötunni."
- Megum við eiga von á að í
NT verði mikið af fréttum hér að
norðan?
„Já, já, við reynum að halda
okkur við efnið. Og að öllum lík-
indum mun fljótlega verða gefið
út sérstakt Ákureyrarblað. Og
það er alltaf eitthvað fréttnæmt
að koma upp á hér fyrir norðan.
Að minnsta kosti tekst alltaf að
fylla þessi tvö blöð sem hér eru
gefin út - þótt með misjöfnum ár-
angri sé, og það á sérstaklega við
um annað blaðið. En ef fólk lúrir
á fréttum ætti það endilega að
hringja í mig, ég er alltaf við í
síma 22537.“
- Hefur þú eitthvað komið
nálægt blaðaútgáfu áður?
„Ég var ljósmyndari íslendings
í tvö ár og var líka með puttana í
dreifingunni. NT er að vísu tölu-
vert frábrugðið íslendingi að
flestu leyti, en ég reikna með að
ég komist þokkalega frá þessu.“
- Við hvað fæst þú þegar þú
gefur þér frí frá NT? ,
„Tónlist, tónlist, tónlist. Nei,
ég hef nú ekki mikið afrekað á
því sviði, þó hef ég spilað með
hljómsveitinni 'kl í nokkur ár og
gert dálítið af því að leigja út
kvikmyndir í Video Akureyri.
En NT er alltaf númer eitt.“
- Pykja þér íslensk dagblöð
gegna sínu hlutverki nógu vel?
„Pað er misjafnt. Þau fjalla
misjafnlega um málin, en ég held
að yfirleitt taki þau rétt á málum
gagnvart lesendum. Þau fjalla um
það sem fólk vill lesa. En NT
verður í sérflokki hvað varðar
góða umfjöllun. Og ég vil leyfa
mér að vitna í NT í dag: „Það fer
ekki milli mála, að með útgáfu
þessa tölublaðs hefur átt sér stað
bylting í íslenskum blaðaheimi.
Á markaðinn er komið blað sem
er sérhannað fyrir þarfir nútíma-
mannsins á þessum níunda ára-
tug 20. aldarinnar, áratugi hraða,
tækni og snerpu“.“
- Ert þú nútímamaður?
„Já, ég er Nútímamaður.
- KGA.
Engin hætta þegar vél-
sleðamenn eru áferðinni
G. Jónsdóttir hringdi.
Ég á ekki til orð yfir þeim látum
fjölmiðla sem hafa verið vegna
ferðar vélsleðamanna upp á há-
lendið á dögunum.
Ég tel mig þekkja nokkuð vel
til, og ég veit að það er engin
hætta á ferðum þegar þessir vél-
sleðamenn eru á ferðinni, og
skiptir þá ekki máli þótt óveður
sé. Þeir eru svo vel útbúnir að
veður gerir þeim ekkert, þeú eru
allir með útbúnað til að halda sér
heitum þótt þeir verði að grafa
sig í snjó.
Einu mistökin sem gerð voru,
áttu sér stað er nokkrir mann-
anna ákváðu að halda áfram för
í blindbyl og skafrenningi og
reyndar varð það einhverjum
þeirra að falli. En að vera að
blása þetta upp sem einhvern
glannaskap er ekki hægt að
hlusta á. Þessir menn eru örugg-
ari í óveðri á fjöllum en ég og þú
í umferðinni í miðbænum.
Og svo tekur framkvæmda-
stjóri Slysavarnafélags íslands
undir þessa gagnrýni fjölmiðla.
Mér finnst að það hefði staðið
honum nær að taka annan pól í
hæðina. Hann ætti að vita að
margir þessara manna eru þjálf-
aðir til að vera á ferð í óveðri
þegar leita þarf týndra manna, og
ætli sumir þeirra hafi ekki átt gott
samstarf við Slysavarnafélagið
einhvern tíma?