Dagur - 06.07.1984, Qupperneq 7
6. júlí 1984-DAGUR-7
Um helgina
í Laxdalshúsi
Matseðill hússins,
laugardags- og sunnudagskvöld.
Fastir liðir eins og venjulega.
★
Rauðvínsleginn og soðinn nautakjötspottréttur.
★
Gráfíkjuæði (sjá matkrókinn).
Krístinn Örn Krístinsson píanóleikarí leikur
Raggie- tónlist fyrir matargesti á laugardagskvöld.
Borðapantanir og upplýsingar í síma 24490.
Opið alla daga frá kl. 11-23.
Hermann Gunnarsson.
Akureyringum
er ekkert
illa við mig“
- Halló, er þetta Her-
mann Gunnarsson hinn
eini og sanni?
„Já, sá er maðurinn og
komdu blessaður.“
- Þú hefur alltaf verið
mikill gleðimaður, og nú
ert þú orðinn Sumargleði-
maður?
„Já það er allt komið á
fulla ferð og Norðlending-
ar mega fara að vara sig
því við erum næstum því á
leiðinni. Við verðum á
Skagaströnd 19. júlí,
tökum hús á Hallbirni og
það verður auðvitað mikið
fjör. Þá er það Akureyri
20. og 21. júlí, Árskógs-
strönd 22. júlí og svo verð-
um við á fullri ferð á
Norðurlandi um verslun-
armannahelgina.“
- Og það þarf ekki að
spyrja að því að þetta er í
góðu lagi, skemmtunin og
ballið á ég við?
„Ég held að þetta sé
mjög hresst þótt ég segi
sjálfur frá. Það var óvenju-
mikið æft fyrir þetta núna
enda ákeðið að kúvenda
prógramminu. Og miðað
við móttökur á fyrstu
skemmtunum okkar er
hægt að lofa góðu, það er
allt á útopnuðu í 6 klukku-
tíma.
Það er eitt atriði sem
hefur vakið óhemjuathygli
en það er Sumargleðidans-
inn. Það er dans sem má
dansa alls staðar og þeir
sem aldrei hafa stigið út á
dansgólf geta verið með.
Einnig má dansa þennan
dans í baði, uppi í rúmi og
reyndar nánast hvar sem
er. Og auðvitað er það
Bessi sem stjórnar þessu,
hann er okkar sérfræð-
ingur í öllu sem snýr að
fótaburðinum enda með
sérstakan dansfótaburð
eins og alþjóð veit.“
- Er ekkert erfitt fyrir
þig að koma inn í þetta
með þessum þrautreyndu
skemmtikröftum ?
„Jú vissulega, en ég hef
alltaf haft gaman af því að
reyna eitthvað nýtt. Ég var
þó kvíðinn en það hefur
bjargað öllu að þetta eru
svo miklir öðlingar, Ómar,
Ragnar og Bessi og þeir
hafa „peppað“ mig upp.
Það er því eins og ég sé
kominn heim. Þeir eru
hins vegar gjarnir á það
Ómar og Bessi að breyta
sífellt út af textanum þann-
ig að ég er alltaf með lífið
í lúkunum að ég skelli upp
úr sjálfur, maður er jú bú-
inn að hlæja að þessum
gaurum í áratugi.“
- Nú ert þú gamall „Ak-
ureyringur“, verður ekkert
erfitt að koma í Sjallann
og skemmta gömlu kærust-
unum?
„Ha, ha. Ég kom þarna
í vetur til að skemmta og
fann það að Akureyring-
um er ekkert illa við mig,
langt frá því og ég kvíði
engu. Það eina sem er að í
Sjallanum er að sviðið er
nokkuð lítið þannig að það
er viðbúið að við verðum
að skemmta eitthvað við
borð gestanna.“
- Saknar þú ekki starfs-
ins hjá útvarpinu?
„Nei, ég er eins og prins,
laus úr álögum vinur minn
og verð í fríi eitthvað fram
á veturinn. Annars eru
málin í góðum höndum á
íþróttadeild Útvarpsins."
- Það er alltaf sami létt-
leikinn í kring um þig?
„Já annað er bannað
vegna þess að það er verra
og getur síðan smáversnað
hægt og sígandi."
- Það er nefnilega það.
Ætli við látum þetta þá
ekki nægja í bili og bíðum
bara spenntir eftir að sjá
þig í Sumargleðinni.
„Við sjáumst ljúfur og
vertu ævinlega blessaður
og að sjálfsögðu bið ég að
skila kveðjum til allra vina
minna á Akureyri.“ gk-.
býður yður velkomin alla daga
í heitan mat um hádegi og kvöld.
Kaffi og smurt brauð allan daginn.
★ ★
Akureyringar - Bæjargestir
Dansleikur
laugardagskvöldið 7. júlí
Hljómsveitin Miðaldamenn frá Siglufirði
leika fyrir dansi til kl. 02.00.
Matur framreiddur frá kl. 19.00-22.00.
Borðapantanir
teknar í
síma 22200.
Verið velkomin.
HOTEL KEA
AKUREYRI
adidas^
Knattspyrnu-
áhugamenn
Fyrirhuguð er hópferð til Akraness, laugar-
daginn 14. júlí á leik Í.A. og Þórs ef næg þátt-
taka fæst.
Farið verður að morgni 14. og komið heim
samdægurs.
Áætlað verð kr. 600 pr. mann. Nánari upplýsingar
veitir Jónas Hallgrímsson á skrifstofu knatt-
spyrnudeildar Þórs í síma 22381 milli kl. 16-18
alla virka daga.
Þátttöku verður að tilkynna fyrir fimmtudaginn 12.
júlí.
Áhugamenn.