Dagur - 18.06.1984, Side 5
18. júní 1984-DAGUR-5
Helgi Hólmsteinsson um borð í bátnum sínum. Mynd: KGA.
„Gerum varla meira
en ná kvótanum"
- Spjallað við Helga Hólmsteinsson, sjómann á Raufarhöfn
„Við erum nýhættir á netum
og ég hef aldrei vitað það jafn
slæmt og núna,“ sagði Helgi
Hólmsteinsson, sjómaður á
Viðari, 19 tonna báti frá Rauf-
arhöfn.
Og á meðan tíðindamenn Dags
stöldruðu við hjá Helga mátti
heyra aðra báta í talstöðinni.
Hljóðið í mönnum var engu
betra - lítil veiði. En Helgi vildi
meina að grásleppusjómenn
hefðu gert það nokkuð gott.
En hvernig kom kvótinn niður
á ykkur?
„Við gerum nú varla meira en
að ná honum, og varla getum við
verið óánægðir yfir honum á
meðan svo er,“ segir Helgi.
„Þetta er versta árið sem ég hef
verið á þessum báti,“ bætir hann
við og það kemur upp úr dúrnum
að Viðar er 10 ára bátur og Helgi
hefur verið á honum frá byrjun.
„Ég er búinn að vera helvíti lengi
á sjó - alveg frá því ég var ung-
lingur. Pað var svona öðrum
þræði framan af, í og með á
fraktskipum. En síðustu tuttugu
árin hef ég eingöngu verið á sjó.“
Nýhættir á netum - hvað tekur
við?
„Við reynum við handfæri,
svona þegar búið er að þvo,
pússa og mála bátinn," segir
Helgi. „Reyndar líst mér ekki of
vel á færaveiðarnar - þær gefa
alltaf takmarkað og töluvert af
smáfiski."
En það á ekki að leggja árar í
bát?
„Nei, það verður að sjá til
hvort ekki glæðist. t>að þýðir
ekkert annað.“ -KGA.
Níu líf í Laxdalshúsi
Guðbjörg Ringsted, Pétur Þor-
steinsson, Ólöf Erla Bjarnadóttir,
Örn Ingi, Samúel Jóhannsson,
Þóra Sigurðardóttir, Lýður Sig-
urðsson og Sverrir Hermannsson;
Laxdalahús 9.-23. júní 1984.
Sverrir Hermannsson er vildis-
smiðurinn sem færði okkur endur-
nýjað Laxdalshús, lifandi Laxdalshús
á nýjan leik. Hin sýna myndlist innan
veggja á þessu bernskuskeiði veit-
ingastofunnar hans Arnar Inga. Og
það er sérstök ástæða til þess að
hvetja gesti til að láta ekki glepjast
svo yfir súkkulaði og kökum eða
öðrum veitingum, að þeir gleymi að
njóta þessarar hlýlegu og léttu listar
í gervi 49 myndverka á veggjunum.
Og sumir geta meira að segja gert sér
það að aðalerindi að skoða myndirn-
ar.
Flestar eru þær smáar og liprar í
skoðun, eins konar vorsöngvar eða
sumartölt. Þó bregður fyrir átaki og
ógn. Umhverfið innanhúss hjá Lax-
dal er bjart og notalegt. En hér ægir
ýmsu sundurleitu saman, þótt ákveðin
hrynjandi og kímni séu ef til vill sam-
nefnari flestra verkanna.
Guðbjörg Ringsted á heiðurinn af
teikningu Laxdalshúss sem skreytir
borðmottur, matseðil, merki og
nótur. Eins gott að hún merki sér
slíkt í framtíðinni, slík er ásókn gest-
anna í að hafa t.d. borðmotturnar
með sér heim. Guðbjörg á þarna
fínar teikningar og sannar bæði
færni sína, formskyn og fyndni.
Endurtekninga/endurfæðingaverkin
eru að vísu ekki frumleg, en
hnyttilega gerð. Og „pensilskrift“
hlýtur að vera pilla handa gagnrýn-
endum, eða hvað?
Lýður Björnsson, sem nú hefur
valið sér höfundareinkennið „örv-
hentur hvítabjörn" sýnir eina frum-
mynd og tvær eftirprentanir sinna
nosturslegu verka. Þar er línan úr
neðra hægra horni upp í vinstra horn
-ÓlafurH. Torfason
skrifar
alltaf ráðandi og er það öfugt við
klassíkina í þessum efnum. Stjórn-
klefar og stýritækni eru honum ofar-
lega í huga. Það er enn óstjórn í lita-
tónum þessa skemmtilega málara, en
hugmyndaflugið og handbragðið
fyrsta flokks. Þó er eins og dálítið
skorti á rétt hlutföll.
