Dagur - 11.07.1984, Qupperneq 12
I
MONRO-MATIC ®
SHOCK ABSORBER
HÖGGDEYFAR
í FLESTA BÍLA
Ytra-Laugaland:
Heyskap
lokið
- á sama tíma
og sláttur hófst
í fyrrasumar
Heyskapur hefur gengið vel í
Eyjafírði í sumar og á sumuin
bæjum er heyskap að Ijúka, en
á Ytra-Laugalandi lauk hey-
skap á sunnudag. I»ar búa þeir
hræðurnir Hjörleifur og Aðal-
hjörn Tryggvasynir (elagsbúi.
Haft var samband við Hjörleif
og hann spurður hvort þeíta
væri ekki óvenju snenimt.
„Jú, jietta er óvenju snemrnt
núna. I fyrra byrjuðum við að
slá 9. júlí en kláruðum heyskap
S. júlí núna. Það er allt búið hjá
okkur nema einstaka blettur þar
sem við sláum hestahey, en við
náum því kannski núna eftir
káffi.“ Hjörleifur sagði að hey-
skapur gangi almennt vel í Eyja-
firði, en sennilega væri enginn
búinn nema þeir. Heyið væri
mjög gott, grænt og ilmandi og
ekki til hrakin tugga í því.
„Ætli við förum ekki bara að
skemmta okkur og slappa af.
Nei, nei þaö er alltaf nóg að gera
í sveitinni, það er engin hætta á
öðru,“ sagði Hjörleifur, aöspurö-
ur um hvaö þeir ætluöu að gera af
sér það sem eftir væri sumars.
Sagði Hjörlcifur að hljóð í bænd-
um væri mjög gott og þeir hefði
ekki yfir neinu að kvarta þessa
dagana. HJS.
Jökulsá á Fjöllum:
Flóð í
rénun
Óvenju mikil flóð hafa verið í
Jökulsá á Fjölliim, en áin er
nú í rénun. Þetta munu vera
cinhverjir niestu vatnavcxtir í
ánni allar götur aftur til ársins
1959, að minnsta kosti.
Flóðið náði hámarki á hádegi
;í mánudag. og var þá vatnshæðin
í ánni í 280 cm. en venjuleg hæð
að vetri er 130 em. Á mánudags-
kvöld hafði vatnsborðið lækkað
um 40 em, og var enn i rénun.
KGA.
Hvað cr til róinantískara en góðviðrisstund á Akureyri um miðnættið? Þá er alveg sérstakur tónn í tilverunni, tónn
sem á engan sinn líkan. Mynd; KGA.
Alhliða
bygginga-
þjónusta
á Akureyri
Alhliða byggingaþjónusta hef-
ur störf á Akureyri innan tíðar
og er það Davíð Haraldsson
sem að henni stcndur, en hann
hefur m.a. annast hönnun inn-
réttinga fyrir ýmsa aðila, s.s.
veitingahús.
Byggingaþjónustan verður til
húsa í Glerárgötu 30, hinu nýja
Landsvirkjunarhúsi. Þar verða
sýnishorn af hinum ýmsu vörum
sem notuð eru við byggingar,
bæði utan- og innanhúss. Sam-
starf verður við innflytjendur,
framleiðendur og söluaðila, auk
arkitekta, verkfræðinga og iðn-
aðarmanna, og eiga þeir sem
standa í byggingarframkvæmdum
eða hyggjast hefja þær að geta
fengið þarna faglega ráðgjöf.
Davíð Haraldsson sagði í við-
tali við Dag að hann myndi kapp-
kosta að hafa sem allra mest ur-
val efna og innréttinga til sýnis.
Hugmyndin væri sú að létta
mönnum þessar framkvæmdir og
aðstoða þá við að hanna og
skipuleggja byggingar sínar.
Þarna yrði setustofa þannig að
menn ættu að geta rætt málin
saman í rólegheitum yfir kaffi-
bolla. HS.
Vatnasilungur eftir-
sótt útflutmngvara?
Undanfariö hefur verið starf-
andi nefnd á vegum Búnaöar-
félags íslands, Landssambands
veiðifélaga og Veiðimálastofn-
unar til að glæða áhuga á nýt-
ingu silungsstofnsins hér á
landi, bæði hvað varðar veiði
og markaðsfærslu.
Lítill áhugi hefur verið á sil-
ungsveiðum og nýtingu þeirra
hlunninda, en nú eru horfur á
að breyting geti orðið á þar
sem markaður hefur opnast
fyrir smásilung og íslenskur
vatnasilungur gæti orðið eftir-
sótt útflutningsvara.
