Dagur - 21.05.1984, Blaðsíða 11
21. maí 1984 - DAGUR -11
Sjálfboðaliðar í Skaftafell
í sumar er fyrirhugað að koma
á fót vinnubúðum sjálfboða-
liða í þjóðgarðinum Skafta-
felli. Stefnt er að því að sjálf-
boðaliðastarfið hefjist í byrjun
júb og standi framundir ágúst-
lok og gefst fólki kostur á að
taka þátt í starfinu um lengri
eða skemmri tíma.
Undanfarin 10 ár hafa vinsæld-
ir Skaftafells sem áningarstaður
ferðamanna farið sívaxandi. F>ar
er nú eitt glæsilegasta tjaldsvæði
landsins og kerfi göngustíga ligg-
ur vítt um þjóðgarðslandið. Við-
hald göngustíganna er mikið verk
sem ekki hefur verið hægt að
sinna sem skyldi, m.a. vegna
fjárskorts. Auk mikils álags af
mannavöldum hafa náttúruöflin
leikið göngustígana grátt. Yfir-
Annað ársþing Bókavarðafé-
lags íslands var haldið á Amts-
bókasafninu á Akureyri laug-
ardaginn 5. maí sl. Þingið sátu
25 fulltrúar frá félögum al-
menningsbókavarða, rann-
sóknarbókavarða og Skóla-
vörðunni, félagi skólabóka-
varða, auk stjórnar félagsins.
Bókafulltrúi ríkisins sat einnig
fundinn. Á fundinum var eftir-
farandi ályktun samþykkt:
Vegna síharðnandi sam-
keppni um frítíma fólks, ekki síst
ungs fólks, er nauðsynlegt að
bæta samkeppnisaðstöðu hollrar
menningarlegrar tómstundaiðju.
Bókavörðum er ljóst að ný
tækni og nýir miðlar svo sem
myndbönd og tölvur bjóða upp á
mikla möguleika, sem enn eru að
mestu ónýttir af bókasöfnum.
Þetta stafar m.a. af fjársvelti
menningarstofnana, sem ekki
hafa ráð á að virkja þessa nýju
miðla í þágu fræðslu og menning-
ar.
Bókasöfn eru hlutlaus vett-
vangur fyrir fólk á öllum aldri og
þar er ekki kynslóðabil.
Á alþjóðaári æskunnar 1985
væri verðugt að efla mjög bóka-
söfn, til að gera þeim kleift að
sinna betur hlutverki sínu sem
mennta-, upplýsinga- og tóm-
stundastofnanir fyrir almenning.
Fyrirbyggjandi aðgerðir eru ætíð
farsælastar og bókaverðir eru
þeirrar skoðunar að nútíma
bókasöfn séu mikilvæg tæki til að
draga úr firringu, sem einkennir
nútíma þjóðfélag.
II. ársþing Bókavarðafélags
íslands, haldið á Akureyri 5.
maí 1984, skorar á ríkisstjórn og
samtök sveitarfélaga að:
• fella niður söluskatt af bókum
til bókasafna,
• fella niður gjöld af myndbönd-
um með fræðslu- og menn-
ingarefni fyrir bókasöfn,
• endurskoða lög um almenn-
ingsbókasöfn með það fyrir
augum að efla söfnin m.a. með
því að ríkið greiði sama hlut-
fall af byggingarkostnaði
bókasafna og það greiðir af
byggingu skóla og heilsugæslu-
stöðva,
• hraða endurskoðun grunn-
skólalaga með sérstöku tilliti
til skólasafna og starfsliðs
þeirra og að gefa út reglugerð
um grunnskólasöfn. Ennfrem-
ur að afgreiða hið fyrsta frum-
varp til laga um framhalds-
skóla,
• setja í lög ákvæði um menntun
bókavarða og að auka mögu-
leika starfandi bókavarða til
menntunar m.a. með bréfa-
borð þeirra hefur rofnað í stór-
rigningum og leysingum og í flóði
í byrjun apríl tók göngubrú yfir
Morsá af. f>að er því augljóst að
mikið starf er framundan að við-
haldi göngustíga og mannvirkja í
Skaftafelli.
Sjálfboðavinna á friðuðum
svæðum og víðar á sér nokkra
hefð á Bretlandseyjum. Á vegum
samtaka sjálfboðaliða þar
(BTCV) kom hingað til lands í
fyrra lítill hópur sjálfboðaliða. í
framhaldi af því munu fjórir hóp-
ar vaskra Breta væntanlegir hing-
að í sumar og munu hóparnir
dveljast við störf í Skaftafelli í
rúma viku hver.
Nú þegar áhugi hefur vaknað
á að skipuleggja sjálfboðaliða-
samtök hér á landi, þykir Skafta-
námskeiðum og að bæta hlut
bókasafnsfræði innan Háskóla
íslands,
• hraða byggingu Þjóðarbók-
hlöðu þannig að hið íslenska
þjóðarbókasafn geti gegnt
hlutverki sínu sem móðursafn
íslenskra bókasafna.
fell fyrir margra hluta sakir æski-
legur vettvangur fyrir þau í
byrjun. Þar eru ærin verkefni,
aðstaða góð og möguleikar á
margháttaðri útivist. Verið er að
hefjast handa um innréttingu af-
dreps fyrir þá sem taka munu
þátt í sjálfboðastarfinu í Skafta-
felli. Þar verður komið upp sam-
eiginlegri eldunaraðstöðu og
svefnplássi, en annars er gert ráð
fyrir að þátttakendur gisti í
tjöldum. Sömuleiðis er gert ráð
fyrir að sjálfboðaliðar sjái sér fyr-
ir mat, en með sameiginlegum
innkaupum og matseld verður
reynt að halda kostnaði í lág-
marki.
