Dagur - 18.06.1984, Qupperneq 6
6 - DAGUR -18. júní 1984
Sigrar hjá
ÞórogKA
Ef marka má úrslitin í fyrstu leikjunum í
Nordur- og Austurlandsridli 1. deildar
kvenna í knattspyrnu kemur baráttan um
sigur í riðlinum til með að standa á niiili
Akureyrarliðanna KA og Þórs, cn sigur-
vegarinn í riðlinum leikur til úrslita um ís-
landsmeistaratitilinn við sigurvegarann í
Suður- og Vesturiandsriðli.
Fyrstu leikirnir í Norður- og Austur-
landsriðli voru háðir um helgina og fóru
báðir fram á Austuriandi. Á Egilsstöðum
léku Höttur og Þór, og vann Þór þar ör-
uggan 3:0 sigur. Það voru Sigurlaug Jóns-
dóttir, Anna Einarsdóttir og Þórunn Sig-
urðardóttir sent skoruðu mörk Þórs.
Á Stöðvarfírði léku hins vegar Súlan og
KA og þar vann KA átakalítinn 2:0 sigur.
Sóley Einarsdóttir skoraði bæði mörki
KA.
Holukeppni
á Húsavík
Golfarar á Húsavík hófu um helgina
keppni um Samvinnutryggingabikarinn.
Á laugardag léku þeir forkeppni og kom-
ust 16 bcstu áfram ■ holukeppni sem leik-
in er með útsláttarfyrirkomulagi.
Þeir tóku til við þá keppni í gær og er
nú að mestu ljóst hveijir leika í 8-manna
úrslitum. Það eru Ragnar Þ. Ragnarson,
Pálmi Þorsteinsson, Kristján Hjálmars-
son, Axel Reynisson, Magnús Andrés-
son, Pálmi Pálmason, Kristján Guðjóns-
son og annuð hvort Bjarni Steinsson eða
Karl Hannesson.
.....----------
Mark eftir
58 sek.
Það tók leikmenn Vorboðans aðeins 58
sekúndur að finna leiðina í net Æskunnar
er liðin léku í e-riðli 4. deildar un helgina.
Við þetta murk gjörsamlega sigu leik-
menn Æskunnar saman og eftirleikurinn
var uuðveldur fyrir Vorboðamenn sem
bættu fjórum mörkum við.
Annar leikur var í riðlinum, Tjörncs og
Árroðinn mættust i hörkuleik og Árroð-
inn sigraði með tveimur mörkum gegn
einu.
í d-riðli voru cinnig tveir leikir. Reynir
vann Geisla á Árskógsströnd 2:1 og á
Blönduósi vann Hvöt Skytturnar frá
Siglufirði með sömu markatölu.
Leiörétting
í KA-fréttum sem fylgdu með Degi sl.
miðvikudag urðu þau mistök er landsliðs-
menn KA voru taldir upp að nafn eins
þeirra gleymdist. Það var nafn Jakobs
heitins Jakobssonar, en hann lék lands-
leik árið 1961 og liefðu landsleikir hans
án efa orðið fleiri ef honum hefði enst
aldur. Beðist er velvirðingar á þessum
leiðu mistökum.
Þá urðu einnig þau mistök í KA-frétt-
um að Þóra fyrirliði kvennaliðs KA var
sögð Úlfsdóttir, en hún er Úlfarsdóttir.
Er Þóra beðin velvirðingar á mistök-
unum.
Völsungar
unnu ÍBV!
Völsungar voru ánægðir með
lífið er þeir yfirgáfu Vest-
mannaeyjar á laugardag, enda
með 3 stig í pokahorninu eftir
2:1 sigur gegn ÍBV. Óvænt
úrslit og reyndar gegn gangi
Ieiksins.
Helgi Helgason skoraði fyrsta
mark leiksins beint úr auka-
spyrnu í fyrri hálfleik en vara-
maður sem hafði komið inn á fyr-
ir Kára Þorleifsson jafnaði fyrir
leikhlé. í síðari hálfleiknum skor-
aði svo Olgeir Sigurðsson sigur-
mark Völsunganna beint úr horn-
spyrnu.
