Dagur - 21.05.1984, Síða 6
6 - DAGUR - 21. maí 1984
Nói Bjömsson.
Nói fékk
rautt spjald
Þetta var strangur dómur,“ sagði Nói
Björnsson fyrirliði Þórs er hann gekk
af leikvelli í lciknum gegn KA í gær er
hinn spjaldaglaði dómari, Friðgeir
Hallgrímsson hafði sýnt honum rauða
spjaldið. Nói á því leikbann yfir höfði
sér.
„Hann braut á andstæðingnum liggj-
andi og það var ekkert annað fyrir mig
að gera en sýna rauða spjaldið,“ sagði
dómarinn eftir leikinn. „Að vísu braut
andstæðingur hans á honum og hann
fékk reyndar gult spjald fyrir það.“
„Þetta var samstuð og eðlileg við-
brögð að maður reyni að bera hönd
fyrir höfuð sér,“ sagði Nói Björnsson
fyrirliði Þórs, hress með sigurinn en sá
sigur var að vísu dýrkeyptur fyrir hann.
Alfreð
tognaði
Alfreð Gíslason og félagar hans í þýska
liðinu Essen voru um helgina slegnir út
úr bikarkeppninni þar í landi er þeir
töpuðu fyrir Berlín 16:22 á útivelli.
Alfreð byrjaði vel í leiknum og hafði
skorað tvö mörk er hann meiddist
(tognun) og var ekki með eftir það.
Völsungur
■ X.■
sigraoi
Svavar Geirtinnsson, kornungur piltur
sem er að leika sína fyrstu leiki með
m.fl. Völsungs á Húsavík, tryggði lið-
inu sigur gegn UMFN í leik liðanna á
Húsavík um hclgina.
Hann skoraði mark sitt á 8. mínútu
með mjög góðu skoti utan vítateigs og
þrátt fyrir marktækifæri á báða bóga i
leik sem einkenndist af slökum vallar-
og veðurskilyrðum urðu mörkin ekki
fleiri. Góð byrjun hjá VöIsungi.H.J.
Tindastoll
tapaði
Tindastóll tapaöi illa í sínum fyrsta leik
í 2. deild, en liðið mætti FH í Hafnar-
firði í gær. Úrslitin 6:1 fyrir FH sem
talið er líklegt til afreka í deildinni í
sumar.
Önnur úrslit urðu þau að ísfírðingar
unnu 3:2 sigur í Borgarncsi gegn
UMFS, ÍBV og Víðir gerðu jafntefli í
Eyjum og Völsungur vann UMFN eins
og fram kemur í annarri grein hér á síð-
unni.
Olympiuleikarnir í Los Angeles
Haraldur á
verðlauna-
pallinn?
Ef svo fer sem horfir að A.-
Evrópuríkin með Sovétríkin í
broddi fylkingar hætti við þátt-
töku á Olympíuleikunum í Los
Angeles, gæti farið svo að ís-
lendingur kæmist á verð-
launapall í lyftingakeppni leik-
anna.
Sá sem hér um ræðir er enginn
annar en Haraldur Ólafsson, lyft-
ingamaður úr Þór en Haraldur á
best 300 kg í samanlögðu í 75 kg
flokki. Alþjóðalágmarkið í þess-
um flokki er 295 kg en Haraldur
hefur að undanförnu sýnt og
sannað að hann ætti að geta lyft
310 til 315 kg þegar hann verður
■á toppi - um líkt leyti og Olymp-
íuleikarnir fara fram.
Á Evrópumeistaramótinu á
dögunum atti Haraldur kappi við
14 lyftingamenn ogþar af voru 12
frá Austurblokkinni. Fáir aðrir
koma til greina í verðlaunasæti
þannig að ef A.-Evrópuþjóðirnar
mæta ekki þá ætti Haraldur að
eiga góða möguleika á brons-
verðlaunum.
Gallinn er bara sá að ekki er
búið að velja Harald til keppni á
leikunum en fullvíst má þó telja
að hann verði einn þeirra fjög-
urra sem bætast við Ólympíuhóp
íslands. - ESE.
