Dagur - 21.05.1984, Blaðsíða 6

Dagur - 21.05.1984, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 21. maí 1984 Nói Bjömsson. Nói fékk rautt spjald Þetta var strangur dómur,“ sagði Nói Björnsson fyrirliði Þórs er hann gekk af leikvelli í lciknum gegn KA í gær er hinn spjaldaglaði dómari, Friðgeir Hallgrímsson hafði sýnt honum rauða spjaldið. Nói á því leikbann yfir höfði sér. „Hann braut á andstæðingnum liggj- andi og það var ekkert annað fyrir mig að gera en sýna rauða spjaldið,“ sagði dómarinn eftir leikinn. „Að vísu braut andstæðingur hans á honum og hann fékk reyndar gult spjald fyrir það.“ „Þetta var samstuð og eðlileg við- brögð að maður reyni að bera hönd fyrir höfuð sér,“ sagði Nói Björnsson fyrirliði Þórs, hress með sigurinn en sá sigur var að vísu dýrkeyptur fyrir hann. Alfreð tognaði Alfreð Gíslason og félagar hans í þýska liðinu Essen voru um helgina slegnir út úr bikarkeppninni þar í landi er þeir töpuðu fyrir Berlín 16:22 á útivelli. Alfreð byrjaði vel í leiknum og hafði skorað tvö mörk er hann meiddist (tognun) og var ekki með eftir það. Völsungur ■ X.■ sigraoi Svavar Geirtinnsson, kornungur piltur sem er að leika sína fyrstu leiki með m.fl. Völsungs á Húsavík, tryggði lið- inu sigur gegn UMFN í leik liðanna á Húsavík um hclgina. Hann skoraði mark sitt á 8. mínútu með mjög góðu skoti utan vítateigs og þrátt fyrir marktækifæri á báða bóga i leik sem einkenndist af slökum vallar- og veðurskilyrðum urðu mörkin ekki fleiri. Góð byrjun hjá VöIsungi.H.J. Tindastoll tapaði Tindastóll tapaöi illa í sínum fyrsta leik í 2. deild, en liðið mætti FH í Hafnar- firði í gær. Úrslitin 6:1 fyrir FH sem talið er líklegt til afreka í deildinni í sumar. Önnur úrslit urðu þau að ísfírðingar unnu 3:2 sigur í Borgarncsi gegn UMFS, ÍBV og Víðir gerðu jafntefli í Eyjum og Völsungur vann UMFN eins og fram kemur í annarri grein hér á síð- unni. Olympiuleikarnir í Los Angeles Haraldur á verðlauna- pallinn? Ef svo fer sem horfir að A.- Evrópuríkin með Sovétríkin í broddi fylkingar hætti við þátt- töku á Olympíuleikunum í Los Angeles, gæti farið svo að ís- lendingur kæmist á verð- launapall í lyftingakeppni leik- anna. Sá sem hér um ræðir er enginn annar en Haraldur Ólafsson, lyft- ingamaður úr Þór en Haraldur á best 300 kg í samanlögðu í 75 kg flokki. Alþjóðalágmarkið í þess- um flokki er 295 kg en Haraldur hefur að undanförnu sýnt og sannað að hann ætti að geta lyft 310 til 315 kg þegar hann verður ■á toppi - um líkt leyti og Olymp- íuleikarnir fara fram. Á Evrópumeistaramótinu á dögunum atti Haraldur kappi við 14 lyftingamenn ogþar af voru 12 frá Austurblokkinni. Fáir aðrir koma til greina í verðlaunasæti þannig að ef A.-Evrópuþjóðirnar mæta ekki þá ætti Haraldur að eiga góða möguleika á brons- verðlaunum. Gallinn er bara sá að ekki er búið að velja Harald til keppni á leikunum en fullvíst má þó telja að hann verði einn þeirra fjög- urra sem bætast við Ólympíuhóp íslands. - ESE. Snjór á Sigló -og ekkert varð úr leik KS og Einherja í 2. deildinni „Því miður, hér er um 10 cm jafnfallinn snjór á vellinum og enginn leikur í dag,“ sagði Karl Pálsson formaður Knatt- spyrnufélags Siglufjarðar er við ræddum við hann í gær. Siglfirðingar áttu að taka á móti Einherja frá Vopnafirði í gær, en á laugardagskvöld var ljóst að ekki gat orðið af þeim leik vegna þess að þá hafði snjó- að á Siglufirði. Er þetta ekki í fyrsta skipti sem Siglfirðingar verða fyrir barðinu á veðurguð- unum í upphafi íslandsmóts í knattspyrnu. Annars var Karl bjartsýnn á sumarið. - „Strákarnir tveir sem við fengum frá Leeds, þeir Darr- en og Colin eru komnir hingað og byrjaðir að æfa með okkur,“ sagði Karl. „Mér líst mjög vel á þá, þeir eru geysisterkir miðvall- arspilarar en mega því miður ekki leika með okkur fyrr en í 7. umferð. Þá er Björn Ingimundar- son kominn heim, hættur við að leika með FH og þar fáum við sterkan mann en hann má því miður ekki leika með fyrr en í 5. umferð. Við förum hægt í sakirn- ar í fyrstu umferðunúm en þegar þessir leikmenn verða komnir á fulla ferð verðum við tilbúnir í hvað sem er,“ sagði Karl. Kristján Kristjánsson hefur skotið og boltinn siglir í mark KA þrátt fyrir vama ■ Þórsarar Það voru Þórsarar sem hrós- uðu sigri eftir leik sinn gegn KA - í 1. leik liðanna í 1. deild á keppnistímabilinu. Leikur- inn á Þórsvelli endaði 2:1 þeim í vil og Þór fer í leikinn gegn Skagamönnum á miðvikudag með 3 stig. „Þetta var gott í fyrri hálfleik hjá okkur, meira þóf í síðari hálf- leik, en úrslitin voru sanngjörn," sagði Páll Guðlaugsson mark- vörður Þórs eftir leikinn. Hann lék nú sinn fyrsta deildarleik með Þór og er óhætt að segja að hann hafi komið vel frá leiknum. „Ég hef góðan kennara og það er sómi fyrir mig að taka við treyj- unni af Þorsteini Ólafssyni," sagði Páll eftir leikinn. - Kalsaveður var í gær er leikurinn fór fram, norðanátt og suddi. Þórsarar undan vindi í fyrri hálfleiknum og „áttu hann“ eins og sagt er á knattspyrnumáli. Þeir skoruðu tvö mörk, það fyrra Guðjón Guðmundsson á 15. mín- útu eftir aukaspyrnu Bjarna Hvað sögðu þeir? — Hvað sögðu þeir? — Hvað sögí „Ágætur leikur“ „Fall er fararheiir „KA getur betur“ Konráð Gunnarsson: „Þetta var ágætur leikur. Ég átti hálft í hvoru von á þessum úr- slitum en ég veti Uka að KA á eftir að standa sig vel í sumar, það er á hreinu.“ Jón Arnþórsson: „KA-liðið er ungt og efnilegt með ágætan þjálfara. Þessi fyrsti leikur í íslandsmótinu segir enga aðra sögu en þá að fall er fararheill. “ „Þór haföi yfirburði" Haukur Jakobsson: „Þetta var mjög lélegt hjá mínum mönnum í KA og betra liðið vann sanngjarnan sigur. Mínir menn í KA eiga eftir að gera bet- ur sjáðu til.“ Ragnar Þorvaldsson: „Þór hafði yfírburði að sjálf- sögðu og Iiðið á eftir að verða mjög gott í sumar. Ég áleit að KA-Iiðið væri sterkara en það var.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.