Samkvæmt heimildum okkar
áttu Vestmannaeyingarnir um
80% af leiknum og fengu mörg
góð marktækifæri. Völsungar
nýttu hins vegar þau færi sem
þeir fengu og tóku því öll stigin
þrjú. Þau koma sér eflaust vel og
það verður ekki spurt um það
hvernig þessi leikur hafi gengið
fyrir sig þegar upp verður staðið
í haust.
Hörður veikur
- en jafnaði
vikudag, síðan útileik gegn
Völsungi á laugardag og þá verða
Englendingarnir Colin og Darren
báðir með. „Þeir munu styrkja
lið okkar verulega," sagði Karl Hinrik Þórhallsson skorar fyrra mark KA, vamarmaður Þróttar saumar vel ac
KA betri aðilim
jafnaði þó tvívi
- KA-Þróttur 2:2
„Þetta var ekki góður leikur,
mikið hnoð og allt fremur
slakt,“ sagði Karl Pálsson for-
maður KS eftir 1:1 jafntefli KS
og UMFN í 2. deildinni á
Siglufirði um helgina.
KS-menn voru án síns mesta
markaskorara Óla Agnarssonar
sem var í leikbanni og Harðar
Júlíussonar sem var veikur en þó
á varamannabekknum. Hörður
kom inn á er stutt var til leiksloka
og hafði ekki verið inni á nema 2-
3 mínútur er hann jafnaði fyrir
KS.
Karl sagði að mikill hugur væri
í KS-mönnum, þeir eiga bikar-
leik heima gegn Völsungi á mið-
Auðvelt hjá
Magnamönnum
Magni vann öruggan sigur á
liði Hugins frá Seyðisfirði á
laugardaginn á Grenivík, úr-
slitin 3:1 og var sigur Magna-
manna aldrei í hættu.
Jón Ingólfsson - vítaspyrna -
og Heimir Ágústsson skoruðu
fyrir Magna í fyrri hálfleik og
staðan að honum loknum því 2:0.
í síðari hálfleik jók Jón Illugason
muninn í 3:0 en á lokakafla leiks-
ins náði Huginn að minnka mun-
inn í 3:1 en okkur tókst ekki að
grafa það upp í gær hver hafði
þar verið að verki.
Vallar-
metá
Húsavík
Golfarar á Húsavík eru fyrir
nokkru komnir á fulla ferð á
eftir kúlunum sínum og ef
marka má það sem af er verður
gróska hjá þeim í sumar.
Þeir Kristján Hjálmarsson og
Skúli Skúlason settu báðir vallar-
met á golfvelli þeirra Húsvíkinga
á dögunum. Skúli lék á 71 höggi
eða einu höggi undir pari vallar-
ins en Kristján gerði enn betur og
lék á 70 höggum. Eldra vallar-
metið var 72 högg og áttu það
þeir Jón Þór Gunnarsson, Þór-
hallur Hólmgeirsson og Kristján
Hjálmarsson.
„Mér fannst við ráða gangi
leiksins, en það er ekki nóg,
það þarf að skapa sér færi og
nýta þau,“ sagði Gústaf Baid-
vinsson þjálfari KA eftir 2:2
jafntefli KA gegn Þrótti á
laugardag. „Við vorum betri
aðilinn og ef eitthvað var átt-
um við að vinna,“ sagði
Gústaf.
- Þetta er annar leikur KA á
heimavelli sem endar 2:2 og í
bæði skiptin hefur KA-liðið átt
á brattann að sækja hvað marka-
skorun snertir. Víkingur komst
t.d. í 2:0 gegn KA og á laugardag
komust Þróttarar tvívegis yfir.
Fyrra mark þeirra kom á 4.
mínútu. Sending af vinstri
kanti fyrir KA-markið fór að
fjærstöng, þar á höfuð Arnars
Friðrikssonar sem var óvaldaður
og hann skallaði boltann niður í
grasið og inn yfir Þorvald. Áfall
fyrir KA-menn eftir gangi leiks-
ins fram að því.
Þróttarar sluppu svo heldur
betur fyrir horn á 18. mínútu.
Guðmundur Erlingsson mark-
vörður þeirra kastaði boltanum
út fyrir vítateig á Jóhann Hreið-
arsson og fór síðan út í teiginn.
_ Jóhann gaf hinsvegar boltann til
baka og hann stefndi í markið en
markstöngin varð fyrir og þar
sluppu Þróttarar með skrekkinn.
KÁ-menn tóku nú völdin
alveg, og mark hlaut að koma.
