Dagur - 16.05.1984, Side 4
„Báðum um jarðarbolta
svo við gætum skallað“
- Rætt við Ragnar Sigtryggsson, fyrsta landsliðsmann Akureyrar í knattspyrnu
Árið 1957 klæddist Akureyr-
ingur í fyrsta skipti búningi
íslenska landsliðsins í knatt-
spyrnu og lék gegn Belgum í
Reykjavík. Þessi leikur var
liður í forkeppni HM og lauk
með 5:2 sigri Belganna eftir
að ísland hafði komist í 2:0.
Þessi Akureyringur sem um
ræðir er Ragnar Sigtryggs-
son, eða „Gógó“ eins og
hann mun jafnan hafa verið
kallaður af félögum sínum á
knattspy rnu vellinum.
„Ég lék þarna með körlum
eins og þeim Þórði Þórðarsyni,
Þórði Jónssyni og Ríkharði
Jónssyni frá Akranesi en ég
man ekki að öllu leyti hvernig
liðið var skipað. Ég var orðinn
32ja ára þegar þetta var og var
elsti maður liðsins.
Ég hafði æft með landsliðinu
10 árum áður án þess að fá leik
þá og var að segja við þá þarna
fyrir sunnan að ef ég hefði átt
heima í Reykjavík hefði ég
sennilega verið búinn að fá
landsleik fyrr en þetta. Það var
að sjálfsögðu áfangi að fá að
leika landsleik, en þessi leikur
er mér að öðru leyti ekkert sér-
staklega minnisstæður, margir
leikir hérna heima gegn Þór eru
ofar í minningunni.“
Ragnar lék í öllum flokkum
KA og var 15 ára þegar hann
lék fyrst í meistaraflokki, en
jafnan lék hann sem hægri inn-
herji eins og það hét þá. „Ann-
ars lék ég flestar stöður ein-
hvern tíma nema í markinu, ég
var of stuttur til þess að hægt
væri að nota mig þar.“
- Er eitthvað sem er öðru
RAÐHUSIBUÐ
3ja herb.
raðhúsíbúð
með bílskúr.
Vniur- A;j& M /Dö
íbúðin selst fokheld og fragengin að utan.
tu r-hh á M/UOC-
Afhendist
sumarið ’85
Verð 1. apríl ’84 ca. 1.225.000.
■ ■ ■■
■■ !■ byggir sf.
Sigurður- Heimir.
Uppl. gefa:
Sig. Sig. í síma 24719,
Heimir í síma 23956
og Stefán í síma 21717.
fremur minnisstætt frá um 20
ára ferli í meistaraflokki?
„Nei, ekkert sérstakt, ekki
nema að vera í góðra vina hópi,
þetta voru allt öndvegispiltar
sem maður kynntist hvort sem
þeir voru úr KA eða Þór. Það
var oft hart barist gegn Þórsur-
unum en það jafnaðist allt eftir
að leikjunum lauk.“
- Hvað um þennan vinsæla
samanburð á knattspyrnunni
þá og nú?
„Allar aðstæður í dag eru
auðvitað margfalt betri en áður
var, og það eru margir góðir
einstaklingar í dag. Annars
finnst mér vanta meiri tækni
núna en harkan er þeim mun
meiri. Og ég held að leikgleðin
hafi verið meiri og það gerðist
margt skemmtilegt."
- Áttu ekki eina góða sögu
handa okkur?
„Ég veit það ekki. Jú, einu
sinni vorum við saman í fram-
línunni ég og Hermann bróðir
minn ásamt fleirum og Her-
mann var stærstur af okkur þótt
hann hafi nú aldrei verið hár í
Ioftinu frekar en ég. Við vorum
eitthvað að kvarta yfir því að
boltarnir sem við fengum fram
til þess að vinna úr væru of háir
og báðum þá að senda frekar
jarðarbolta fram svo við gætum
skallað þá. Það var oft mikill
léttleiki í þessu og bar lítið á
þunglyndi hjá mönnurn."
Ragnar „Gógó“ Sigtryggsson.
Brunabótafélag Islands
Allar tryggingar
BT-húsinu Glerárgötu 24
Símar 23812 - 23445