Dagur - 21.05.1984, Qupperneq 7
21. maí 1984 - DAGUR - 7
rtilburði Ormars Örlygssonar.
Mynd: KGA
sterkari!
Sveinbjörnssonar og Kristján
Kristjánsson það síðara á 35.
mínútu með lúmsku skoti sem
ágætur markvörður KA Þorvald-
ur Jónsson réði ekki við.
Yfirburðir KA í síðari hálfleik
undan vindunum voru ekki þeir
sömu, jafnvel þótt þeir lékju ein-
um fleiri eftir að Nói Björnsson
fyrirliði Þórs fékk rauða spjaldið
á 60. mínútu. Voru menn sam-
mála um að Þórsliðið hefði verð-
skuldað sigur en naumur var
hann þó í lokin.
ftu þeir? —
„Fyrsta
skrefið“
Óskar Hjaltalín:
„Þetta var sanngjarn sigur Þórs
og síst of stór. Eg er viss um að
Þór verður í toppbaráttunni í
sumar og þessi sigur gegn KA var
aðeins fyrsta skrefið hjá mínum
mönnum.“
Hinrik Þórhallsson sem kom
inn sem varamaður í s.h. minnk-
aði muninn í 2:1 á 83. mínútu,
nikkaði boltanum inn af stuttu
færi og á lokamínútu leiksins
mátti Páll markvörður Þórs taka
á öllu sínu í tvígang til að bjarga
marki.
Besta tækifæri leiksins fékk
hinsvegar Óli Þór í upphafi síðari
hálfleiks, komst einn innfyrir
vörn KA en Þorvaldur Jónsson í
marki KA hirti boltann af tám
hans. „Þetta var sennilega of
auðvelt fyrir mig, þetta var aga-
legt,“ sagði Óli Þór eftir leikinn.
Leikurinn bar mjög merki
þeirra aðstæðna sem hann var
leikinn við, en Þórsarar ollu
áhangendum sínum ekki von-
brigðum og sýndu góða takta.
„Ég er mjög ánægður með strák-
ana, þeir börðust vel og þetta er
góð byrjun,“ sagði Þorsteinn
Ólafsson þjálfari Þórs eftir leik-
inn.
Hljóðið var ekki eins gott í
herbúðum KA: „Þetta var afar
slakt hjá okkur,“ sagði Gústaf
Baldvinsson þjálfari KA. -
„Betra liðið vann en við eigum
eftir að gera betur, sérstaklega
þegar það er haft í huga að við
erum með menn í meiðslum.
Þessi leikur segir ekkert um
sumarið í heild.“
- Það vakti athygli að þú settir
Hinrik Þórhallsson á varamanna-
bekk en lést Bjarna Jóhannsson
leika frammi, mann sem hefur
ekki leikið þá stöðu áður.
„Ég var með nýja uppstillingu,
þannig var Bjarni hafður frammi
og það má segja að þetta hafi ver-
ið tilraun hjá mér,“ sagði Gústaf.
Kristín
sló í gegn!
Akureyrarmót í fimleikum var
haldið í íþróttahúsi Glerárskóla
dagana 4. og 6. maí.
Á föstudaginn fóru fram
undanúrslit hjá stúlkum sem voru
40 alls. Átta fyrstu á hverju
áhaldi komust í úrslit sem voru á
sunnudaginn. Þá kepptu einnig
10 drengir til úrslita. Það er óhætt
að segja að keppnin hafi farið vel
fram og margir efnilegir krakkar
sýndu nú árangur langra og
strangra æfinga síðustu mánaða
og ára.
Besta manneskja mótsins mun
þó hafa verið Kristín Hilmars-
dóttir, en hún varð Akureyrar-
meistari á þremur áhöldum og í
öðru sæti á tveimur. Matthea Sig-
urðardóttir varð tvöfaldur meist-
ari og Baldvin Hallgrímsson varð
Akureyrarmeistari í samanlögðu
hjá drengjum.
Sex bikarar voru veittir á mót-
inu og 46 verðlaun, gefendur
voru Sigbjörn Gunnarsson, Baut-
inn, Slippstöðin og þjálfarar.