Starfið í vinnubúðunum verður
skipulagt með það fyrir augum að
þátttakendum gefist kostur á
gönguferðum um þjóðgarðsland-
ið undir leiðsögn landvarða og
fræðslu um náttúru og sögu
svæðisins.
Sjálfboðavinnan í Skaftafelli
verður öllum opin, hvort sem
menn kjósa að eyða í hana stund
af dvöl sinni í þjóðgarðinum eða
koma sérstaklega til dvalar í búð-
unum. Hæfilegur dvalartími gæti
þá verið ein vika. Starfið hentar
hvort sem er unglingum eða full-
orðnum.
Nánari upplýsingar um vinnu-
búðirnar og skipan sjálfboðaliða-
starfsins í Skaftafelli í sumar fást
á skrifstofu Náttúruverndarráðs
Hverfisgötu 26 Reykjavík í
símum 91-27855 og 22520.
LETTIR
%J Léttisfélagar
AKUREYRI/ ^^0
Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 24.
maí nk. kl. 20.30 í félagsmiðstöðinni í Lundar-
skóla. Sigurður Ragnarsson frkvst. L.H. mætir á
fundinn og skýrir frá starfsemi L.H.
Jón Guðmundsson form. dómarafélagsins kemur
einnig á fundinn og útskýrir gæðingareglur L.H.
Stjórn Léttis.
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Miðvikudaginn 23. maí nk. verða bæjarfulltrúarn-
ir Sigríður Stefánsdóttir og Jón G. Sólnes til við-
tals í fundarstofu bæjarráðs, Geislagötu 9, 2.
hæð.
Bæjarstjóri.
Framsóknarmenn
Akureyri
Framsóknarfélag Akureyrar
Bæjarmálafundur verður haldinn í Strandgötu 31
mánudaginn 21. maí kl. 20.30. Fulltrúar í nefnd-
um eru sérstaklega hvattir til að mæta.
FRAMSÓKNARFÉLAG
AKUREYRAR
Fella niður
söluskatt
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Eyrarlandsvegi 12, efri hæð, Akureyri,
þingl. eign Herberts Halldórssonar, fer fram eftir kröfu Gunn-
ars Sólnes hrl., veðdeildar Landsbanka íslands og Gísla B.
Garðarssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 25. maí 1984
kl. 13.40.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Hjallalundi 17a, Akureyri, þingl. eign Birgis
Sigurðssonar, fer fram eftir kröfu Björns J. Arnviöarsonar hdl.,
Gunnars Sólnes hrl., bæjarsjóðs Akureyrar, veðdeildar
Landsbanka (slands og Tryggingastofnunar ríkisins á eigninni
sjálfri föstudaginn 25. maí 1984 kl. 13.20.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Leifsstöðum, Öngulsstaðahreppi, þingl.
eign Bergsteins Gíslasonar, fer fram eftir kröfu Búnaðarbanka
(slands á eigninni sjálfri föstudaginn 25. maí 1984 kl. 11.00.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 128., 130. og 133. tbl. Lögbirtingablaðsins
1983 á fasteigninni Miklagarði, hluta, Hjalteyri, þingl. eign
Dönu Jóhannesdóttur, fer fram eftir kröfu Brands Brynjólfs-
sonar hrl., veðdeildar Landsbanka íslands og Helga R. Magn-
ússonar lögfr. á eigninni sjálfri föstudaginn 25. maí 1984 kl.
17.00.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 128., 130. og 133. tbl. Lögbirtingablaðsins
1983 áfasteigninni Háalundi 6, Akureyri, þingl. eign Gunnhild-
ar Björgúlfsdóttur, fer fram eftir kröfu Sveins H. Valdimarsson-
ar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 25. maí 1984 kl. 16.20.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 96., 100. og 102. tbl. Lögbirtingablaðsins
1983 á fasteigninni Gránugötu 7, Akureyri, talinni eign Her-
steins Tryggvasonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl.
á eigninni sjálfri föstudaginn 25. maí 1984 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 5., 9. og 13. tbl. Lögbirtingablaðsins 1983 á
fasteigninni Glerárgötu 7, Akureyri, þingl. eign Akurs hf. fer
fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs og Ævars Guðm-
undssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 25. maí 1984 kl.
14.40.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 104., 107. og 111. tbl. Lögbirtingablaðsins
1981 á fasteigninni Aðalstræti 14, norðurhluta, e.h., Akureyri,
þingl. eign Leós Guðmundssonar, ferfram eftirkröfu Gunnars
Sólnes hrl. og Hreins Pálssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudag-
inn 25. maí 1984 kl. 14.20.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Tfj^ Æ\/Í35TífÍE) kemur út úrisvar 1 viku>
r uy/ff mánudaga, mibvikudaga og föstudaga