Dagur - 04.07.1984, Síða 3

Dagur - 04.07.1984, Síða 3
4. júlí 1984-DAGUR-3 I nýju húsi með vetrardagskrá Veiðimenn Ósótt veiðileyfi í Eyjafjarðará óskast sótt fyrir 15. júlí, annars seld öðrum. Opið á laugardögum 10-12. III Eyfjörð Hjalteyrargötu 4 ■ simi 22Z75 0HITACHI „Þetta gengur sæmilega, er aðeins á eftir áætlun en við erum ekki í neinum blóðspreng,“ sagði Jónas Jón- asson þegar hann fylgdi tíð- indamanni Dags um hið nýja hús útvarpsins. „Það hljómar ef til vill kynduglega, en ég kvíði því að taka til starfa í þessu nýja húsi,“ sagði Jónas. „Það fylgir því svo sannarlega niikil ábyrgð og við verðum að gera strangar kröfur til okkar. Nú verður ekki hægt að ásaka neitt með því að við höfum ónóg tæki og þrönga aðstöðu.“ Á rölti okkar um húsið, sem er ákaflega bjart og vistlegt, var ýmislegt að sjá. Við byrjuðum í „hjartanu" eins og Jónas nefndi það, stúdíóinu. Upptökuborðið verður samskonar og það sem notað er í Rás 2. „Það er gríðar- lega fullkomið," segir Jónas. „Ég held að það geri allt nema að fljúga sjálft. Tæknimaður okkar var fyrir sunnan í júnímánuði að vinna með tæknideildinni við að setja það saman, við reiknum með að það verði flutt hingað norður í ágúst og sfðan má reikna með að taki mánuð ao tengja það. Draumur okkar er að það verði tilbúið 1. september og við getum gengið inn í vetrardag- skrána. Tímann þangað til notum við til að vopnast dagskrárlega.“ Næst liggur leið okkar inn í stórt stúdíó, en það verður ekki tekið í gagnið fyrr en nýja út- varpshúsið í Reykjavík kemst í notkun. „Hér get ég til dæmis haft allan Passíukórinn," segir Jónas. Og hann bætir því við að gert sé ráð fyrir að í þessu studíói verði hægt að taka upp sjón- varpsefni. Frammi í anddyri verður rúm- góð setustofa og einnig kaffi- stofa. Þar inn af er vinnuaðstaða fyrir starfsfólk. „í Norðurgötunni höfum við haft eitt borð sem dag- skrárgerðarmenn hafa skipst á um, en hérna verður aðstaða fyr- ir þrjá menn samtímis,“ segir Jónas. „Að auki verður hérna sérstakt horn fyrir fréttamann- inn.“ Því næst elti ég Jónas upp á aðra hæð. „Hér verður aðstaða fyrir frágangsvinnu, hérna geta dagskrárgerðarmenn hlustað á sitt efni og gengið frá því. Þá þarf ekki að leggja stúdíóið undir þá vinnu.“ Nú verður allt efni tekið upp í steríó og síðan sent suður, þaðan sem útsendingar fara fram, eins og verið hefur. Þannig að þótt ekki séu hér fyrir norðan tæki til steríóútsendinga, megum við eiga von á Jónasi og hans mönnum í steríó. „Mér finnst að í haust verði ég að byrja upp á nýtt,“ segir Jónas. „Við höfum verið heppin, gengið vel, fólki hefur líkað við það sem við höfum verið að gera. Ég veit ekki hversu miklar kröfur maður getur gert til sjálfs sín, en ég geri mér ljóst að við getum ekki lagst Jónas Jónasson: „Mér fínnst að í haust verði ég að byrja upp á nýtt.“ Myndir: KGA á rósrautt ský og látið reka fyrir meðbyrnum. Til þess að þetta gangi þarf starfsfólkið að hafa sama áhuga og áður.“ Við göngum út í sólina og Jón- as segir: „Eins og þú sérð er þetta ákaflega geðslegt allt saman - og kvíðvænlegt." KGA. Videotæki VT-33E kr. 41.900.-. W ' m m amm i »'«">0111)11/ aUIMIMUHLÍD ■ ysssBUvlnl s 22111 Stórkostlegt úrval af sumarfötum á böm. fUFO barnabuxur góð snið. 1H barnabuxur og smekkbuxur. barnabuxur og jakkar. barnasmekkbuxur. Einnig nýkomið úrval af ungbarnafatnaði. Sarezka garn. Ný sending, nýjar tegundir og verðið aldeilis ótrúlegt. Sem sagt allt bandvitlaust. - Ný tfekobl#ð konlin SnyrtivöruúrvaUð hefnr aldrei veríð meira Biodroga ★ Sans Souics ★ Revlon ★Pierre Robert o.fl Líttu inn og láttu okkur koma þér á óvart. Þá minnum við á tilboð í herradeild. Sumarjakkar- og stakkar 10% afsláttur Básinn er fuilur af sumarfatnaði SlMI (96) 21400

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.