Dagur - 13.07.1984, Blaðsíða 7
TT/ / V
Her a að
vera eftir-
sóknarvert
að búa“
Helgi
Bergs,
bæjar-
stjóri
á Lín-
unni
- Helgi Bergs, bæjar-
stjóri, er hann á línunni?
„Já, sá er maðurinn."
- Komdu blcssaður, þetta
er á Degi.
„Blessuð."
- Mig langaði svona á að
byrja á því að forvitnast um
hvort þú sért Akureyringur?
„Ja, hvenær verður maður
Akureyringur. Ég er ekki
innfæddur en hef búið hér af
og til og alveg síðan 1976. Ég
er student úr MA og dvaldi
því hér mín menntaskólaár.“
- Hvernig hefur þér og
Akureyri samið?
„Ég er hér enn, ætli það
segi ekki mesta sögu, það er
mjög gott að búa hérna.“
- Hvernig er að vera
bæjarstjóri á Akureyri? yr-
„Mér hefur líkað það vel,
það er ekki yfir neinu að
kvarta.“
- Er bæjarstjóri valdamik-
ill?
„Það fer nú eftir því
hvernig á það er litið, auðvit-
að er það bæjarstjórnin sem
ræður mestu. Bæjarstjórinn
ræður væntanlega einhverju,
svona innan þess ramma sem
honum er markaður af
bæjarstjórninni. Þetta er
kannski ekki stórkostlega
valdamikið starf en svolítið
ábyrgðarstarf.“
- Er mikill munur á þínu
starfi og annarra í bæjar-
stjórn?
„Það er auðvitað stórkost-
legur munur. Þeir eru kosnir
4. hvert ár, pólitískt en staða
bæjarstjóra er kannski frekar
svona hálf pólitískt embætti.
Hann er kjörinn af bæjar-
stjórninni 4. hvert ár og hef-
ur ekki atkvæðarétt í bæjar-
stjórninni heldur eingöngu
málfrelsi og tillögurétt. Eg
sé um framkvæmdir á vegum
bæjarins og er æðsti em-
bættismaður hans.
- Nú segir Helgarpóstur-
inn að þú sért að hætta sem
bæjarstjóri, er það rétt?
„Það er líklega betra fyrir
þig að ræða um það við þá,
mér sýnist þeir vita miklu
meira um það en ég.“
- Þú vilt ekki neita þessu
né játa?
„Það er ekkert til í þessu,
ég er ekki að hætta í dag eða
á morgun, en sjálfsagt hætti
ég einhvern tíma.“
- Ber fólk mikla virðingu
fyrir bæjarstjóranum?
„Ætli það sé nú ekki
eitthvað misjafnt. Sjálfsagt
eru margir sem bera virðingu
fyrir stöðunni en hvort þeir
bera virðingu fyrir mér er svo
allt annað mál. Ég held að
það hafi dregið úr því að fólk
beri ósjálfrátt virðingu fyrir
mönnum sem eru í vissum
stöðum. Ég hef það svona á
tilfinningunni. Ef maður les
eitthvað nógu gamalt virðist
fólk bera afskaplega mikla
virðingu fyrir embættis-
mönnum."
- Hvað heldur þú um
framtíð Akureyrar og nág-
rennis, verður hér lapinn
dauðinn úr skel ef ekki kem-
ur stóriðja ?
„Ja, ég veit það ekki.
Menn verða í allri þessari
umræðu um stóriðju að gera
sér grein fyrir ýmsum
hlutum. Það er númer eitt að
gera sér grein fyrir því að
stóriðja ein og sér er ekki
lausn á öllum vandamálum.
Hún getur verið þáttur í að
leysa ákveðin vandamál o'g
getur rennt styrkari stoðum
undir þetta byggðarlag, en
stóriðja er ekki nein
„patent" lausn á öllum
hlutum.
- Hefur orðið afturför eða
stöðnun hér í þinni bæjar-
stjóratíð?
„Nei, ég held að það sé
ekki hægt að segja það. Hér
hefur verið mikil gróska sl.
10-15 ár og mikill vöxtur út
um landsbyggðina sem ég
held að hafi fylgt upp-
byggingu togaraflotans.
Þetta hékk hér á Akureyri
saman við ýmislegt annað,
miklar bygginga-
framkvæmdir og fram-
kvæmdir við hitaveituna.
Nú hefur heldur dregið úr
þessu hjá okkur og þensla er
ekki eins mikil og hún hefur
verið undanfarin ár. Það þarf
að hleypa hér fleiri og sterk-
ari stoðum undir atvinnulífið
og halda áfram þeirri þenslu
sem varð þó hún verði
kannski ekki eins mikil og
hún var. Þetta byggðarlag
þarf að vera öflugt mótvægi
við suðvestur hornið. Þetta
er góður staður að búa á, hér
er gott veðurfar og hér á að
vera eftirsóknarvert að búa.“
- En svona örlítið léttara
að lokum, hvað á að gera í
sumarfríinu?
„Ég ætla nú að halda mig
innanlands, ætli ég skreppi
ekki eitthvað upp á hálend-
ið.“
- Þá segi ég bara góða
ferð og þakka þér kærlega
fyrir spjallið. Vertu blessað-
ur.
„Þakka þér sömuleiðis,
blessuð.“ HJS.
13. júlí 1984 — DAGUfl —7
býður yður velkomin alla daga
í heitan mat um hádegi og kvöld.
Kaffi og smurt brauð allan daginn.
★ ★
Akureyringar - Bæjargestir
Dansleikur
laugardagskvöldið 14. júlí
Hljómsveitin Miðaldamenn frá Siglufirði
leika fyrir dansi tii kl. 02.00.
Matur framreiddur frá kl. 19.00-22.00.
HÁTÍÐISDAGAR
HESTAFÓLKS
verða á Melgerðismelum 28—29.^úlí '84
Keppnisgreinar:
Góðhestakeppni A og B flokkur.
Unglingakeppni, eldri og yngri flokkur
og nýjung á hestamótum, PARAKEPPNI.
Opin íþróttakeppni, allar greinar.
Kappreiðar:
150 m skeið, 250 m skeið,
250 m stökk, 300 m stökk,
800 m stökk og 300 m brokk.
Heiðurssýning norðlenskra gæðinga sem sigrað
hafa á Fjórðungs- og Landsmótum allt frá 1976 og
einvígi, Fákur - Léttir, bestu góðhestar frá hvíta-
sunnumótunum 1984. Kvöldvaka á laugardag.
Skráning keppnishesta sé komin til undirritaðra
fyrir hádegi 20. júli.
Matthías Ó. Gestsson, Akurgerði lf Ak. s. 96-21205.
Hörður Guðmundsson, Svertingsst. Eyf. s. 96-24942.
Þórður Stefánsson, Grenivík S-Þing. sími 96-33232.
ATH.: Sami hestur keppir ekki bæði í góðhesta-
keppni og íþróttagreinum.
í parakeppni skal parið vera úr sömu f jölskyldu.
GLÆSILEGUSTU VERÐLAUN ÁRSINS!
Iðnaðardeild Sambandsins kynnir nýja Eldjárns-
hnakkinn. Glæsilegasti gæðingurinn fær hnakk-
inn í mótslok.
FUNI — LÉTTIR — ÞRÁINN.