Dagur - 18.06.1984, Síða 12

Dagur - 18.06.1984, Síða 12
MONRO-MATIC ® SHOCK ABSORBER HÖGGDEYFAR í FLESTA BÍLA Sigríður Halldórsdóttir og Sigríður Björnsdóttir, sundlaugarverðir á Raufarhöfn. Mynd: KGA. Raufarhöfn: sundlaugin mikla lukku Æfingasvæði fyrir veiðimenn Stjórn Veiðifélags Eyjafjarðarár barst í vor beiðni frá fulltrúa bæjarstjórnar Akureyrar í stjórn- inni um leyfi til að opna æfinga- svæði fyrir stangveiðiáhugafólk í bæ og byggð. Svæðið yrði afmarkað og merkt, ca. 200 m , á eystri bakka vestustu kvíslar, á óshólma neð- an brúar. Stjórn Veiðifélagsins hefur orðið við þessum tilmælum, enda verði ekki notuð beita. Nánari reglur verða á leiðbciningaspjaldi á staðnum, og vciðivörður mun fylgjast með að þeim vcröi framfylgt. Frá stjórn Veiðifélags Eyjafjarðarár. Margir bílar óskoðaðir: Lögreglan til með klippumar „Nú verða þeir að fara að skoða sinn gang, sem enn eru með óskoðaða bíla og ætla sér að aka þeim lengur, því klipp- urnar eru ti)búnar,“ sagði Árni Magnússon, varðstjóri hjá Ak- ureyrarlögreglunni, í samtali við Dag. Aðalskoðun bifreiða á Akur- eyri lauk á föstudaginn, en enn er eftir að færa margar bifrciöir með A-númeri til skoðunar. Eins og fram kom hjá Árna mega eigend- ur þeirra fara að vara sig, því næstu daga verða óskoðaðar bif- reiðar teknar úr umferð þar scm til þeirra næst og númerin klippt af þeim. Eina ráðið til varnar er aö bregða undir sig betri fætinum hið skjótasta, stökkva upp í bif- reiðina og t'æra hana síðan á lög- legum hraða til skoðunar. - GS Nýja gerir Fyrir skömmu var formlega tekin í notkun sundlaug á Raufarhöfn, en þar hefur ekki áður verið að- staða til sundiðkunar. Raufar- hafnarbúum hefur þó verið kennt að synda í gegnum árin þrátt fyrir sundlaugarleysið en hafa þurft að ferðast um langan veg í því skyni. Einkum hefur verið farið að Laugum, en einnig að Lundi í Stjórn Útgerðarfélags Akureyr- inga hf. hefur ákveðið að stöðva ekki togara félagsins að svo stöddu, en „þrauka enn um hríð“, í trausti þess að stjórnvöld taki á þeim vanda sem útgerðin á við að glínta. Þetta kemur fram í frétt frá félaginu sem hér fer á eftir. Kelduhverfi. Með tilkomu nýju sundlaugarinnar, sem er steypt og um 16 m löng mun hagur bæjarbúa vænkast mjög enda ekki annað að sjá en æskan tæki þessari nýbreytni í bæjarlífinu ákaflega vel og skemmti sér hið besta er tíðindamenn Dags litu á veglega sundlaugarbygginguna. Áður en laugin var formlega tekin í notkun var búið að halda Af því tilefni að Austfirðingar hafa boðað stöðvun veiðiflota síns þann 24. júní nk. og leitað er viðbragða annarra útgerðaraðila við þeirri ákvörðun, gerir stjórn Útgerðarfélags Akureyringa hf. svofellda ályktun: Stjórnin leggur áherslu á þann vanda sem útgerð og fiskvinnsla búa við í dag, m.a. vegna óhag- þar þriggja vikna sundnámskeið með góðum árangri og miklum áhuga. Sundlaugarverðir eru Sigríður Helgadóttir og Sigríður Björns- dóttir og sögðu þær að mjög margir hefðu heimsótt laugina fyrsta opnunardaginn. Krakkar eru í miklum meirihluta að deg- inum, en fullorðna fólkið kemur meira á morgnana og kvöldin. mþþ stæðrar aflasamsetningar og sér ekki að breyting verði til batnað- ar ef ekkert verður að gert, miklu fremur að ástandið versni vegna aukins tilkostnaðar, t.d. hækkaðs olíuverðs. Verður ekki undan því vikist af hálfu stjórnvalda að gera einhverjar þær ráðstafanir, sem koma f veg fyrir að veiðar og vinnsla stöðvist. Stjórnin telur Rólegheit á Akureyri og Húsavík - en nóg að gera hjá lögreglu á Sauðárkróki Hátíðarhöldin 17. júní á Akur- eyri fóru mjög vel fram að sögn