Dagur - 18.06.1984, Blaðsíða 7

Dagur - 18.06.1984, Blaðsíða 7
18. júní 1984-DAGUR-7 Markalaust jaf ntef I i -hjá Þór og ÍBK ) honum, en markið var staðreynd. Mynd:KGA. i en egis! tók á síðari hálfleik. Þróttarar léku hvorki betur eða verr en þeir hafa gert að undanförnu að sögn Ásgeirs Elís- sonar þjálfara og „primus motor“ liðsins og það eitt sýnir að KA hefði átt að ráða við þá. Sama lið lék fyrir KA og í fyrri leikjum nema að Bjarni Jónsson kom inn fyrir Hafþór Kolbeinsson sem er tognaður. „Þetta var afar lélegt af okkar hálfu, ekki heil brú í þessu á köflum og við getum miklu meira og höfum sýnt það,“ sagði Bjarni Sveinbjörnsson Þórsari eftir 0:0 jafnteflisleik Þórs og ÍBK á föstudagskvöld. Þórsurum tókst sem sagt ekki að stöðva Keflvíkingana sem höfðu forustu í 1. deild er 7. umferð mótsins hófst. Leikurinn þróaðist upp í eitt allsherjar miðjuþóf þar sem hvorki gekk né rak tímunum saman og liðin komust lítt áleiðs. Ekki vantaði baráttuna og lætin en minna fór fyrir því sem fólkið vill sjá, spili og mörkum. Þó komu nokkur marktækifæri og bæði liðin fengu eitt dauðafæri í fyrri hálfleik. Gísli Eyjólfsson miðvörður Keflvíkinga komst einn inn fyrir vörn Þórs sem var á kafi í „rangstöðupælingum“ en skaut laflausu skoti framhjá, og Óli Þór Magnússon slapp inn fyrir vörn ÍBK. Hann ætlaði að vippa boltanum framhjá Þorsteini Bjarnasyni sem sá hins vegar við honum og bjargaði vel. Þegar nokkuð var liðið á síðari hálfleikinn tóku Þórsarar frum- kvæðið í sínar hendur að mestu. Aldrei tókst þeim þó að rjúfa al- gjörlega sterkan varnarmúr ÍBK en reyndu þess í stað langskot. Þannig átti Guðjón Guðmunds- son tvö slík rétt yfir og Kristján Kristjánsson eitt. Þá fékk Óli Þór tækifæri til að skora eftir send- ingu Kristjáns, en færið var þröngt og Þorsteinn kom vel út úr markinu og bjargaði snilldarlega. Á síðustu sek. leiksins fékk Bjarni Sveinbjörnsson svo send- ingu inn í vítateig ÍBK, hann tók boltann og skaut en hitti illa og Guðjón Guðjónsson komst á milli. Áð vísu fór boltinn framhjá Þorsteini Bjarnasyni markverði en það fylgdi enginn eftir þannig að Þorsteinn gat „labbað" sig eftir honum. Þórsliðið var fremur slakt í þessum leik. Að vísu var þokka- leg barátta í liðinu en það spilaði allt of þrönga knattspyrnu og „Við erum mjög ánægðir eins og er en það er langt eftir þangað til línur fara að skýrast. Við höfum verið í vandræðum með að skora mörk en ef til vill erum við búnir að yfirvinna það vandamál með þessum sigri,“ sagði Jóhann Helgason formaður knattspyrnudeildar Leifturs er við ræddum við hann eftir sigurleik Leifturs gegn Austra um helgina. Það er greinilegt að Kristinn Björnsson er á réttri leið með Leiftursliðið þótt Kristinn - þessi mikli markaskorari - hafi enn nýtti t.d. hægri kantinn nánast ekkert. Bestu menn Þórs voru Óskar Gunnarsson sem var lang bestur og Halldór Áskelsson sem átti mjög góða kafla og sýndi margt laglegt. Keflvíkingarnir voru með þá Valþór Sigþórsson og Guðjón Guðjónsson í vörninnni sem bestu menn og Þorsteinn í markinu virkaði öryggið uppmál- að er á hann reyndi. ekki fundið leiðina í netmöskva andstæðinganna. Leiftur hafði mikla yfirburði í þessum leik og mörk