Dagur - 14.05.1984, Blaðsíða 6
6-DAGUR-14. maí 1984
14. maí 1984-DAGUR-7
Dagur kynnir lið Þórs og
í 1. deild í knattspyrnu
„Ég held að þetta
verði toppár
hjá Þór“
— segir Guðmundur Sigurbjörnsson,
formaður knattspyrnudeildar félagsins
„Ég ætla að vera hógvær varð-
andi gengi Þórs í 1. deildinni í
sumar, en samt sem áður spái
ég því að liðið muni hafna í 1.-
3. sæti,“ segir Guðmundur
Sigurbjörnsson formaður
knattspyrnudeildar Þórs.
Þórsliðið leikur nú í 1. deild
annað árið í röð og liðið vakti
mikla athygli í 1. deildinni í
fyrra. Þá var Þór nánast óskrifað
blað í upphafi mótsins, en svo fór
að liðið var í toppbaráttu og litlu
munaði að liðið krækti sér í 2.
sætið og þar með rétt til að leika
„Ég held að þetta verði toppár
hjá Þór,“ segir Guðmundur Sig-
urbjörnsson. „Það byggi ég á ár-
angrinum í fyrra og því að þá
fengu strákarnir bæði reynslu og
sjálfstraust sem þeir höfðu ekki
áður og ég held að Þór eigi eftir
að gera góða hluti í sumar.
- Hvað kostar 'rekstur knatt-
spyrnudeildarinnar á þessu ári?.
Þorsteinn Ólafsson þjálfari.
„Rekstrarkostnaður verður
sjálfsagt hátt í 3 milljónir króna
og þá reikna ég með að ferða-
kostnaður verði um 60% af þeirri
upphæð. Við höfum verið að
burðast með skuldahala á eftir
okkur, en tókst í fyrra að vera
réttum megin við núllið og
kroppa aðeins í þennan óvinsæla
hala“.
- Hvað um fyrsta leik Þórs
sem verður gegn KA um næstu
helgi?.
Amar Guðlaugsson aðstoðarþjálf-
ari.
„Okkur hefur gengið illa með
KA í síðustu leikjum liðanna en
það eru hreinar línur að nú ætl-
um við okkur sigur gegn þeim
því við erum tvímælalaust með
betra lið en KA.“
- Hvað um nýju regluna að
gefa 3 stig fyrir sigur?
„Ég er sáttur við hana, enda
held ég að hún verði til þess að
meiri áhersla verði lögð á sókn-
ina en áður og leikurinn verði
skemmtilegri á að horfa“.
Halldór Askelsson.
í UEFA-keppninni.
Síðan þá hafa litlar breytingar
átt sér stað hjá liðinu. Þeir Helgi
Bentsson og Sigurjón Rannvers-
son eru farnir, en í þeirra stað
hafa komið markvörðurinn Páll
Guðlaugsson sem leikið hefur
með færeyska liðinu Götu undan-
farin ár, Óli Þór Magnússon frá
Keflavík og Kristján Kristjáns-
son sem Iék með Völsungi á síð-
asta keppnistímabili.
Guðmundur Sjgurbjörnsson.
Við plötuðum Guðmund til þess að spá fyrir okkur um röð liðanna (
1. deild í mótslok, og að sjálfsögðu er þetta meira til gamans gert en
að hægt sé að ætlast til þess að menn geti spáð á þessum árstíma
með einhverri vissu. En spá Guðmundar er svona:
1. Þór
2. Valur
3. Fram
4. Akranes
5. Breiðablik
6. Þróttur
7. ÍBK
8. KA
9. KR
10. Víkingur.
Spá Stefáns
Stefán Gunnlaugsson vildi skipta liðunum í 1. deild í tvo hluta
og hann var ófáanlegur til þess að setja KA í annan hvorn
hlutann.
Stefán spáir því að Akranes, Fram, Valur, Breiðablik og Þór
verði í efri hlutanum en KR, Þróttur, Víkingurog Keflavík í þeim
neðri. Og sem fyrr sagði vildi hann engu spá um gengi KA í
sumar.
Magnús Helgason.
Birkir Kristinsson.
Bjarni Jónsson.
Stefán Ólafsson.
