Dagur - 20.06.1984, Síða 1

Dagur - 20.06.1984, Síða 1
 FILMUmúsib AKUREYRI 67. árgangur Akureyri, miðvikudagur 20. júní 1984 69. tölublað A fimmta tímanum í gær var slökkviliðinu tilkynnt um eld í rusli við Bókabúðina Huld. Greiðlega gekk að slökkva og lítið sem ekkert um skemmdir. Mynd: KGA. Sauðárkrókur: Fleiri í fangageymslu en allt árið í fyrra — og margir teknir grunaðir um ölvun við akstur „Það hefur verið talsverður órói hérna undanfarnar 3 helg- ar og mikil ölvun,“ sagði Björn Mikaelsson yfírlögregluþjónn á Sauðárkróki í samtali við Dag eftir helgina. Björn sagði að þeir hefðu margfyllt fangageymslur sínar undanfarnar helgar og væri nú svo komið að fleiri hefðu fengið „gistingu“ hjá þeim en allt árið í fyrra. Pá sagði Björn að ölvun við akstur hefði færst mjög í auk- ana og styttist í það að jafnmargir hefðu verið teknir grunaðir um ölvun við akstur og allt síðasta ár. Björn sagði að eftirlit með ölv- unarakstri væri ekki meira en verið hefði undanfarin ár. „Við erum með „tékk“ um hverja helgi og það má e.t.v. segja að þetta sé kerfisbundnara eftirlit en verið hefur,“ sagði hann. gk-. Fastráðinn fréttamaður á Norðurlandi - frá fréttastofu lítvarpsins Nú hefur verið afráðið að fréttastofa hljóðvarpsins komi sér upp fastráðnum frétta- manni á Norðurlandi með að- setri á Akureyri. Til starfans hefur verið ráðin Erna Indr- iðadóttir, sem starfað hefur á fréttastofunni um nokkurra ára skeið. „Ég reikna með að byrja í nóv- ember og verð að segja eins og er að mér finnst ákaflega spennandi að flytja norður og líst vel á það í alla staði. Þarna er margt að gerast og ekki sakar að staðurinn er fallegur," sagði Erna þegar Dagur innti hana álits á þessu. „Það er langþráð takmark sem næst með því að ráða fréttamann í fullu starfi hjá Akureyrardeild útvarpsins og ég vænti mjög mik- ils af þessu,“ sagði Margrét Indr- iðadóttir, fréttastjóri útvarpsins. HS Netanela syngur a Akureyri Sænska þjóðlagasöngkonan Netanela sem vakti geysilega hrifningu á Listahátíð í Reykjavík á dögunum mun skemmta Akureyringum í kvöld og annað kvöld, og er söngur hennar eina atriðið frá Listahátíð sem flutt verður á Norðurlandi. stendur hefur hún aðsetur í Svíþjóð. Á sunnudagskvöld mun hún syngja í Húsavíkurkirkju. Netanela mun syngja í Lax- dalshúsi í kvöld kl. 20.30 og á sama tíma annað kvöld í Akur- eyrarkirkju. í Laxdalshúsi flytur hún þjóðíög, jazz og blues, en á tónleikunum í Akureyrarkirkju negrasálma og gospel-tónlist. Eins og fyrr sagði fékk Netan- ela geysigóðar viðtökur á Lista- hátíð og sögðu gagnrýnendur t.d. að sama hefði verið hvar hún bar niður: „Öllum viðfangsefnum sín- um skilaði hún af mikilli prýði. Sumum hreinlega frábærlega.“ Netanela hefur fram að þessu verið óþekkt söngkona hér á landi. Hún fæddist í Sovétríkjun- um en fluttist ung til Kanada þar sem hún ólst upp. Hún hefur sungið víða um heim en sem Netanela. Piper Chieftain vél FN hlekktist á í aðflugi: Reynt veröur að fIjúga vélinni til Akureyrar „Eftir því kynnt var í byrjun þá var það misvindi og niðurstreymi þarna við flugvöllinn sem olli þessu,“ sagði Jóhannes Foss- dal hjá Flugfélagi Norðurlands er við spurðum hann hvað hefði valdið því að Piper Chieftain vél félagsins hlekkt- ist á í Iendingu á Bíldudal á mánudagsmorgun. Vélin átti ekki eftir nema nokkra metra í flugbrautina þegar hún fékk slg „hnut” og flugmanninum Baldri Þorsteinssyni tókst ekki að afstýra því að vélin skylli niður rétt við enda flugbraut- arinnar. í vélinni voru 6 farþegar, starfsmenn Híbýlis hf. á Akur- eyri sem voru að fara til vinnu á Bíldudal en engan þeirra sakaði. Við spurðum Jóhannes hvort vél- in væri mikið skemmd. „Hún er sjálfsagt töluvert skemmd en það fara flugvirkjar frá okkur vestur á morgun til þess að reyna að gera við hana þannig að það megi fljúga henni heim. Hún er alls ekki jafn mikið skemmd og vélin sem hlekktist á í lendingu í Ólafsfirði í vetur. Við teljum æskilegra að reyna að fljúga henni heim fremur en taka hana í sundur fyrir vestan og setja hana í skip og fullnaðarvið- gerð mun svo fara fram hér. En það kemur ekki í ljós endanlega með skemmdirnar fyrr en flug- virkjarnir eru búnir að skoða vélina." - Hefur þetta ekki talsverð áhrif á ykkar rekstur nú á há- annatímanum? „Það fer ekki hjá því að þetta kemur sér illa á þessum tíma því það tekur tíma að laga vélina þótt hún sé ekki meira skemmd en bestu vonir gefa manni. Það verður annað hvort leigð vél eða keypt ef hún verður lengi frá þessi.“ - Hafið þið ekki verið í þeim hugleiðingum að kaupa svona vél þótt þetta hefði ekki komið til? „Jú, og við erum með nokkrar vélar í sigtinu sem eru til sölu. Það er ekki erfitt að fá svona vél en það tekur sinn tíma að koma því í gegnum bankakerfið og þess háttar.“

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.