Dagur - 18.06.1984, Qupperneq 11
18. júní 1984- DAGUR - 11
Minning:
Brynjar Valdimarsson
læknir
Yfir bjartan vordaginn brá myrk-
um skugga þegar fregnin barst
um andlát hans. Tóm og tregi
urðu gagntakandi, - líkt og þegar
strengur hrekkur óvænt af hörpu
og þögnin ríkir. Dómur var
fallinn, sá er eigi varð áfrýjað.
Valdi örlaganna, sem felst í vissu
lögmáli fær enginn hnekkt. Mig
snerti þetta eins og þungi sviplegs
höggs. En þegar tekist hafði að
vinna sig frá sárustu áhrifum
hinnar bitru staðreyndar, liðu
minningarnar fram, í mildu skini.
Ég nam staðar við orð Brynj-
ars Valdimarssonar, sem hann lét
falla í fallegu kveðjuávarpi til
yfirlæknishjónanna Snorra Olafs-
sonar og Valgerðar Björnsdótt-
ur, þann 1. nóvember árið 1976.
Hann sagði m.a. „Það var
1959, ég var þá reynslulítill
læknanemi í atvinnuleit. Ég hafði
hlerað að aðstoðarlækni vantaði
að Kristnesi um sumarið. Herti
ég þvt upp hugann og lagði leið
mína upp á Berklavarnarstöð
Akureyrar, þar sem Snorri Ólafs-
son vann. Þar var yfirlæknirinn á
sínum stað.
Tók hann erindi mínu ljúf-
mannlega en sennilega hefur
hann viljað hafa vaðið fyrir neð-
an sig. Taldi hann óvíst að sig
vantaði mann nema um tveggja
vikna skeið, og þann tíma vildi
hann gjarnan ráða mig. Þessi
hálfi mánuður er nú orðinn meira
en sautján ár, með litlum
hléum.“ Því má hér við bæta að
samstarf þeirra Snorra Ólafsson-
ar og Brynjars Valdimarssonar
var alla tíð með miklum ágætum,
og til sannra heilla fyrir Kristnes-
hæli.
Man ég gjörla þann sumardag
1959, þegar hinn ungi læknanemi
kom að Kristneshæli til að hefja
þar starf. Ýmsir þeirra, sem
dvöldust á hælinu eða unnu þar,
þekktu Brynjar frá uppvaxtarár-
um hans á þessum slóðum, og
veltu því ekki vöngum yfir hversu
hann myndi reynast. Það vissu
þeir fyrir. Við hin, sem vorum
framandi spáðum svolitlu um
hvernig myndi verða að njóta
F. 19. júní 1930 - D. 26.
þjónustu hans og deila við hann
geði. En frá fyrstu stundu leist
okkur hann giftusamlegur í hví-
vetna, - og það varð bjart í hug-
um okkar.
Nánari tengsl og kynni skópu
hylli og fyllsta traust. Það var því
gleðiefni þegar Brynjar varð fast-
ráðinn læknir að ÍCristneshæli og
hóf þar sitt aðalstarf árið 1962,
hverju hann síðan gegndi óslitið
að hinsta degi, utan eitt ár á
Borgarspítalanum. Frá síðustu
áramótum var Brynjar yfirlæknir
haélisins. Það var mikil gifta fyrir
hælið að hann skildi helga því
lífsstarf sitt sem sárt er, að nú
skuli vera lokið sökum hinnar ó-
tímabæru brottfarar hans af þess-
um heimi.
Við missi Brynjars Valdimars-
sonar fer harmur um hugi allra,
sem áttu hann að. Margir munu
sakna vinar í stað og autt rúm
hans verður vandskipað. Minn-
ingarnar streyma fram í hugann.
Eigi mun síðasti samfundur okk-
ar Brynjars læknis hyljast
gleymskumóðu á næstu dögum.
Hann átti sér stað á yfirstandandi
fagra vori.
Ég vildi hitta hann áður en ég
bjóst í för til Reykjavíkur vegna
lækniserinda. Við ræddum all-
lengi saman m.a. um félagsmál
ýmis varðandi hælið, og ákváðum
að ræða þau mun betur sem fyrst
er ég kæmi aftur norður. Brynjar
bætti því við kveðju sína og góð-
ar óskir, að ég léti hann vita, ef
hann gæti greitt götu mína í
sambandi við erindi mitt syðra.
Slíkt var vel þegið veganesti og
síst kom mér þá í hug að við vær-
um að skiptast á orðum í hinsta
sinn. Þegar ég lít yfir farinn veg
verður mér fullljóst, að ég á
Brynjari Valdimarssyni stóra
þökk að gjalda, sem einum af
læknum mínum fyrr á dögum og
fyrir þá góðu þjónustu sem hann
veitti nánum vandamönnum mín-
um á erfiðri reynslutíð. Einnig
minnist ég með þökk samstarfs í
félagsmálum í seinni tíð, og
margra samræðna sem ætíð urðu
til að byggja upp, bæta og bregða
maí 1984
birtu á veg.