Snjór á
Sigló
-og ekkert varð úr leik KS og
Einherja í 2. deildinni
„Því miður, hér er um 10 cm
jafnfallinn snjór á vellinum og
enginn leikur í dag,“ sagði
Karl Pálsson formaður Knatt-
spyrnufélags Siglufjarðar er
við ræddum við hann í gær.
Siglfirðingar áttu að taka á
móti Einherja frá Vopnafirði í
gær, en á laugardagskvöld var
ljóst að ekki gat orðið af þeim
leik vegna þess að þá hafði snjó-
að á Siglufirði. Er þetta ekki í
fyrsta skipti sem Siglfirðingar
verða fyrir barðinu á veðurguð-
unum í upphafi íslandsmóts í
knattspyrnu.
Annars var Karl bjartsýnn á
sumarið. - „Strákarnir tveir sem
við fengum frá Leeds, þeir Darr-
en og Colin eru komnir hingað og
byrjaðir að æfa með okkur,“
sagði Karl. „Mér líst mjög vel á
þá, þeir eru geysisterkir miðvall-
arspilarar en mega því miður
ekki leika með okkur fyrr en í 7.
umferð. Þá er Björn Ingimundar-
son kominn heim, hættur við að
leika með FH og þar fáum við
sterkan mann en hann má því
miður ekki leika með fyrr en í 5.
umferð. Við förum hægt í sakirn-
ar í fyrstu umferðunúm en þegar
þessir leikmenn verða komnir á
fulla ferð verðum við tilbúnir í
hvað sem er,“ sagði Karl.
Kristján Kristjánsson hefur skotið og boltinn siglir í mark KA þrátt fyrir vama
■
Þórsarar
Það voru Þórsarar sem hrós-
uðu sigri eftir leik sinn gegn
KA - í 1. leik liðanna í 1. deild
á keppnistímabilinu. Leikur-
inn á Þórsvelli endaði 2:1 þeim
í vil og Þór fer í leikinn gegn
Skagamönnum á miðvikudag
með 3 stig.
„Þetta var gott í fyrri hálfleik
hjá okkur, meira þóf í síðari hálf-
leik, en úrslitin voru sanngjörn,"
sagði Páll Guðlaugsson mark-
vörður Þórs eftir leikinn. Hann
lék nú sinn fyrsta deildarleik með
Þór og er óhætt að segja að hann
hafi komið vel frá leiknum. „Ég
hef góðan kennara og það er
sómi fyrir mig að taka við treyj-
unni af Þorsteini Ólafssyni,"
sagði Páll eftir leikinn.
- Kalsaveður var í gær er
leikurinn fór fram, norðanátt og
suddi. Þórsarar undan vindi í
fyrri hálfleiknum og „áttu hann“
eins og sagt er á knattspyrnumáli.
Þeir skoruðu tvö mörk, það fyrra
Guðjón Guðmundsson á 15. mín-
útu eftir aukaspyrnu Bjarna
Hvað sögðu þeir? — Hvað sögðu þeir? — Hvað sögí
„Ágætur
leikur“
„Fall er
fararheiir
„KA getur
betur“
Konráð Gunnarsson:
„Þetta var ágætur leikur. Ég átti
hálft í hvoru von á þessum úr-
slitum en ég veti Uka að KA á eftir
að standa sig vel í sumar, það er
á hreinu.“
Jón Arnþórsson:
„KA-liðið er ungt og efnilegt með
ágætan þjálfara. Þessi fyrsti leikur
í íslandsmótinu segir enga aðra
sögu en þá að fall er fararheill. “
„Þór haföi
yfirburði"
Haukur Jakobsson:
„Þetta var mjög lélegt hjá mínum
mönnum í KA og betra liðið
vann sanngjarnan sigur. Mínir
menn í KA eiga eftir að gera bet-
ur sjáðu til.“
Ragnar Þorvaldsson:
„Þór hafði yfírburði að sjálf-
sögðu og Iiðið á eftir að verða
mjög gott í sumar. Ég áleit að
KA-Iiðið væri sterkara en það
var.“