Tómas L. Vilbergsson.
Þórarinn Jóhanncs-
son.
Páli Guðlaugsson.
Júlíus Tryggvason.
Sigurbjörn Viðars-
son.
Jóhannes Ófeigsson.
Egill Áskelsson.
Þorvaldur Örlygsson.
Friðfinnur Hermannsson. Bergþór Asgrímsson.
Kristján Kristjáns-
son.
Bjarni Jóhannsson.
Þórarinn Þórhallsson.
Gústaf Baldvinsson þjálfari.
spyrnudeildar KA er mikill og ég
myndi ætla að hann yrði 2-2,5
milljónir. Við eigum hins vegar
fjölmennan hóp stuðningsmanna
sem eru tilbúnir til þess að leggja
ýmislegt á sig þannig að hægt
verði að ná endum saman þannig
að ég er ekki svartsýnn."
- Hvað um leikinn gegn Þór á
sunnudag?
„Við höfum ekki tapað fyrir
Þór síðan 1982 og ég hef ekki
áhuga á því að við förum að
Steinþór Þórarinsson aðstoðarþjálfari.
breyta til með það. Leikurinn
verður að öllum líkindum á gras-
velli Þórs, og ég geri mér grein
fyrir því að þetta verður erfiður
leikur.“
- Hvað segir þú um 3-stiga
regluna sem verður viðhöfð í
mótinu?
„Ég er fylgjandi henni, því ég
hef trú á að hún stuðli að
skemmtilegri sóknarknattspyrnu,
og það eru jú mörk sem fólkið
vill sjá, ekki satt?“
Njáll Eiðsson. Mark Duffield.
Stefán Gunnlaugsson.
Þorvaldur Jónsson.
Erlingur Kristjánsson.
Ormar Örlygsson.
Ásbjöm Bjömsson.
Hafþór Kolbeinsson.
Hinrik Þórhallsson.
Steingrimur Birgisson.
Óli Þór Magnússon.
„Skemmtilegt
knattspyrnu-
sumar «
„Ég er viss um að þetta verður
skemmtilegt knattspyrnusum-
ar og bæði Akureyrarliðin
muni standa sig vel. Ég byggi
þetta á því að liðin hafa aldrei
haft betri aðstöðu til æfinga en
nú, það var byrjað snemma að
æfa og bæði liðin hafa mikinn
og góðan mannskap“.
KA og Fram eru nýliðar í 1.
deild í sumar, en þessi lið urðu
í 2 efstu sætunum sl. keppnis-
tímabil. KA átti þá gott sumar og
sérstaklega vakti góður árangur
liðsins á útivelli athygli.
Miklar mannabreytingar hafa
átt sér stað hjá KA síðan á síð-
asta keppnistímabili. Svo ein-
hverjir séu nefndir eru þeir farnir
Gunnar Gíslason, Jóhann
Jakobsson, Haraldur Haraldsson
og Guðjón Guðjónsson en í
þeirra stað eru komnir snjallir
leikmenn eins og Hafþór Kol-
beinsson, Njáll Eiðsson, Mark
Duffield, Bjarni Jóhannsson,
Birkir Kristinsson og þjálfarinn
Gústaf Baldvinsson sem mun
leika með liðinu, en hann hefur
reyndar átt í slæmum meiðslum
að undanförnu.
„Ef við verðum ekki fyrir
óhöppum varðandi meiðsli
leikmanna og að þeir lendi mikið
í keppnisbönnum vonast ég eftir
góðum árangri,“ sagði Stefán
Gunnlaugsson. „Við erum hins
vegar með mjög ungt lið, meðal-
aldur rétt yfir 20 ár og við
erum með yngsta þjálfarann sem
hefur þjálfað í 1. deild. Ég geri
mér góðar vonir varðandi þessa
ungu menn í sumar.“
- Hvað um fjármálin?
„Rekstarkostnaður knatt-
Jónas Rúbertsson.
Bjami Sveinbjörns- Nói Bjömsson.
son.
Sigurður Pálsson.
Óskar Gunnarsson.
Guðjón Guðmunds-
son.
Einar Áskclsson.
