Dagur - 21.05.1984, Side 12
(oionct jtitl.s
EIRROR -TENGI
SMURKOPPAR
Ekkert
tilboð frá
heima-
mönnum
Það vakti mikla athygli þegar
tilboð í byggingu svokallaðs
þjónustuhúss á Dalvík voru
opnuð að öll tilboðin þrjú sem
bárust komu frá Akureyri,
enginn aðili á Dalvík bauð í
verkið!
Þeir aðilar sem standa að bygg-
ingu þessa húss eru Dalvíkurbær,
RARIK og dómsmálaráðuneytið
sem mun fá aðstöðu fyrir lög-
reglustöð í húsinu.
Kostnaðaráætlun við að koma
húsinu upp fokheldu - en þannig
á verktaki að skila því í haust -
var 4.9 milljónir króna, en það
skal tekið fram að verktakinn
léggur ekki fram mikið efni að
sögn Snorra Finnlaugssonar
bæjarritara á Dalvík.
Lægsta tilboðið í húsið kom
frá Ýr h.f. og var upp á 4.3 millj-
ónrr, Híbýli h.f. var með 4.5
milljónir og Norðurverk bauð 5.4
milljónir króna. Ekki hefur verið
ákveðið hvaða tilboði verður
tekið.
Þá hafa verið opnuð tilboð í
byggingu Kaupfélags Eyfirðinga
á Dalvík og reyndist Tréverk á
Dalvík vera með lægst tilboð, en
það fyrirtæki sér einnig um bygg-
ingu verkamannabústaða á Dal-
vík sem nú stendur yfir. gk-.
í veiðihug. Mynd: KGA.
Fjárdráttur
í verksmiðj-
unni Sjöfn
— komst upp við
endurskoðun hjá fyrirtækinu
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri hefur nú að mestu leyti
upplýst fjársvikamál sem
starfsmaður í Sjöfn varð upp-
vís að.
Að sögn Ófeigs Baldurssonar
þá mun hér ekki vera um stórar
upphæðir að ræða en nóg til þess
að fjárdrátturinn var þegar
kærður til rannsóknarlög-
reglunnar. Ófeigur varðist annars
allra frétta af málinu en sagði að
rannsókn væri að mestu lokið.
Engar upplýsingar fengust
heldur hjá forráðamönnum
Sjafnar í morgun. Skrifstofustjóri
Sjafnar skellti á blaðamann Dags
með orðunum „engar upplýsing-
ar“ er hann heyrði erindið. Ekki
náðist í forstjóra Sjafnar þar sem
hann er staddur í Bandaríkjun-
um. - ESE
Norðurfell opnar í Kaupangi:
„Sambland af
kjörbúð og
stórmarkaði“
Rís laxeldis-
stöð á Króknum?
„Það hefur verið rætt um að
þessir aðilar sem hafa sýnt
áhuga á að koma á fót laxeldis-
stöð á Sauðárkróki sem ali lax
til slátrunar fengju stuðning
frá bænum, þeir myndu fá
bráðabirgðalóð undir þessa
tilraunstarfsemi og ákveðið
vatnsmagn til þess að gera
þessa tilraun næsta vetur,“
sagði Rúiiar Bachmann for-
maður atvinnumálanefndar á
Sauðárkróki í samtali við Dag.
Þrír áhugamenn um laxeldi á
Sauðárkróki, Jóhann Svavars-
son, Jón Jakobsson og Pétur
Bjarnason hafa lýst áhuga sínum
á að koma á fót laxeldisstöð á
Sauðárkróki og hafa þau mál ver-
ið nokkuð rædd af yfirvöldum á
staðnum. Ljóst er að starfræksla
slíkrar stöðvar þar stendur og
fellur með því að hægt verði að
fá til hennar heitt vatn á hag-
stæðu verði og um það mál hafa
umræðurnar aðallega snúist til
þessa.
„Það er verið að kanna þessi
mál núna,“ sagði Rúnar.
„Það er talað um að stöðin
þurfi 40-50 sek./lítra þegar sjór
er kaldastur og það er liðlega
helmingur af vatnsþörf bæjarins
í dag. Síðan þarf að athuga það
vel hvaða möguleikar eru á því
að koma til móts við þessa áhuga-
menn og þetta er vissulega
spennandi mál.“
- Frumáætlun varðandi þessa
laxeldisstöð gerir ráð fyrir 100
tonna framleiðslu á ári til að
byrja með og verður verðmæti
hendar um 15 milljónir. Mann-
aflaþörf við daglegan rekstur er 5
menn. gk,-
„Yið stefnum að því að bjóða
upp á fjölbreytt vöruval og
markaðsverð á stórum hluta af
okkar vörum, vonandi sam-
bærilegu við það sem gerist í
Hrísalundi og Hagkaup,“
sagði Tryggvi Pálsson í samtali
við Dag, aðspurður um „Mat-
vörumarkaðinn“, sem verður
opnaður í Kaupangi um miðj-
an næsta mánuð.
