Dagur - 16.05.1984, Page 3
16. maí 1984 - DAGUR -15
„Getur verið að við
komum á óvart í sumar“
- segir Kristján Einarsson í 3. flokki
„Þetta verður erfitt hjá okkur í
sumar, við erum nær allir á
fyrra ári í 3. flokki, en það get-
ur þó verið að við komum á
óvart,“ sagði Kristján Einars-
son í 3. flokki er við fengum
stutt spjall við hann á æfingu
hjá flokknum á KA-velli sl.
fimmtudag.
„Okkur gekk vel í fyrra, unn-
um Þórsarana t.d. með 18:1
samtals í leikjum sumarsins en
okkur tókst ekki að komast í úr-
slit í íslandsmótinu vegna þess að
við töpuðum fyrir Tindastóli."
- Kristján sagði að það væru
rúmlega 20 strákar sem æfðu með
3. flokki, en þjálfari er Tómas
Lárus Vilbergsson. Hann sagði
að KA gerði vel við þá strákana
á allan hátt, það eina sem sér
þætti athugunarvert væri hvort
þeir gætu ekki fengið að æfa
meira á grasi yfir sumarmánuð-
ina.
Strákarnir í 3. flokki ásamt þjálfara sínum.
Erlingur Kristjánsson.
55
Það verður mikil
pressa á okkur“
- segir Erlingur Kristjánsson, einn
leikreyndasti maður KA-liðsins
„Ég tel að KA-Iiðið sé tví-
mælalaust sterkara en það var
í fyrra, að vísu er liðið ekki
með jafn reynda leikmenn og
þá en ég held samt sem áður að
við getum verið nokkuð bjart-
sýnir svona í upphafi keppnis-
tímabilsins.“
- Þetta sagði Erlingur Krist-
jánsson er við ræddum við hann
um íslandsmótið sem er fram-
undan. Erlingur hóf að leika með
meistaraflokki 1980, hafði að
vísu verið varamaður árið áður,
og má því segja að hann sé að
hefja sitt 5. keppnistímabil í
meistaraflokki. Aðeins einn leik-
maður liðsins hefur verið lengur
með, en það er Ásbjörn Björns-
son sem hefur verið einu ári
lengur.
„Undirbúningur KA-liðsins
hefur aldrei verið betri síðan ég
kom inn í þetta,“ sagði Erlingur.
„Menn verða hins vegar að gæta
að því að KA teflir nú fram nýju
liði og það verður mikil pressa á
okkur. Ég tel að ef okkur gengur
vel í byrjun sé full ástæða til
bjartsýni, en vegna þess að
mannskapurinn þekkist hugsan-
lega ekki nógu vel getur þetta
orðið erfitt ef við mætum mótlæti
í byrjun.
Okkur hefur gengið vel í æf-
ingaleikjum, unnið Þór og Þrótt
og gert jafntefli við KR og Þrótt.
Það er að vísu ekki 100% að
marka þessa æfingaleiki en ég tel
að við getum hiklaust sett okkur
það markmið að verða ekki neð-
ar en í 4. sæti.“
- Hvað um leikinn gegn Þór á
sunnudag?
„Það er nú alltaf frekar leiðin-
legt að spila gegn Þór. Ætli þetta
verði ekki eins og aðrir leikir
þessara liða, leikið af hörku og
þetta getur sjálfsagt farið á hvorn
veginn sem er. En það er víst að
við munum selja okkur dýrt,“
sagði Erlingur.
Heimsfrægu bfltækin frá
Pioneer færðu hjá okknr
T.d. KP-3230
KE-5230
Sjálfleitari á útvarpi.
18 stöðva minni.
Electroniskt útvarp.
„Loudness“.
Upplýstir rofar.
Sjálfvirk endurspilun
Yerð kr. 14.840,-
Margar gerðir af hátölurum
T.d. TS-1690
90 Music vv
Ath. Hjá okkur eru öll tæki og
hátalarar uppsett og hægt að hlusta á
mismun á milli tækja og hátalara.
Sunnuhlíð 12, simi 25004