Áhorfendur vildu vítaspyrnu er
brotið var á Ásbirni á 27. mínútu
en Friðjón Hallgrímsson dómari
sá ekkert athugavert og víta-
spyrna hefði verið strangur
dómur.
1:1. - Sending frá Friðfinni
Hermannssyni inn í vítateig,
Mark Duffield skallaði boltann
áfram að markinu, þar tók Hin-
rik Þórhallsson við honum og
nikkaði honum laglega inn.
Á 34. mínútu var Friðjón Hall-
grímsson dómari illa á verði. Eft-
ir hornspyrnu KA var skotið að
marki Þróttar og Ársæll Kristjáns-
son varnarmaður varði með út-
réttri hendi í vítateignum. Ekk-
ert nema vítaspyrna og eitthvað
hlýtur að hafa hindrað útsýni
dómarans, svo augljóst var þetta.
Þróttarar tóku aftur forustu
gegn gangi leiksins á 55. mínútu.
Sending frá Páli Ólafssyni utan af
vinstri kanti að fjærstöng þar sem
Ásgeir Elísson „tók dýfu“ og
skallaði inn, einn og óvaldaður.
Nú vöknuðu KA-menn til lífs-
ins og sáu hvað var að gerast.
Ekki komu þó hættuleg tækifæri
frá þeim fyrr en 13 mínútur voru
til leiksloka og þá kom jöfnunar-
markið. Steingrímur Birgisson
með aukaspyrnu fyrir markið,
Mark skaut frá hinni hlið víta-
teigsins fyrir markið og Gústaf
Baldvinsson var á réttum stað og
hamraði boltann í netið með við-
komu í einum leikmanna Þróttar.
KA gerði harða hríð að marki
Þróttar undir lokin en án árang-
urs. KA var betri aðili leiksins
þótt liðið sýndi á köflum ekki
neina snilldartakta og það vantaði
þetta „netta“ spil sem skapar usla
og gefur marktækifæri.
Bestu menn KA í þessum leik
voru Friðfinnur Hermannsson og
Gústaf Baldvinsson, en Ásbjörn
Björnsson, Mark Duffield, Njáll
Eiðsson og Steingrímur Birgis-
son áttu góða kafla. Eitt þurfa
KA-menn að lagfæra, nöldur
innbyrðis inni á vellinum þegar á
móti blæs gefur aldrei árangur
nema síður sé, en það var áber-
andi hjá vissum mönnum er líða
Þorbergur tapaði
„Það klikkaði eitthvað núna,
ég veit ekki hvað það var,“
sagði Þorbergur Ólafsson golf-
leikarinn snjalli eftir að hafa
tapað keppninni um „Gull-
smiðabikarinn“ um helgina
fyrir Þórhalli Pálssyni, en
þetta mót er árlegur viðburður
hjá Golfklúbbi Akureyrar.
Þorbergur vann bikarinn í
fyrra og var í öðru sæti árið 1982
og einnig núna. Leiknar voru 36
holur með forgjöf og sigurvegari
varð Þórhallur Pálsson á 142
höggum. Þorbergur var á 143
og Magnús Gíslason var ekki
langt á eftir á 144 höggum. -
Gullsmiðirnir Sigtryggur og Pét-
ur gáfu verðlaun í mótið að
vanda.
Jafnhliða þessu móti fór fram
36 holu kvennakeppni og voru
leiknar 36 holur með forgjöf.
Erla Adolfsdóttir sigraði á 142
höggum, önnur var Inga Magnús-
dóttir á 152 höggum og Karólína
Guðmundsdóttir þriðja á 161
höggi. Konurnar kepptu um
verðlaun sem gefin voru af
Blómabúðinni Akri í Kaupangi.
Unglingarnir í Golfklúbbi
fengu einnig 36 holu mót og léku
þeir með forgjöf. Greinilegt er að
í þeirra hópi leynast mörg efni
því sigurvegarinn Sigurbjörn
Þorgeirsson lék á 121 höggi
nettó og á von á hressilegri for-
gjafarlækkun. Magnús Karlsson
varð annar á 125 höggum sem
einhvern tíma hefði nægt í efsta
sætið og Aðalbjörn Pálsson varð
þriðji á 135 höggum. Efnilegir
piltar þetta og þeir leynast fleiri
hjá GA og eiga eftir að láta að
sér kveða.