Dagur - 09.07.1984, Blaðsíða 5
9. júlí 1984 - DAGUR - 5
Þarna sjáum við hluta af þrautabrautinni. Það er hangið í dekkjunum, troðist í gegnum þau og ýmsar hundakúnstir gcrðar. Myndir: HJS.
Hver vill
- Einherjar frá ísafirði bjóða upp á
bláberjasúpu á skátamóti aldarinnar
í Leyningshólum
Um helgina var haldið heljar-
innar skátamót í Leyningshól-
um sem bar nafnið „Bleika
stjarnan í norðri.“ Er þetta
svokallað fjórðungsmót. Á
staðnum voru um 250 almennir
þátttakendur, 40 starfsmenn,
50 manns í fjölskyldubúðum
og 40 skátar sem komu í heim-
sókn frá Blönduósi. Þarna
voru því alls um 380 manns.
Tíðindamenn Dags litu í heim-
sókn til skátanna á laugardaginn,
en þá var heimsóknardagur.
Margt var um manninn þegar
heimsóknargestir fóru að
streyma að.
Eins og nafnið ber með sér var
litur mótsins bleikur og var því
reynt að hafa sem flest í bleikum
lit. Bleik skilti voru víða uppi og
voru skátar frá Þórshöfn með
brandara á bleikum skiltum.
Einn var svóna: „Hvað komast
margir fílar inn í símaklefa?"
Svar: „Það fer eftir því hvað
hann er stór.“ (Hér á að hlæja).
Veðrið var ekki eins og best
varð á kosið og eins og móts-
stjórn var búin að lofa. A föstu-
daginn rigndi mikið, en það
þykir skátum víst bara ævintýra-
legt. Það var ágætis aðstaða til að
þurrka föt og annað sem vildi
blotna, svo þetta var allt í sóman-
um. Tekið var smá úrtak á svæð-
inu og spurt hvort það væri gam-
an og allt í lagi með veðrið.“
Mótsstjórar voru Guðný Eydal
og Ingibjörg Arnarsdóttir, gamlir
og grónir skátar frá Akureyri.
Drógu þær undirritaða um allt
svæðið og sýndu hvað upp á var
boðið. Þarna var þrautabraut,
þar sem fólk átti að troðast í
gegnum dekk og undir kaðla.
Mjög uppbyggilegt. Niður í ein-
hverju dalverpinu, þ.e. á milli
hóla, var rennibraut. Blaðasnáp-
ur hélt í fávisku sinni að það væri
rennibraut eins og á leikvöllum.
En svo var ekki. Það voru reistir
staurar með hæfilega löngu milli-
bili. Kaðall strengdur á milli, neta-
dræsa hengd í hvar aumur skáti
var settur í og látinn húrra dá-
góðan spöl. Nú, þarna var vatna-
safarí. Þar gengu menn á
köðlum, eða héngu, og ef jafn-
vægið brást var það ískalt vatnið
sem tók við. Það var farið í
„hike“-ferðir og fleira og fleira
gert sér til dundurs. Á kvöldin
var varðeldur og tívolí þar sem
norsk spákona tjáði mönnum
hvað framtíðin bæri í skauti sínu.
Það var því allt í sómanum í
Leyningshólum um helgina og
allir undu glaðir við sitt. Eitt sinn
skáti, stundum skáti. En hvar
varstu Jón? HJS
Tveir ábúðarfullir Einherjar frá ísafirði, þeir sömu og buðu upp á bláberja-
súpuna.
bláberjasúpu?
Mótsstjóramir, Guðný og Inga bera Þetta var algeng sjón á þessu móti. Verið að þurrka skó og annað lauslegt.
saman bækur sínar.
m í KAUPANGI
Kynntu þér okkar fjölbreytta vöruval
og tilboðsverðin
Kjötvörur frá: Matarbrauð frá:
SS - Síld og fiski - Kristjáni - KEA - Krútt.
KEA - Kjöt og áleggi.
Daglega nýir ávextir og úrvals kartöflur.
K-tilboð og sértilboð vikunnar:
Egg ...............................
Stórar pizzur frá Pizzalandi ......
Litlar pizzur frá Pizzalandi ......
Bacon í sneiðum frá SS ............
Rækjur 250 og 500 gr...............
Morgunmatur Ananda Granóla 300 gr.
Morgunmatur Ananda Granóla 600 gr.
Emmess skafís 2 lítra .............
Emmess heimilisklaki 1*2 í pakka ..
Opið alla daga og öll kvöld til kl.
föstudaga til kl. 19.00.
kr. 87,00 kg
kr. 131,60 stk.
kr. 101,00 stk.
kr. 216,00 stk.
kr. 198,00 kg
kr. 37,60 kg
kr. 66,00 kg
kr. 110,00 kg
kr. 111,60 kg
. 23.30
i'i ú
K-verslun er kjarabót
MATVÖRU
BEEaaiILfR
Kaupangi ■ Sími 21234
Næq nílastæði.