Dagur - 22.06.1984, Síða 13
22. júní 1984 - DAGUR - 13
Pétur Þorstcinsson, skólastjóri
Myndir: KGA
í ÍSBl2;-:-:ar '& W m ['wi " k H -'M wÆt
hsb & i |HBHEgi iy||
tíjVí- m ., | : i|ÍI|sá i 1» i
Spjallað við Pétur Þorsteinsson
skólastjóra á Kópaskeri:
að ^^Yienda
á
Það kann að þykja undarlegt
að rita hér um skólamál, þegar
börn eru nýsloppin út í sumar-
ið eftir langan vetur. Ástæða
þess að svo er gert er að þegar
blaðamenn Dags voru á ferð
um Kópasker á dögunum ráku
þeir augun í allnýstárlega
byggingu og komust að því að
þetta var barnaskóli staðarins.
Skólastjórinn, Pétur Þor-
steinsson sýndi okkur skólann
og sagði frá því sem þar fer
fram, en skólahald á Kópa-
skeri er allnokkuð frábrugðið
því sem gengur og gerist.
„Skólinn hefur starfað í þessu
húsnæði í 2 vetur og eru í honum
38 börn á aldrinum 6-12 ára.
Tæpast er hægt að tala um eigin-
lega bekki, krökkunum er skipt í
3 hópa eftir aldri. í skólanum eru
heldur ekki venjulegar skólastof-
ur með borðum og stólum, heldur
er um að ræða eitt stórt svæði
sem skiptist niður í einhvers kon-
ar króka, hvern með sínu heiti. Á
einum stað er unnið í stærðfræði,
öðrum í móðurmáli o.s.frv. Þá
hafa krakkarnir afdrep sem kall-
að er og þar hittast þau til að
spjalla saman og lesa og annað
slíkt“.
Það er greinilega mikill áhugi
hjá Kópaskersæskunni, um það
báru myndir á veggjum glöggt
vitni sem og munir aðrir er þar
voru til sýnis. Einnig fengum við
þær upplýsingar að gefin væru út
við skólann 4 blöð að staðaldri og
hafa krakkarnir sérstakar rit-
st j órnarskrifstofur.
- Skyldi þetta ekki vera eini
skólinn sinnar tegundar?
„Það er náttúrlega hvfcí. skóli
Nýja skólahúsið á Kópaskeri.
sérstakur, það sem við erum að
gera hér er ekki kennslufræðilegt
trix, fremur heimspekilegt við-
horf til uppeldis. Þessi skóli er
byggður upp á dálítið öðrum
hugmyndum en tíðkast hefur.
Það hefur verið markmið í ís-
lenska skólakerfinu að kenna
börnum réttu svörin, að láta þau
safna þekkingaratriðum, en við
hérna aftur á móti teljum okkur
ekki geta sagt fyrir um hvað er
merkilegt og þess vert að læra.
Ef börnin fá áhuga á einhverju
þá afla þau sér þekkingar um það
atriði og þá er tilganginum náð.
Það er þetta sem við erum að
reyna að gera hér, að glæða
áhuga nemenda og þá ósjálfrátt
opnast þeim skilningur. Það hef-
ur gengið mjög vel hjá okkur og
ekki annað hægt að segja en þess-
ari nýjung hafi verið feikilega vel
tekið í hreppnum. Hins vegar er
það ljóst að við erum ekki komin
á leiðarenda. Það eru ekki allir
sem telja allt jafn gott sem við
gerum. En við erum mjög gagn-
rýnin á okkar starf og verðum að
vera það. En þetta var ansi erfitt
fyrst, ég hafði alltaf kennt eins og
'mér hafði verið kennt en allt í
einu með nýju skipulagi hefur
maður enga jörð til að standa á
og þarf að fara að velta nýjum
hlutum fyrir sér. En ég held að ég
hafi lært mest á því að hella mér
út í þetta af alefli, það er ekki svo
gott að læra um þetta í skólum.“
- Húsið er þríhyrnt, af
hverju?
„Það var búið að taka ákvörð-
un um byggingu hússins löngu
áður en ég kom, hreppsnefndin
vildi byggja sveigjanlegt hús sem
auðvelt væri að aðiaga nýjum
kennsluháttum," sagði Pétur
Þorsteinsson að lokum.
En eins og segir í upphafi þá
voru blaðamenn á ferð að sumar-
lagi og það er ekki nema hálft
gamanið að skoða skóla þar
sem engin eru börnin. mþþ.
býður yður velkomin alla daga
í heitan mat um hádegi og kvöld.
Kaffi og smurt brauð allan daginn.
★ ★
Akureyringar - Bæjargestir
Dansleikur
laugardagskvöldið 23. júní
Hljómsveit Steingríms Stefánssonar
leikur fyrir dansi til kl. 02.00.
Matur framreiddur frá kl. 19.00-22.00.
HÓTEL KEA AKUREYRI
Húsvörður
Starf húsvarðar við félagsheimilið Laugaborg er
laust til umsóknar frá miðjum sept. nk.
Upplýsingar gefur Birgir Jónasson Hrafna-
gilsskóla í síma 31231 á kvöldin.
C?
Auglýsing i Degi
BORCAR SIC
Hvað er góð auglýsing? Allir auglýs-
endur borga fyrir að fá auglýsingu
birta í blöðum. Hvers vegna auglýsa
fyrirtæki þá vöru sína? Jú; til þess
að hún seljist. Þannig er hægt að
láta auglýsingu borga sig. En þaöer
ekki sama I hvaöa blaöi auglýst er.
því mörg hafa litla útbreiðslu og fáa
lesendur. Dagur hefur aftur á móti
mikla útbreiðslu og lesendur eru
fjölmargir.
Það borgar sigþví að auglýsa /Degi.
þar eru allar auglýsingar gúðar
lýsingar.
kemur út þrisvar í viku,
mánudaga, miðvikudaga og föstudaga