Slá 4. gráða:
1. Kristín Hilmarsdóttir 9,20
2. Matthea Sigurðardóttir 8,85
3. Hanna Dóra Markúsdóttir 8,30
Gólf 2. og 3. gráða:
1. Aðalheiður Ragnarsdóttir 6,25
1. Sigrún H. Ingadóttir 6,25
2. Heiðdís Valbergsdóttir 5,85
3. Marta Hreiðarsdóttir 5,65
Gólf 4. gráða:
1. Matthea Sigurðardóttir 8,85
2. Kristín Hilmarsdóttir 8,75
3. Hanna Dóra Markúsdóttir 8,25
Frjáls æfing á gólfi:
1. Kristín Hilmarsdóttir 9,45
2. Matthea Sigurðardóttir 9,40
3. Katrín Káradóttir 9,00
Dýna:
1. Stefán G. Stefánsson 8,55
2. Baldvin Hallgrímsson 8,45
3. Sigurður Ólason 7,85
Bogahestur:
1. Baldvin Hallgrímsson 8,25
2. Sigurður Ólason 7,65
3. Stefán G. Stefánsson 6,30
Úrslit urðu þessi:
Hestur 12 ára og yngri:
1. Sigrún H. Ingadóttir 7,40
1. Heiðdís Smáradóttir 7,40
2. Guðrún Gísladóttir 7,35
3. Harpa M. Örlygsdóttir 6,35
Hestur 13 ára og eldri:
1. Kristín Hilmarsdóttir 8,70
2. Mattheá Sigurðardóttir 8,55
3. Sigríður Viðarsdóttir 8,40
Tvíslá 0., 1., 2. gráða:
1. Harpa Örlygsdóttir 5,70
2. ílildur B. Sigbjörnsdóttir 5,07
3. María Pálsdóttir 5,00
Tvíslá 3., 4. gráða:
1. Matthea Sigurðardóttir 9,00
2. Kristín Hilmarsdóttir 8,70
3. Hanna Dóra Markúsdóttir 7,35
Hringir:
1. Baldvin Hallgrímsson 8,95
1. Stefán G. Stefánsson 8,95
2. Sigurður Ólason 8,05
3. Ólafur Aðalgeirsson 7,85
3. Guðlaugur Halldórsson 7,85
Hestur:
1. Baldvin Hallgrímsson 8,95
2. Stefán G. Stefánsson 8,90
3. Ólafur Aðalgeirsson 8,45
Tvíslá:
1. Stefán G. Stefánsson 9,10
2. Sigurður Ólason 8,50
3. Baldvin Hallgrímsson 8,40
Svifrá:
1. Stefán G. Stefánsson 9,35
2. Baldvin Hallgrímsson 8,65
3. Helgj Jónsson 8,20
Akureyrarmeistarar 1984. Stúlkur:
Hestur: Kristín Hilmarsdóttir.
Tvíslá: Matthea Sigurðardóttir.
Slá: Kristín Hilmarsdóttir.
Slá 2. gráða:
1. Hildur B. Sigbjörnsdóttir
2. Árný Árnadóttir
3. Guðrún Sigbjörnsdóttir
Gólf: Matthea Sigurðardóttir.
6,65 Frjáls æf. á gólfi: Kristín Hilmarsd.
5,60 Drengir (úr samanlögðu):
5,55 Baldvin Hallgrímsson.
Matthea Sigurðardóttir, Kristín Hilmarsdóttir og Baldvin Hallgrímsson.
„Tigerinn" tók
Amaróbikarinn
Sverrir „Tiger“ Þorvaldsson
sigraði í „snærisleik“ hjá Golf-
klúbbi Akureyrar um helgina.
Nokkur fjöldi kylfinga lét sig
hafa sunnlenska rigningarveðrið
á laugardagsmorgun og voru
menn ansi vel „dúðaðir“ margir
hverjir og veitti ekki af. Árangur
var upp og ofan eins og gerist við
slíkar aðstæður eins og voru fyrir
hendi en Sverrir var hinn öruggi
sigurvegari á 67 höggum og
hlaut bikar þann sem Amaró h.f.
gaf til keppninnar.