Með Brynjari er hollvinur
horfinn og hann veröur ávallt í
vitund minni á meðal hinna mæt-
ustu manna. Allt hneig að einu
með að skapa hann slíkan sem
hann var, svo frábærlega vandað-
an traustan og mörgum ágætum
hæfileikum gæddan: Eðlishneigð,
ættarerfð og uppeldi. Hann var af
góðum stofnum. Foreldrar hans
Valdimar Antonsson frá Finna-
stöðum í Hrafnagilshreppi og Ás-
laug Jóhannsdóttir frá Garðsá í
Öngulsstaðahreppi einkenndust af
sæmdarmennsku og skópu hið
menningarríkasta heimili.
Hann unni æskuheimili og átt-
högum heilshugar og mun að ég
hygg hvergi hafa fundið sig til
hlítar utan í faðmi eyfirskrar
byggðar. Hann unni starfi sínu og
rækti af fyllstu alúð og trúfesti
það hlutverk varðandi Kristnes-
hæli, sem honum var á hendur
falið og átti einlægar óskir um að
þar mættu mál öll skipast sem
best.
í öllu var hann heill og sannur.
Útför Brynjars læknis fór fram
frá Akureyrarkirkju að við-
stöddu fjölmenni, þann 5. júní sl.
Veður var sem fegurst getur orð-
ið á vori, geislandi sólskin og un-
aðshlýtt. Og allt umhverfis ang-
aði og brosti gróðurinn.
Óskir hans höfðu hnigið að
því, að fá að kveðja heim tímans
á slíkum degi - í slíkri fegurð. Og
sú uppfylling óska var veitt.
Hugheilar þakkir fyrir það allt,
sem hann var og vann fylgja hon-
um til sólarlanda inn í víðerni
þess vors, sem eigi fær brugðist.
Eiginkonu Brynjars, Dagbjörtu
Emilsdóttur börnum þeirra,
Guðmundi Hrafni og Áslaugu
Herdísi, systkinum hans og
öðrum ástvinum sendi ég innileg-
ustu samúðarkveðjur. Þau hafa
mikils að sakna, en björt minning
býr þeim í muna - auðlegð rík
sem eigi slær fölskva yfir.
Jórunn Ólafsdóttir,
frá Sörlastöðum.
brauðið frá okkur er
Nýtt, gott
og
heilnæmt.
Einnig minnum
okkar sem
kannast vi«
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 128., 130. og 133. tbl. Lögbirtingablaðsins
1983 á fasteigninni Birkilundi 10, Akureyri, þingl. eign Guð-
björns Þorsteinssonar, fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar
ríkisins, Akureyrarbæjar og Gunnars Sólnes hrl. á eigninni
sjálfri föstudaginn 22. júní 1984 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 71., 73. og 76. tbl. Lögbirtingablaðsins 1983
á fasteigninni Ártröð 5, Hrafnagilshreppi, þingl. eign Halldórs
Sigurgeirssonar, fer fram eftir kröfu Björns J. Arnviðarsonar
hdl., Olafs B. Árnasonar hdl. og Hreins Pálssonar hdl. á eign-
inni sjálfri föstudaginn 22. júní 1984 kl. 13.40.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 109., 112. og 114. tbl. Lögbirtingablaðsins
1983 á fasteigninni Aðalstræti 13, hluta, Akureyri, þingl. eign
Maríu Magnúsdóttur, fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar
ríkisins á eigninni sjálfri föstudaginn 22. júní 1984« kl. 13.20.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 128., 130. og 133. tbl. Lögbirtingablaðsins
1983 á fasteigninni Furuvöllum 7, Akureyri, þingl. eign Vagns-
ins sf., fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs og Ara
Isberg á eigninni sjálfri föstudaginn 22. júní 1984 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 128., 130. og 133. tbl. Lögbirtingablaðsins
1983 á fasteigninni Grundargerði 6e, Akureyri, þingl. eign
Karls F. Magnússonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns
ríkissjóös á eigninni sjálfri föstudaginn 22. júní 1984 kl. 16.20.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 108. og 113. tbl. Lögbirtingablaðsins 1980
og 3. tbl. 1981 á fasteigninni Birkilundi 18, Akureyri, þingl. eign
Frtmanns Gunnlaugssonar, fer fram eftir kröfu Tómasar Þor-
valdssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 22. júní 1984 kl.
14.20.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Umboðsmenn Dags
Siglufjöröur:
Blönduós:
Ólafsfjörður:
Hrísey:
Dalvík:
Grenivík:
Húsavík:
Mývatnssveit:
Köpasker:
Raufarhöfn:
Matthías Jóhannsson, Aðalgötu 5, sími 71489.
Guðrún Jóhunnsdöttir, Garðabyggð 6, sími 4443.
Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, simi 62308.
Heimir Áslaugsson, Norðurvegi 10, sími 61747.
Gerður Jónsdóttir, Miðtúni, sími 61247.
KjartanH. Pálmarsson, sími33112.
Hafliði Jóstcinsson, Garðarsbraut 53, sími 41765.
Þuríður Snæbjörnsdóttir, sími 44173.
Sólveig Tryggvadóttir, Akurgerði5,sími52145.
Friðmundur H. Guðmundsson, sími 51225.