Dagur


Dagur - 04.07.1984, Qupperneq 1

Dagur - 04.07.1984, Qupperneq 1
GULLSMIÐIR , SIGTRYGGUR & PÉTUR ' AKUREVRI FILMUhúsib akureyri 67. árgangur Akureyri, miðvikudagur 4. júlí 1984 Afgangsvarmi frá álverksmiðju: Nægði til upphitunar 5 þús. manna byggðar Meðal þeirra verkefna sem Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hefur haft til athugunar er af- gangsvarmi frá hugsanlegu ál- veri við Eyjafjörð. Áætlað er að afgangsvarmi frá 130 þús- und tonna álverksmiðju yrði 130 gigawattstundir, sem nægðu til upphitunar á 5 þús- und manna byggðarlagi, að því er fram kom í ræðu Helga Bergs, stjórnarformanns Iðn- þróunarfélagsins á aðalfundi þess á mánudag. Helgi Bergs sagði um þetta mál: „Áætlað er að nýtanlegur afgangsvarmi frá 130 þúsund tonna álverksmiðju nemi um 130 Gwh. Iðnþióunarfélagið óskaði eftir samstarfi við Hitaveitu Ak- ureyrar um að kosta athugun á því hvort hagkvæmt kynni að vera að nýta slíkan afgangsvarma til upphitunar á Akureyri og í nærliggjandi byggðum með heita- vatnslögn frá hugsanlegri álverk- smiðju. Áætlað er að umrædd afgangs- orka mundi nægja til upphitunar á u.þ.b. 5000 manna byggðalagi. Bráðabirgðaniðurstöður benda til þess að kostnaðarverð orkunn- ar við bæjarmörkin yrði um 30 aurar á kílówattstund. Hvort slík orkuvinnsla fyrir Hitaveitu Akur- eyrar er hagkvæm ræðst af því hvaða mögleikar yrðu fyrir hendi í framtíðinni, en margt bendir til þess að nýting afgangsorku frá ál- verksmiðju, ef byggð yrði, með hagkvæmari leiðum sem völ er á til orkuöflunar fyrir Hitaveitu Akureyrar," sagði Helgi Bergs. Hann gat þess einnig að við verksmiðjuvegg yrði kostnaðar- verð orkunnar 15 aurar/kíló- wattstund miðað við þessa bráða- birgðaathugun, en til tals hefur komið að þennan varma mætti nota til fiskeldis. HS Sjöfn framleiðir dömubindi í skýrslu stjórnar Iðnþróunar- félags Eyjafjarðar sem lögð var fram á aðalfundi félagsins fyrr í vikunni kom fram að Sjöfn hcfur ákveðið að fara út í framleiðslu á dömubindum og bleium. Á fundi stjórnar Iðnþróunar- félags Eyjafjarðar þann 7. maí s.l. var ákveðið að selja Sjöfn niðurstöður athugana félagsins á þessari framleiðslu og mun ákveðið að Sjöfn hefji fram- leiðslu á þessum vörum sem fell- ur vel að núverandi sölustarfsemi fyrirtækisins. Heildarinnflutningur á bleium og dömubindum er nú um 500 tonn á ári og er innflutningsverð- mæti allt að 50 milljónir króna. Þrátt fyrir þetta magn er mark- aðshlutdeild pappírsbleia hér á landi ennþá miklu lægri en á hin- um Norðurlöndunum. Á mánudaginn voru staddir hér á Akureyri menn frá Slysavamarfélagi íslands og afhentu þeir nýstofnaðri sjóbjörg- unarsveit félagsins á Akureyri, gúmmíbát með utanborðsmótor. Einnig kenndu þeir meðferð bátsins. Sjóbjörgun- arsveitin var stofnuð í vor að frumkvæði kvennadeildar SVFÍ á Akureyri. Á myndinni má sjá þá sunnanmenn leiðbeina Akureyringum í meðferð bátsins. Mynd: KGA. „Engu tækifæri má kasta í bráðræði“ Nokkrir kunnir Akureyringar og Eyfirðingar hafa skrifað undir áskorun, þar sem hvatt er til þess að fólk taki þátt í undirskriftasöfnun „Áhuga- manna um framfarir við Eyja- Qörð“. Áskorunin er svohljóðandi: „Okkur sem Eyjafjörð byggjum má vera ljós sá vandi sem við okkur blasir í atvinnumálum. Nú gætir samdráttar og fólks- flótta í þessu gjöfula byggðarlagi. Við svo búið má ekki standa, engu tækifæri til fjölgunar starfa megum við kasta frá okkur í bráðræði og án gaumgæfilegrar athugunar. Hingað til hafa land- búnaður, sjávarútvegur, iðnaður og þjónusta ýmiss konar myndað burðarás atvinnulífs í þessu hér- aði. Leggja verður höfuðáherslu á að tryggja vöxt þessara atvinnu- vega. Övíst er þó að þeir geti tek- ið við þeirri fólksfjölgun sem æskileg verður að teljast eigi byggðir Eyjafjarðar að mynda nauðsynlegt mótvægi við þéttbýl- ið á Suðvesturlandi. í tilefni þeirrar umræðu sem nú á sér stað um staðsetningu nýs álvers á íslandi teljum við undir- ritaðir ljóst að tilkoma nýrrar stóriðju á Reykjanesi geti hrint af stað verulegum fólksflótta frá landsbyggðinni. Pað mun hafa í för með sér röskun á menningu og efnahag þjóðarinnar. Pví skorum við á íbúa Eyjafjarðar að sýna samstöðu og skrifa undir eftirfarandi áskorun til stjórn- valda.“ Síðan kemur texti undirskrift- arlistanna sem nú eru í gangi um að næsta stóriðjufyrirtæki á ísl- andi verði valinn staður við Eyja- fjörð, enda verði talið tryggt að rekstur þess stefni ekki lífríki fjarðarins í hættu. Undir þetta skrifa eftirtaldir: Sævar Frímannsson, varaform. Einingar, Birkir Skarphcðinsson, form. Kaupm.fél. Ak., Gísli Bragi Hjartarson, Híbýli hf., Valgerður Sveinsdóttir, kaupm. og félagi í Kvennaframb., Jórunn G. Sæmundsdóttir, bæjarfulltr., Hákon Hákonarson, form. fél. 75. tölublað segir í áskorun sem nokkrir kunnir borg- arar hafa sent frá sér málmiðn.m., Hjörtur Eiríksson, frkvstj. Iðnaðardeildar, Margrét Kristinsdóttir, bæjarfulltr., Þórður Gunnarsson. Brunab.fél. ísl., Sigurður Jóhannesson. bæjarfulltr., Steindór Steindórsson. fyrrv. skóiameistari M.A., Ingólfur Jónsson, form. Meistarafél. bygg.m. á Norðurl.. Bernharð Haraldsson, skólameistari Verkm.sk., Valur Arnþórsson, kaup- fél.stj., Ingólfur Árnason, raf.stj., Þóra Hjaltadóttir, forseti Alþ.samb. Norðurl., Hjörtur E. Þórarinsson, bóndi á Tjörn, Birgir Marinósson, form. Landssamb. fsl. samvinnustarfsm., Jón Sigurðarson, bæjar- fulltr., Helgi Bergs, bæjarstjóri. og Gunnar Ragnars. bæjarfulltr.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.