Samúel Jóhannsson heldur upp-
teknum strákshætti í spriklandi
teikningum og grátónamyndum af
fólki sem býður hættunni heim. Það
er viss ögrun og þensla í þessu öllu,
en frásagnarefnið ekki að sama skapi
merkilegt. Einna mögnuðust fannst
mér nr. 30.
Þóra Sigurðardóttir sýnir af mikilli
skyldurækni „dæmigerða kvennalist"
í endalausum útfærslumöguleíkum
Hún sýnir í 22-44 hvað hægt er að
spenna þetta líflega en best er nr. 25,
og hefði verið nóg að gera þá mynd.
Langbrækurnar sjálfar sýna það ein-
mitt í Bogasal Þjóðminjasafnsins
núna að þær eru að brjótast út úr
þessari herkví hugmyndanna og það
ætti Þóra að hugleiða, svo leikin sem
hún er.
Ólöf Erla Bjarnadóttir býður upp
á fágaða leirmuni, sem hún hefur
mótað og brennt að heimili sínu að
Grímsstöðum á Fjöllum. Þetta eru
tekönnur og bollasett, sjaldgæflega
hreinlega og örugglega mótuð. Engin
ofhleðsla, skraut eða kúnstir, heldur
glíman við formið. Hér er ef til vill
alþjóðlegasta og urn leið frambæri-
legasta listin á allri sýningunni, þótt
nytjalist eigi að heita. Kom sannar-
lega á óvart.
Þorvaldur Þorsteinsson kveður nú
við raust, og hefur meitlað sín verk í
afar þröng form. Hér er um kúvend-
ingu að ræða frá pennateikninga-
flöktinu fyrrum. Rúðustriks-orða-
myndir hans minna jafnt á krossgát-
ur, völundarhús og mósaík. Og yfir-
skilvitlegar ádrepur hans um veit-
ingamanninn sjálfan (er það ekki
hann?), sem veður sjó, land og
himin, eru gerðar af öryggi og list-
fengi sem eru ofar brandaranum.
Pétur Þorsteinsson skólastjóri á
Kópaskeri sýnir 4 ljósmyndir. Mynd-
in nr. 6 af ánni að kara lambið er
snilld. Ég er sjálfur búinn að fórna
tugum metra af ljósmyndafilmu í
fjárhúsum í sauðburði og hef legið
við dag og nótt en játa mig núna
gjörsigraðan. Enda var Pétur sjálfur
bóndi fyrr á árum, en ég hef aldrei
komist lengra en eiga hagalagða.
Hinar myndirnar eru léttar stúdíur
og sannar.
Þá er nú höfðinginn sjálfur eftir og
leynir hann nokkuð á sér að þessu
sinni. Örn Ingi hefur nefnilega sjálf-
ur rennt alla hina prýðilegu blóma-
stjaka sem hafa kúgað borðin til
hlýðni við sig, því auðvitað eru þeir
ekkert annað en minning um borð-
fætur 18. og 19. aidar og segja ný-
tísku húsgögnum staðarins stríð á
hendur. Ennfremur á Örn þarna
ábúðarmikla skúlptúra á lítt áber-
andi stöðum, nema „Sunnudagur“
sem er iíka besta verkið. Um pastel-
myndir hans þarf ekki að fara mörg-
um orðum, þar lofar hver flöturinn
annan eins og venjulega. Já, það er
eins og myndir Arnar séu alltaf að
dást að sjálfum sér, svo að þær mega
vara sig á að líkjast ekki púðraðri
dömu.
Hver sýning í Laxdalshúsi stendur
hálfan mánuð og næstur er stórmeist-
arinn Hringur. En drífið ykkur að
sjá þetta á undan - volgur af lista-
söfnum erlendis og Listahátíð í
Reykjavík get ég fullyrt að nú er lag
í Laxdalshúsi.
Bændur
Þeir sem hyggja á heykögglun í sumar, vinsam
legast hafiö samband strax og eigi síöar en föstu
daginn 22. júní nk.
Stefán Þórðarson Teigi, sími 96-31126.
Umboðsmaður
Sími 26311.
■N
Símatímar: Mánudag kl. 11-12 og þriðjudaga,
miðvikudaga og fimmtudaga kl. 13-14.
— ..............................
Tilboð
á sjólaxi í dósum
Kynningarverð aðeins kr. 33,60 pr.
dós.
BLAÐAPRENTSMIÐJA
Tökum að
okkur
prentun á
blöðum og
tímaritum.
Leitið upplýsinga,
hringið í síma 24222
eða lítið við
á skrifstofunni
Strandgötu 31.