„Þrátt fyrir mikla möguleika á
nýtingu silungs hefur áhuginn
verið mjög takmarkaður. Hefur
jafnvel kveðið svo rammt að
þessu að ekki hefur verið hægt að
fá silung í soðið á sama tíma og
mörg vötn eru meira en yfirfull af
silungi. Fyrirtækið Asco í Reykja-
vík tók að sér í fyrra dreifingu á
silungi og markaðsfærslu í versl-
anir og veitingahús í Reykjavík.
Þetta varð til þess að áhugi á sil-
ungsveiði óx. Hins vegar kom í
Ijós að ekki var markaður fyrir
smæsta silunginn, sem mikið er
af. Nú hafa hins vegar opnast
möguleikar á útflutningi hans til
Noregs, á fiski allt niður í 200
grömm. Prufusending fór til Nor-
egs og komin er ósk um meira
fyrir viðunandi verð. Margir
bændur eiga því að geta haft
meiri hlunnindi af silungsveiði en
verið hefur til þessa og vil ég ein-
dregið hvetja þá til að nýta sér
það,“ sagði Árni Pétursson,
hlunnindaráðunautur hjá Búnað-
arfélagi íslands í viðtali við
Dag.
Árni sagði að 43 kr. fengjust
fyrir kílóið af 200-300 gr. fiski, 53
kr. fyrir 300-400 gr. fisk, 73 kr.
fyrir 400-600 gr fisk, 83 kr. fyrir
600-800 gr. fisk og 115 kr. fyrir
fisk stærri en 800 gr. Hann sagði
að silungurinn væri slægður og
tekin úr honum tálknin. Árni
sagði ennfremur að nú þegar
hægt væri að selja silung frá 200
gr. og upp úr ykjust mögu-
leikarnir á silungsveiði mjög
verulega og menn ættu eindregið
að nýta sér þá eins og kostur
væri. HS
Veðrið mun taka litl-
um breytingum næstu
2 daga eða svo. Það
verður skýjað og
sennilega verður ein-
hver súld, á annesjum
og við ströndina. Það
verður hæg norðaust-
angola og hitastigið
verður bærilegt.
# Afplána
síðar í ker-
skálunum
Nú eru vísurnar vegna ál-
versumræðu farnar að berast
örar og þessa sendi Þórir
Valgeirsson okkur eftir lestur
álversgreina Halldórs
Blöndals, alþingismanns, t
íslendingi í síðustu viku.
Nú hyggst Blöndal bræða ál
breyttu starfi feginn.
Hann ætlar að tryggja sinni sál
sjálfkjör hinum megin.
Og næst þegar Þórir átti er-
indi á ritstjórn Dags hafði
hann þessa á hraðbergi, en
hún var ort til heiðurs þeim
sem hafa skorað á samborg-
ara sína að skrifa undir list-
ana um að álverskosturinn
verði skoðaður:
Þeir gera okkur háleitar
hugsjónir kunnar,
með hausana troðna fölskum
vonum.
Þetta eru élskendur
álbræðslunnar
afplána síðar í kerskálunum.
# Viðundur?
Nú hafa akureyskir íþrótta-
fréttaritarar loksins fengið
þak yfir höfuðið. í suðvestur-
horni áhorfendastúkunnar á
íþróttaveliinum, hefur verið
byggð blaðamannastúka. Nú
geta skríbentar blaða horft á
fótboltann frá skikkanlegu
sjónarhorni, og aðstaða orð-
in svo sem lög gera ráð fyrir.
En ekki er sopið kálið ...
Ekki voru blaóamenn fyrr
sestir þarna í sæti sín, en
nærstaddir áhorfendur hófu
að sproksetja þá: Hæ, seljiði
töggur? Er til kók? Er þetta
búr fyrir viðundrin? Og í
þeim dúr.
# Kurteisi
Ekki er gott að segja til um
hvað hefur farið svona í taug-
arnar á akureyskum áhorf-
endum að sjá blaðamönnum
loks boðið upp á viðunandi
vinnuaðstöðu. Það virðist al-
veg hafa farið framhjá akur-
eyskum að það þykir ekki
nema sjálfsögð kurteisi að
bjóða fréttamönnum sæmi-
lega aðstöðu til að þeir geti
skilað sínu verki sem best.
Það er ekki löglegur knatt-
spyrnuvöllur í alþjóðakeppni,
sem ekki hefur fréttamanna-
stúku.