Dagur - 13.07.1984, Page 10
10 — DAGUR — 13. júlí 1984
Hlutav elturabb yfir
volgu mjólkurglasi
Hlutaveltur eru vinsælar eink-
um og sérílagi meðal barna og
eru þau ófá börnin sem ekki
hafa eitthvað komið nálægt
„tombólubisness“. Það er
meiriháttar spenna er maður
hefur fengið miðann í hendur,
nr. 19! Skyldi það vera Flóru-
búðingur eða IVfaggi grænmet-
issúpa? Jafnvel rispuð plata,
það væri toppurinn.
Því eru þessar vangaveltur
festar á blað, 'að hingað inn á rit-
stjórn komu 4 krakkar sem hald-
ið höfðu hlutaveltu fyrir Rauða
krossinn og safnað 175 krónum.
Þetta voru þau Heiðrún Björns-
dóttir, Birna Rún Arnarsdóttir ,
Aron Þór Arnarsson, stóri bróðir
Birnu og Hiimar Þór Pálsson.
Á fjölmennum félagsfundi var
ákveðið að bjóða þessum
krökkum uppá volgt mjólkurglas
og gráfíkjutertu, og spyrja þau
helstu tíöinda úr Ránargötunni.
Jú, jú tombólan gekk bara vel
og það var voða gaman en það er
ekki víst þau haldi aðra. Þau eru
mest að hjóla á daginn og á róló.
Hciörún á heima í Mývatnssveit
og fær ókeypis í sundlaugina af
því mamma hennar er sundlaug-
arvörður. Hún er núna á Akur-
eyri að passa Birnu. Altsvo
Heiðrún, ekki mamma hennar.
- Krakkar eruð þið ekki á
móti álveri?
Þau fara að hlæja og yppta
öxlum, ég veit það ekki jú, jú al-
veg eins. Þá fara óviðkomandi
blaðamenn að skipta sér af þessu
og „viljiði ekki láta gaumgæfa
þetta mál rækilega áður
en . . . . “ Heiðrúnu, Birnu, Ar-
oni og Hilmari finnast þessar um-
ræður ekki par skemmtilegar og
einbeita sér að mjólkinni volgu.
Við reynum fyrir okkur á öðrum
vígstöðvum: Trúið þið á Guð?
Þau brosa. Brosmild börn. „já,
svona stundum.“ Það fer kannski
eftir veðri? „Við erum sko búin
að vera á Vestmannsvatni og þar
eru alltaf bænir, líka á morgn-
ana. í hádeginu syngja allir: Lof-
ið drottinn fyrir þennan mat. Þið
trúið þá á Guð þegar þið eruð á
Vestmannsvatni? „Já.“
- Jæja krakkar mínir viljið þið
ekki hlaupa út í sólina og niður á
bryggju að veiða?
„Það er nú engin sól, og við
eigum enga veiðistöng.“ mþþ.
Nýtt
a
markað-
inum
Gerilsneytt og áfyllt af
Mjólkursamlagi KEA
Akureyrl
meS einkaleyfi frá
Tropicana Products Inc.
Flórida
100% hreinn
appelsínusafi
frá Flórida
Engumsykri,
litarefnum, rotvarnar-
efnum, né öðrum
aukaefnum er bætt í
I hverjum líter af safa eru u.þ.b. 2.4 kg
® af Flórida appelsínum
’ Mjólkursamlag KEA
Akureyri Simi 96-21400
s
A helgum degi
Texti: 2. Mós. 18.5
Nú er sá tími árs að umferð um
vegi landsins er hvað mest. Fjöl-
miðlar síendurtaka aðvaranir til
fólks uni að virða umferðarregl-
urnar. Allir eru sammála um að
reglur þessar eru til góðs. Ef allir
færu eftir reglunum, þá væri ör-
uggt að ferðast. En ef sú ein-
kcnnilega ákvórðun yrði tekin,
að afnema reglumar eða að
mönnum yrði sagt, það skiptir
ekki svo miklu máli hvort þið far-
ið eftir þeint, þá efast ég um að
svo margir myndu hætta sér út t
umferðina.
Við kennum börnum okkar
umferðarreglurnar og brýnum
fyrir þeim, að ekki sé nóg að
kunna reglurnar, það verður líka
að fara eftir þeitn. Þetta gerunt
við vegna þess að við elskum
börnin okkar og viljum ckki
missa þau.
Boðorð Guðs eru umferðar-
regur, sem hann hefur gefið
börnum sínutn svo þeim farnist
vel á lífslciðinni. Hann gaf okkur
orð sitt ög lög vegna þess aðhon-
um er annt am okkur og haiin vill
að við varðveitumst frá öllu illu.
Bæöi lífið og öll rcynsla þjóð-
anna kennir okkur, að það fylgir
engin blessun þvi að hafa að
engu Guðs góðu boöorð. Þjóð
scm lítilsvirðir helgi hjóna-
bandsins, fjölskylduna og heimil-
ið, verður að bera sjálf afleiðing-
ar synda sinna. Þjóð sem deyðir
börn sín í móðurlífi, getur ekki
vænst blessunar Guðs. Þeir sem
ekki gefa börnum sínum kristið
uppeldi vita ekki hvílíkt böl þeir
eru að leiða yflr sig og börn sín.
Þeir sem ekki varðveita og lifa
samkvæmt setningum og lioðum
Guðs, opna flóðgátt spillingar,
sem þeir síðan fá ekki ráðið við.
Brot á umferðarreglum Guðs er
ómenning, sem öllum ber að
varast.
Við þörfnumst róttækrar
vakningar, svo almenningur gefl
betur gaum að boðum Guðs.
Drottinn segir við okkur í orði
sínu á þessum degi: „Þér skuluð
því varðveita setningar mínar og
lög. Sá sem breytir eftir þeim
skal lifa fyrir þau.*‘
Þessi orð eru í fullu gildi í dag.
Þau eru leiðbeining Guðs til
þjóðar, sein er í þann veginn að
missa af Guðs blcssun.
__________Skúli Svavarsson.