Dagur - 25.06.1984, Blaðsíða 1
Rekstrar grundvöllur
er ekki til staðar
„Aðkoman
eins og
við var
að búast“
- segir yfirflugvirki
F.N. um vélina á
Bíldudal
„Aðkoman þarna var í sjálfu
sér ekkert ólík því sem maður
átti von á,“ sagði Jón Karlsson
yfirflugvirki hjá Flugfélagi
Norðurlands í samtali við Dag
fyrir helgina, en hann fór vest-
ur á Bfldudal til þess að kanna
skemmdir á flugvél fyrirtækis-
ins sem hlekktist þar á í síðustu
viku.
„Skemmdirnar eru einangrað-
ar við vinstri væng vélarinnar,
hreyfilinn og hjólaútbúnaðinn.
Að öðru leyti er vélin algjörlega
óskemmd."
- Þýðir það að þetta verður
ekki mjög mikil viðgerð?
„Þetta er nokkuð tímafrek við-
gerð á vængnum, þær viðgerðir
eru það yfirleitt, en að öðru leyti
er þetta ekki meiri vinna en við
mátti búast eftir svona óhapp.“
- Hefur verið horfið frá því að
fljúga vélinni heim?
„Nei, við erum ekki búnir að
afskrifa þann möguleika. Vélin
verður þarna þar til tryggingaað-
ilar frá Bretlandi hafa komið og
skoðað hana á staðnum en það
verður væntanlega strax eftir
helgina. Aðstaða til þess að gera
við vélina þarna er náttúrlega
ekki góð, enda verður ekki unnin
þar nema lágmarksviðgerð til
þess að hægt sé að koma vélinni í
loftið og lenda henni á Akureyri.
Mér sýnist að það ætti að vera
hægt og svo yrði unnið við frekari
viðgerð hér heima,“ sagði Jón
Karlsson. gk-.
Mikill hluti útgerðar mun
stöðvast af sjálfu sér á næstu
vikum, hvort sem samtök
verða um það meðal útgerð-
armanna eða ekki, að því er
segir í samþykkt sem gerð
var á fundi útvegsmanna á
Norðurlandi í sl. viku. Töldu
fundarmenn ekki annað
þurfa að koma til, en að við-
skiptafyrirtæki útgerðarinn-
ar stöðvuðu úttektir, þar
með stöðvaðist útgerðin. Þá
kom fram, að skuldbreyting-
ar þær sem um hefur verið
rætt til handa útgerðinni
væru ekki annað en frestun
á vandanum. Meinið væri í
raun það, að rekstrargrund-
völlur fyrir útgerð væri ekki
til staðar.
Á fundinum var samþykkt
eftirfarandi tillaga: Taprekstur
útgerðar undanfarinna ára hefur
skapað greiðsluvanda í sjávarút-
vegi sem ætíð hefur verið velt á
undan sér. Eigið fé fyrirtækja
hefur rýrnað við þessi skilyrði og
með vaxandi hraða á síðustu
mánuðum. Því er nú svo komið
að fyrirtækin eru ekki hæf til
frekari lántöku. Mikill hluti út-
gerðar mun því stöðvast af sjálfu
sér á næstu vikum, hvort sem
samtök verða um það eða ekki.
Útflutningstekjur af sjávarút-
vegi eru 70-80% af heildarút-
flutningstekjum, og er grunnur
þjóðartekna okkar í samræmi við
það. Taprekstur útgerðar undan-
genginna ára endurspeglar
stjórnvaldsaðgerðir í efnahags-
málum á hverjum tíma.
Þó efnahagsaðgerðir á liðnu ári
hafi almennt bætt stöðu atvinnu-
rekstrar hefur sjávarútvegur ekki
notið góðs af því. Aftur á móti
hafa verslunar- og þjónustufyrir-
tæki nýtt sér aukið svigrúm sem
þeim fyrirtækjum hefur verið
skapað. Það er því krafa fundar-
ins að þessi skilyrði verði jöfnuð
og má í því sambandi benda á að
hækkun á innkaupsverði olíu
verði mætt með því að ganga á
eigið fé olíufélaganna í stað þess
að hleypa hækkuninni út í verð-
lagið. Sama mætti raunar segja
um aðrar þjónustugreinar við
sjávarútveg. Fundurinn bendir á
að núverandi rekstrarskilyrði
sjávarútvegs leiða til fólksflótta
frá greininni vegna óvissu og
rýrnandi lífskjara umfram aðrar
atvinnugreinar."
Þá voru eftirtaldir fjórir menn
kjörnir í nefnd til viðræðna við
stjórnvöld um ástand í útgerð-
armálum á Norðurlandi: Sverrir
Leósson, Akureyri, Ingvar
Hólmgeirsson, Húsavík, Valdi-
mar Bragason, Dalvík og Bjarki
Tryggvason, Sauðárkróki.
Á laugardag var vígt nýtt fískiðjuver Fiskiðju Sauðárkróks með pomp og
pragt. Þetta nýja fiskverkunarhús er óvenju glæsilegt og fullkomið. Fjöldi
manns, starfsmenn og gestir, voru viðstaddir þessa athöfn. Marteinn Frið-
ríksson, framkvæmdastjóri, sagði frá húsinu og framkvæmdum, og meðal
annarra ræðumanna voru Erlendur Einarsson, forstjórí Sambandsins, c
Finnur Ingólfsson, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra. Þegar leið á hóf
tóku Skagfirðingarnir að sjálfsögðu lagið. Mynd: H!