þeirra gerðu fyrirliðinn Guðmundur Garðars- son sem er betur þekktur sem skíðagöngumaður en knatt- spyrnukappi, Hafsteinn Jakobs- son og Halldór Guðmundsson. Leiftur hefur nú góða forustu i b-riðli 3. deildar, hefur 10 stig eftir 4 leiki og markatalan er 7:2. Gott hjá liði sem er að koma upp úr 4. deild. Leiftur sigrar ...nú Austra 3:0 Tinda- stóll vann á Vopna- firði Tindastóismenn gerðu góða ferð til Vopnafjarðar um helg- ina er þeir léku Jþar gegn Ein- herja í 2. deild Islandsmótsins í knattspyrnu. Ekki byrjaði leikurinn þó vel fyrir Tindastól því Kristján Davíðsson skoraði fyrsta markið fyrir heimaliðið. En Tindastóls- menn gáfust ekki upp og svar þeirra við þessu marki var stór- brotið, eða fjögur mörk til baka. Sigurfinnur Sigurjónsson var hetja Tindastólsmanna og skor- aði 3 marka liðsins en það fjórða gerði Elvar Grétarsson. Mjög mikilvægur sigur Tindastóls og liðið sigraði þarna í annað skiptið í 6 leikjum og krækti í 3 stig. Mynd: KGA. Hit Óli Þór í góðu færi, en Þorsteinn kemur vel á móti og nær að góma knöttinn. STAÐAN i.i leild Staðan í 1. deild íslandsniótsins í knatt- | spymu er mi þessi: Fram-Víkingur 1:2 GBK-Valur 1:2 j Akranes-KR 2:0 Þór-ÍKK 0:0 KA-Þróttur 2:2 Akranes 7 5 11 12:4 16 Keflavík 7 4 3 0 7:3 15 Þróttur 7 2 4 1 9:6 10 Víkingur 7 2 4 1 11:10 10 KA 7232 11:11 9 Fram 7 2 1 4 8:10 7 Þór 7 2 1 4 7:11 7 Valur 7 1 3 3 4:6 6 KR 7 1 3 3 7:13 6 UBK 7 1 3 3 5:7 6 2. deild i Staðan í 2. deild íslandsmótsins í knatt- 1 spyrnu er nú þessi: UMFN-ÍBV 0:1 UMFS-FH 0:1 Víðir-ÍBÍ 2:2 KS-UMFN 1:1 ÍBV-Völsungur 1:2 Einherji-Tindastóll 1:4 FH 6 5 10 14:3 16 Völsungur 6 4 11 11:6 13 UMFN 6 3 1 2 6:4 10 KS 5 2 2 1 8:5 8 UMFS 6 2 2 2 9:7 8 ÍBÍ 6213 11:12 7 ÍBV 5 13 1 7:7 6 Tindastóll 6 2 0 4 8:16 6 Víðir 6 1 2 3 6:12 5 Einhcrji 6015 5:13 1 3. deild b Staðan í b-riðli 3. deildar íslandsmótsins í knattspyrnu er nú þessi: Valur-Þróttur 2:4 Leiftur-Austri 3:0 Magni-Huginn 3:1 Leiftur 4 3 1 0 7:2 10 Þróttur 4 2 2 0 10:6 8 Magni 5 2 2 1 8:6 8 Austri 5 13 1 6:6 6 HSÞ b 4 12 1 5:5 5 ' Huginn 4 0 2 2 5:8 2 Valur 4 0 0 4 2:10 0 4. d eild d Staðan í d-riðli 4. deildar islandsmótsins * | í knattspymu er nú þessi: | Reynir-Gcisli Hvöt-Skytturnar 2:1 2:1 Rf ynir 3 3 0 0 14:1 9 Skytturnar 3 1 0 2 8:9 3 Hvöt 2 10 1 2:9 3 Geisli 10 0 1 1:2 0 Svarfdælir l 0 0 l 3:7 0 4. deild e Staðan í e-riðli 4. deildar íslandsmótsins í knattspyrnu er nú þessi: Tjörnes-Árroðinn 1:2 Vorboðinn-Æskan 5:0 Vaskur 2 2 0 0 7:3 6 Vorboðinn 3 1 1 1 6:4 6 Árroðinn 3 111 4:5 4 Tjörnes 2 10 1 4:2 3 Æskan 2 0 0 2 2:9 0 Mörg mörk á Reyðarfirði Valur á Reyðarfirði og Þróttarar frá Neskaupstað léku hörkuleik í b-riðli 3. deildar á laugardaginn á Reyðurfirði og fengu áhorfendur að sjá 6 mörk. Þróttar- ar skoruðu 4 þeirra og uunu því 4:2. 1 Þeir komust í 2:0, Valur minnkaði 1 1 inuninn í 2:1, þá kom 3:1 og aftur minnk- | 1 aði Valur muninn í 3:2 en Þróttarar inn- | I sigluðu sigur sinn með lokamarkinu. 1 Markaskorarar í þessum leik voru £ p Kristján Kristjánsson 2, Páll Freysteins- i u son og Ólafur Viggósson fyrir Þrótt, en | ! fyrir Val Ólafur Sigmarsson og Gauti f | Marinósson. i

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.