Matvörumarkaðurinn verður í
því húsnæði sem Kjörbúð Bjarna
hafði á sínum tíma og er í eigu
Bjarna Bjarnasonar. Kaupfélag
Eyfirðinga hefur rekið þar útibú
undanfarin ár, én hættir rekstri
þess á föstudag, þar sem ekki
samdist um áframhaldandi leigu
við Bjarna. Það er hlutafélagið
Norðurfell sem ætlar að reka
Matvörumarkaðinn, en það er í
eigu bræðranna Tryggva, Stein-
bergs, Braga og Friðfinns Páls-
sona.
„Verslunin verður rekin með
svipuðu sniði og verið hefur, sem
blanda af kjörbúð og markaðs-
verslun og að sjálfsögðu verður
þar fjölbreytt kjötborð og við
stefnum að því að hafa þar til
þjónustu kjötiðnaðar- eða mat-
reiðslumann. Við erum aðilar að
K-samtökunum, þar sem „kaup-
maðurinn á horninu“ getur tekið
þátt í pöntunum á ákveðnum
vöruflokkum í stórum einingum,
sem gefur hagkvæmara vöruverð.
Við erum bjartsýnir á heiðarlega
samkeppni við KEA og Hag-
kaup, annars legðum við ekki út í
þetta. Þar að auki teljum við
nauðsynlegt að matvöruverslun
verði áfram rekin í Kaupangi,"
sagði Tryggvi Pálsson. - GS
Spáð er sunnanátt eða
suðvestlægri átt á
Norðurlandi allt fram á
fimmtudag. Rigning
verður á Suður- og Vest-
urlandi og líkur á að
rigningin nái norður til
Skagafjarðar. Eyja-
fjörður og Mývatnssveit
sleppa hins vegar við
vætuna. Hitastig verður
um 6-9 gráður.
# Lítið af
lands-
byggðinni
Mikil harka hefur nú færst í
samkeppnina á blaðamark-
aðnum með tilkomu NT og
það er ekki síst á íþróttasíð-
um blaðanna sem bardaginn
er mestur. Síauknu rými er
varið undir íþróttaskrif og ali-
ir hafa það á stefnuskránni
að vera „fyrstir með fréttirn-
ar“.
Þó auknu rými sé varið
undir íþróttafréttir þá er enn
eitt óbreytt. Sorglega lítið er
sagt frá afrekum landsbyggð-
armanna en hart er barist um
hvert það orð sem útgengur
af munni íslensku atvinnu-
mannanna sem leika knatt-
spyrnu á meginlandinu eða
frjálsíþróttamannanna sem
æfa í Bandaríkjunum.
# Satana
Perkele?
Eitt gott dæmi um áhugaieysi
Reykjavíkurblaðanna á þeim
landsbyggðarmönnum sem
enn puða við að æfa íþrótt
sina hér heima, eru frásagn-
irnar af nýafstöðnu Evrópu-
meistaramóti í kraftlyfting-
um. Þar náði Kári Elíson, KA
þeim frækilega árangri að
verða í öðru sæti á eftir
heimsmeistaranum Eddie
Pengeie frá Bretlandi. DV
skýrir frá þessu þegar á
mánudag en þar heitir sigur-
vegarinn reyndar Perkele
(líklega skyldur satana
perkele sem þýðir
andsk... djöv ... á finnska
tungu). NT sem er í harðri
samkeppni við DV á mánu-
dögum „gleymir“ hins vegar
þessari frétt þó útvarp og
sjónvarp hafi skýrt frá úr-
slitum um helgfna. NT er síð-
an með úrslitin á þriðjudag
en þá heitir sigurvegarinn
Perkele, líkt og ( DV. Þjóðvilj-
inn skýrir frá úrslitum í fyrsta
blaði eftir helgina, þ.e. á
þriðjudag.
# Loftbólur í
lauginni
Það sem vekur mesta athygli
í þessu sambandi er ekki það
að NT éti fréttirnar upp eftir
DV, heldur það að „blað allra
landsmanna“ hefur ekki
skýrt frá úrslitunum ennþá,
þegar þetta er ritað. Morgun-
blaðið hefur ekki séð ástæðu
til þess að geta einu orði um
frækilega frammistöðu Kára
Elísonar sem Ifklega er sú
besta hjá íslenskum kraftlyft-
ingamanni síðan Skúli Ósk-
arsson og Jón Páll gerðu
garðinn frægan. Hins vegar
má vart sundmaður reka við
né badmintonmaður hnerra
að ekki sé getið um það í Mbl.
Furðulegt fréttamat ekki
satt?