Dagur - 20.06.1984, Side 8

Dagur - 20.06.1984, Side 8
8 - DAGUR - 20. júní 1984 Fjölbreyttir réttir á útigrillið * Ódýr grillkol Kjörbúð KEA ^ Byggðavegi 98 Jj Þorgrímur og Haukur veifa aflanum stoltir. KGA. Aðalfundur Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. verður haldinn á Hótel KEA mánudaginn 2. júlí nk. kl. 13.30. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar og reikningar sl. árs. 2. Hlutafjáraukning, samanber tillögur nefndar sem skipuð var á sl. aðalfundi til að fjalla um eflingu iðnþróunar í byggðum Eyjafjarðar. 3. Kosning stjórnar og endurskoðun. 4. Önnur mál. Stjórnin. „Borðum bara ýsu og lúðu“ í sjávarplássum út um allt land er hringiða mannlífsins sögð vera bryggjan á staðnum. Þar er alltaf eitthvað um að vera. Samt sem áður er ævin- lega fremur lítið um kvenfólk á bryggjunni, þar eru karl- menn í meirihluta. Af hverju ætli það sé? Af hverju fara litl- ar stelpur ekki niður á bryggju með veiðistöng og dorga eins og strákar? Svar óskast. En þetta var bara smá útúrdúr, líf- ið snýst um fisk og kvóta og meiri físk og meiri kvóta. Þannig er það á Þórshöfn eins og víðar og þótti tíðinda- mönnum Dags því við hæfí að bregða sér niður á bryggju staðarins er þeir voru þar á ferðinni. Þar voru tveir guttar með stöng og kváðust heita Haukur Pálsson og Þorgrímur Kjartansson og vera 9 ára. - Búnir að veiða mikið strákar? Nýjung: Stöðvum alkalískemmdir! ★ Múr- og steypuviðgerðir. ★ Sprunguviðgerðir. ★ Bárujárnsþéttingar. ★ Bárujárnsryðvarnir. Sprunguviögerðir meö efni sem stenst vel alkalí, sýru- og seltuskemmdir - hefur góöa vióloðun. 10 ára frábær reynsla. Verkval Takið eftir: Leitið ekki langt yfir skammt. Förum hvert sem er. Kynnið ykkur verð. Odýr og góð þjónusta. Veggsögun. gólfsögun, kjarnaborun fyrir öllum lögnum. Murbrot og frágangsvinna. Einnig stiflulosun. Gerum klárt til að endurnýja frárennsli í gólfum og lóðum. Leysum hvers manns vanda. Gerum föst verðtilboð. Látið fagmanninn leysa lekavandamálið í eitt skipti fyrir öll. Akureyri, Hafnarstræti 9, Kristinn Einarsson, simi 96-25548. - Já, alveg heilan kassa. - Hvað gerið þið við aflann? - í gær seldum við frystihúsinu og við höldum að við getum grætt mikið í sumar. Það er ágæt veiði hérna. Þá sást í smá silungstitt og enginn tími til að svara hallæris- legum spurningum blaðamanna. - Heyrið þið mig, hvað veiðist mest hér við bryggjuna? - Ætli það sé ekki mest um marhnút og stundum er dálítið mikið af þorski. Togarinn hendir stundum karfa og þá leikum við okkur að því að húkka hann upp. Það er verst að fiskurinn tekur ekki beitu, hann vill bara spún. Ekki beit silungurinn á í þetta skiptið. Hann kemur kannski aftur. Bara að bíða, þeir höfðu allan daginn. - Borðið þið ekki fiskinn sjálfir? - Nei, ekki þorsk. Við borð- um bara ýsu og lúðu og svoleiðis fisk. - En ætlið þið ekkert í sveit í sumar? - Nei, við verðum bara hérna á bryggjunni mest. Að veiða og svoleiðis. Ég kemst kannski með pabba mínum á Hafrúnu ÞH 144 sagði Þorgrímur. - Ætlið þið kannski að verða sjómenn þegar þið verðið stórir? - Já, við búumst við því. Bílstjóradeild Verkalýðsfélagsins Einingar heldur aðalfund sinn laugardaginn 23. júní kl. 14.00 í Þingvallastræti 14, Akureyri. Dagskrá: Skýrsla stjórnar. Reikningar Tjarnar- gerðis. Kjaramál. Kosningar. Önnur mál. Deildarstjórn. Sólbaðsstofa Kaupangi v/Mýrarveg 2. hæð í nýbyggingu Sími 21206 Opnunartími Virka daga frá kl. 16.00-23.00 og um helgar frá 9.00-23.00

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.