lögreglunnar. Mikið fjölmenni var við hinar ýmsu skemmtanir í miðbænum en allt fór vel fram og ekki var meiri ölvun en um venju- lega helgi að sögn lögreglu. Eitthvað var um að „Stútur væri við stýrið“ og voru nokkrir öku- menn færðir til blóðtöku af þeim sökum. Þá var eitthvað um rúðv.brot í miðbænum en ekki meira en gerist og gengur um venjulega helgi. Sömu sögu er 'að segja frá Húsavík. Þar fóru hátíðarhöldin mjög vel fram að sögn lögreglu og var lítil ölvun í bænum og ekk- ert kom upp á sem lögreglan þurfti að hafa afskipti af. En á Sauðárkróki var annað uppi á teningnum. Þar var mikil ölvun alla helgina að sögn lög- reglu og tvívegis urðu fanga- geymslur lögreglunnar fullar og varð að flytja menn í geymslu á Blönduós. Tvö umferðaróhöpp urðu. Á föstudagskvöld var ekið á mann á hesti í Blönduhlíð en hann meiddist lítið. í gærmorgun var bifreið svo ekið á ljósastaur í bæn- um. Bíllinn er ónýtur og tveir far- þegar í aftursæti meiddust. Annar skarst nokkuð illa en hinn tapaði hluta af tönnum sínum. Oku- maðurinn er grunaður um ölvun. gk-- þó að ekki beri að stöðva togara félagsins áð svo stöddu heldur reynt að þrauka enn um hríð, meðan lánastofrianir taka ekki í taumana. Er sú ákvörðun tekin í fullu trausti þess að stjórnvöld taki á vandanum og að félagið verði ekki látið gjalda þessa, því vandinn er engu minni hér um slóðir en austanlands. Þraukum enn um hríð - segir stjórn Útgerðafélags Akureyringa um togaraútgerðina Spáð er suðvestlægri átt, sem þegar er komin, og bjartviðri á Norðurlandi. Ekki eru fyrirsjáanlegar neinar breytingar næstu daga og hitastigið verður um 10-15 gráður að deginum. • Með „hefð- bundnum“ hætti Hátíðarhöldin á Akureyri 17. júní fóru fram með „hefð- bundnum hætti“, eins og gjarnan er sagt. Margir velta því eflaust fyrir sér, hvort ekki sé kominn tími til að breyta ögn út af venjunni, þar sem sýnt er að stór hluti af því efni sem boðið var upp á fór fyrir ofan garð og neðan hjá þorra hátíðargesta. Sér- staklega virtust börnin lítið spennt fyrir því sem þeim var ætlað. Ræningjarnir frá Karde- i mommubæ náðu að vísu athygli barnanna, en þar með er það líka upptalið, og öllu má nú ofgera. Þeir komu fram á barnaskemmtunum við Glerárskóla, Lundar- skóla, Oddeyrarskóla og loks á Ráðhústorgi. Og svo var það break-dans og aftur break-dans, eða þá afbrigði við break-dans. Toppurinn á skemmtidagskrá kvöldsins var svo Hallbjörn, sem gert hefur Skagaströnd fræga. Hann söng fjögur lög og eitt þeirra meira að segja í þrígang. Það hefur víst ekki farið framhjá Akureyringum að haldin var bílasýning á lóð- inni við Oddeyrarskóla 17. júní, í gær. Dagana á undan höfðu þeir sem að þeirri sýn- ingu stóðu ekið um bæinn með gjallarhorn þar sem þeir auglýstu sýninguna af mikl- um móð. En ( gær skutu þessir menn yfir markið. Þeg- ar þulurlnn á hátíðarsamkomu þjóðhátfðarnefndar á íþrótta- vellinum var að kynna flug- sýningu sem fara átti að hefj- ast komu bilamennirnir ak- andi eftir Glerárgötunni með gjallarhornið í botni og aug- lýstu grimmt sína samkomu. Yfirgnæfðu þeir alveg kynn- inn á íþróttavellinum og fór því kynning hans að mestu framhjá fjölmörgum áhorf- endum þar. Þetta heitir víst að vera tillitslaus. # Hressileg dagskrá Sjónvarpið sýndi okkur hins vegar létta og hressilega þjóðhátíðardagskrá í gær- kvöld, sem leikarar hjá Leikfélagi Reykjavfkur fluttu fyrr um daginn á Arnarhóli. Elnnig voru „myndleiftur úr íslenskri lýðveldissgu“ um margt fróðieg. Sérstaklega var gaman að sjá myndbrot frá löngu liðnum tíma.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.