Aðalbjom
sigraði
Einn af unglingum Golfklúbbs Akureyrar
varð sigurvegari í „flaggakeppninni" sem háð
var hjá klúhbnum um b.elgina.
Þá léku menn mcð fullri forgjöf og var tak-
markið að komast scm lengst. Aöalbjöm
komst alla leið á 211. holu og sló þar 2 högg. í
öðru sæti varð Italdvin Ólafsson „getrauna-
konungur" scm luuk við 19. holuna (!) og í
þriðja sæti hafnaði Þórhallur Pálsson scm
endaði incð sinu kúlu 5 cm frá 19. holunni.
Næsta mót hjá GA er uin'næstu hclgi, kl.
10 á laugardug og er það „snærisleikur“.
Kári krækti
í silfrið
Hinrik með
tvö mörk
Kári Elíson kraftlyftingamaður
úr KA varð annar í sínum
þyngdarflokki á Evrópumeist-
aramótinu í kraftlyftingum
sem fram fór í Fredrikstad í
Noregi um helgina. Kári lyfti
samtals 622.5 kg og var því
aðeins 20 kg frá Evrópumeist-
aratitli.
Það var breska „minitröllið“
Eddie Pengele sem sigraði í 67.5
kg flokknum. Pengele lyfti 250 kg
í hnébeygju, 142.5 í bekkpressu
og 250 kg í réttstöðulyftu.
Kári lyfti 220 kg í hnébeygju,
en í þeirri grein gengur hann ekki
heill til skógar vegna meiðsla sem
hann varð fyrir á heimsmeistara-
mótinu sl. haust. Kári lyfti svo
152.5 kg í bekkpressu og undir-
strikaði að hann er líklega besti
bekkpressumaður í Evrópu í dag
í sínum flokki. í síðustu grein-
inni, réttstöðulyftu fór Kári upp
með 250 kg og átti mjög góða til-
raun við 255 kg. Sú lyfta var
dæmd ógild eftir að „kötturinn“
var kominn með hana upp.
Pengele sigraði því með 642.5
kg - á best yfir 700 kg. Kári varð
því annar og Keys þriðji með
617.5 kg. Á þessum úrslitum er
ljóst að ef allt hefði gengið 100%
upp hjá Kára þá hefði hann átt
mjög góða möguleika f Pengele
að þessu sinni.-ESE.
KA sigraði Tindastól frá Sauð-
árkróki í æfíngaleik liðanna
sem Ieikinn var á KA-velli sl.
fimmtudagskvöld með fjórum
mörkum gegn einu.
Tindastóll náði forustunni í
fyrri hálfleik með marki Sigur-
finns Sigurjónssonar, en Stein-
grímur Birgisson jafnaði metin
og staðan í hálfleik var 1:1.
Lengi framan af síðari hálfleik
var staðan óbreytt, eða allt til
þess að Hinrik Þórhallsson fann
leiðina í mark Tindastóls og skor-
aði tvívegis á sömu mfnútunni.
Mark Duffield átti svo síðasta
orðið og skoraði fjórða mark KA
rétt fyrir leikslok.
RUSLATUNNUR
Til notkunar innandyra í fyrirtækjum,
viourkenndar af eldvamareftirliti.
Vélsmiðjan ODDI h.f. kynnir
nú nýja gerð af ruslatunnum
til notkunar innandyra í
fyrirtækjum og stofnunum.
Tunnurnar eru framleiddar úr
galvanhúðuðum stálplötum í
2 stærðum passandi fyrir
staðlaða ruslapoka.
Tunnurnar eru með loftþéttu
loki og slökknar því eldur
sem kann.að leynast í tunn-
unni þegar henni er lokað.
í reglugerð um brunavarnir og brunamál eru eftirfarandi ákvæðl:
Ekki má geyma umbúðir, efnisafganga eða annað rusl á lóðum eða inni í húsum þannlg að eldhætta
geti stafað af. Allt slíkt skal flytja burt daglega, eða geyma (lokuðum ílátum úr járnl.
Höfum á lager eftirfarandi stærðir:
200 Itr. tunnur þvermál 570mm hæð 850mm
80 Itr. tunnur þvermál 410mm hæð 600mm
VELSMIÐJAN 0DDI HF
■ Akureyri, sími 96-21244