Sigurður H. Ringsted og Ólaf-
ur Gylfason urðu jafnir í 2. og 3.
sæti á 69 höggum. Þeir fóru í
bráðabana og Sigurður hafði
sigurinn á 2. holu.
Næstu mót hjá GA eru „Videó-,
■ mót“ á fimmtudag (ræst út kl.
16-18 og leiknar 9 holur), four
ball best ball á laugardag og
drengjakeppni á sunnudag.
Badminton:
Akureyri
vann stór-
sigur!
Akureyringar og Siglfírðingar háðu
um helgina bæjakeppni í badnúnton
og fór hún fram í íþróttahöllinni á
Akureyri.
Akureyringar höfðu nokkra yfir-
burði i keppninni sem lauk með 15
stigum þeirra gegn 3 stigum Siglfiröing-
anna.
í einliðaleik karla vann Kristinn
Jónsson Akureyri Odd Siguðsson S.
Þórður Pálmason A sigraði Óttó Guð-
jónsson, Sigurður Steingrímsson S sigr-
aði Tómas Leifsson A, Sigurjón Er-
lingsson S sigraði Fjölni F. Guðmunds-
son A, Finnur Birgisson A sigraði Jón
E. Sigurðsson S, Haukur Jóhannsson
A sigraði Jóhann Jónsson S, Sveinn B.
Sveinsson A sigraði Bjarna Árnason S
og Einar J. Kristjánsson A sigraði Jó-
hannes Egilsson S.
í einliðaleik kvenna sigraði Jakobína
Reynisdóttir A Sigrúnu Jóhannsdóttur
S, Guðrún Erlendsdóttir A sigraði
Guðbjörgu Ottósdóttur S, Margrét Ey-
fclls Á sigraði Auði Erlendsdóttur S og
Ragnheiöur Haraldsdóttir A sigraði
Ernu Erlendsdóttur S.
í tvíliðaleik karla sigruðu
Siglfirðingarnir Sigurður og Ottó þá
Þórð Páimason og Fjölni F. Guð-
mundsson, Kristinn Jónsson og Sveinn
B. Sveinsson A unnu Odd Sigurðsson
og Bjarna Árnason, Haukur Jóhanns-
son og Tómas Leifsson A unnu Sigur-
jón Erlingsson og Jóhann Jónsson og
Björn og Erlingur A unnu Jón E. Sig-
urðsson og Jóhannes Egilsson.
í tvíliðaleik kvenna unnu Jakobfna
og Guörún A þær Sigrúnu og Guð-
björgu frá Siglufiröi og Ragnheiður og
Margrét A unnu Auði og Ernu frá
Siglufirði.
Engin
mótabók
handa Degi
Blöðin í Reykjavík inega ekki vatni
halda vegna ánægju sinnar með
frammistööu mótanefndar KSÍ,
enda fengu þau mótabók knatt-
spyrnusumarsins 1984 í hendur
„glóövolga“ nokkrum inínútum eft-
ir aö hún kom úr pressunni fyrir 10
dögum siöan.
En hér á Degi er hljóðið í
mönnum ekki eins gott. Viö höföum
samband við KSI fyrir mánuöi og
var þá lofað að við myndum fá
send drög að mótaskrá sumarsins.
Fyrir um hálfum mánuði höfðum
við aftur samband og aftur kom lof-
orð en efndirnar urðu eins og í fyrra
skiptið. Loks rakst umsjónarmaður
íþróttasíðu Dags á framkvæmda-
stjóra KSÍ á blaðamannafundi í
Reykjavík í síðustu viku og fékk
munnlegt loforð um að mótabókin
færi í póst samdægurs frá skrifstofu
KSÍ.
Síðan er liðin vika og ekkert hefur
gerst. Því er ástandiö hér þannig að
yiö höfum ekki á hreinu næstu leiki
íslandsmótsins eða Bikarkeppninn-
ar sem inun að sögn heljast í vik-
unni. og bíðum við þcss nú að móta-
bókin komi í bókabúðir hér á Akur-
eyri. En við samgleðjumst blaða-
mönnuin í Reykjavík vegna þess
hversu góö þjónusta KSÍ er við þá.