Dagur - 18.07.1984, Page 6

Dagur - 18.07.1984, Page 6
6 - DAGUR -18. júlí 1984 Sérstaklega góður andi á staðnum - Rætt við Viðar Kristmundsson, matsmann í Rækjuvinnslunni á Dalvík Það var ekki leiðindasvipur á fólkinu í Rækjuvinnslunni á Dalvík þegar blaðamaður Dags rak þar inn nefið fyrir skömmu. Undirrituð minntist þess er hún stóð eitt sinn við færiband og tíndi rusl úr rækju og fannst það með eindæmum leiðinlegt. En þarna var sungið við færibandið, allir virtust glaðir og undu hag sínum vel. Á stöðum sem þessum eru ævinlega ábúðarfullir yfirmenn, en þennan daginn var yfirmaður- inn ekki við. Viðar Kristmunds- son, matsmaður var þá króaður af úti í horni og spurður spjörun- um úr, eða þannig. - Þessi framleiðsla er nýhafin, er ekki svo? Jú, jú, við byrjuðum í mars. Það var rækjuvinnsla hér á Dal- vík á árum áður, en starfseminni var hætt þar til í vetur. - Ertu innfæddur? Nei, það er ég ekki. Ég er fæddur og uppalinn á Akureyri. Fluttist hingað fyrir 4 árum og mér líkar mjög vel hérna. Konan er héðan og þess vegna flutti ég nú. - Hvaða menntun hafa matsmenn? Ég lærði þetta í Fiskvinnslu- skólanum, og heiti fiskiðnaðar- maður. Það er alltaf að aukast að yfirmenn í fiskiðnaðinum séu út- skrifaðir úr Fiskvinnsluskólan- um, ýmist fiskiðnaðarmenn eða fisktæknar. - Hefur reksturinn gengið vel? Ég er nú kannski ekki rétti maðurinn til að svara því. Við höfum ekkert getað selt ennþá, nema eitthvað um 20 tonn sem fóru í niðursuðuverksmiðju í Garðinum. Það er auðvitað erfitt að reka fyrirtæki án þess að selja neitt. Ég held að það sé sama sagan hjá öllum rækjuvinnslun- um. Það er sennilega offramboð af rækju í heiminum og lækkandi verð sem er skýringin á þessu. Það er nógur afli. Við erum með 6 báta í viðskiptum sem veiða eingöngu rækju. - Er langur vinnudagur hjá fólkinu? Það er unnið á tveimur vöktum. Fyrri vaktin er frá kl. 4 á nóttunni til kl. 12 á daginn og hin seinni frá kl. 1 á daginn til kl. 10 á kvöldin. Við erum bara með eina rækjuvél og til að geta unnið úr öllum aflanum verðum við að hafa þessar vaktir. Fólk hefur ekki kvartað yfir þessu fyrir- komulagi. Það vinna hérna alls um 30-35 manns. Næst stóð til að spyrja Viðar hvort kaupið væri gott. í því kemur ein stúlkan í gættina og hún fær þá bara spurninguna í staðinn. „Já, mjög gott kaup,“ var svarið og hananú. - En mannlíf á Dalvík almennt? Ég veit ekki hvað ég skal segja um það. Þegar maður vinnur svona mikið verður maður ekki var við það. Ég vinn frá kl. 4 á nóttunni til kl. 7 á daginn, lífið er því vinna og svefn. En ég held að það sé gott. Það er mjög góður mórall hér í rækjuvinnslunni, al- veg einstakur. Fólkið er alveg yndislegt upp til hópa. HJS Viðar Kristmundsson kann vel við sig á Dalvík. ■MH ■Baænæaaa 18. júlí 1984 - DAGUR - 7 Hér snýst allt um fiskinn - Rætt við Valdimar Bragason, framkvæmdastjóra Útgerðarfélags Dalvíkur hf. Reksturinn gengur ekki nógu vel, eins og fram hefur komið í fréttum. Undanfarið hefur verið halli á nær allri útgerð, ekki síður togaraútgerð, þetta er búið að vera svona í allmörg ár. Það er rekstur Utgerðarfé- lags Dalvíkinga sem hér um ræðir og það er Valdimar Bragason framkvæmdastjóri sem svo mælir. - Hvernig er hægt að reka út- gerðina endalaust með tapi? Þetta helst úti með því móti að safna skuldum og rýra fé í fyrir- tækjunum og svoleiðis rekstur gengur ekki til lengdar, þetta gengur því ekki endalaust. Horf- urnar eru ekki bjartar, þegar afl- inn dregst svona saman eins og hann hefur gert eru afkomu- möguleikar slæmir. Ástæðurnar fyrir því að þessu er haldið áfram svona er að þetta er undirstöðu- atvinnuvegurinn hér og í landinu öllu, við fáum þarna jyaldeyri sem við verðum að fá. Utgerðar- menn á Norðurlandi hafa skipað nefnd til að safna upplýsingum Teitur Gylfason. „Ég sit bara hérna þegar fram- kvæmdastjórinn er í fríi,“ sagði Teitur Gylfason, yfir- verkstjóri í Frystihúsinu á Dalvík, er farið var fram á smá spjall við hann. Teitur er fiskiðnaðarmaður, nýlega út- skrifaður úr Fiskvinnsluskól- anum og með ræturnar á Dalvík. - Hvað eru margir í vinnu hjá ykkur? „Það eru um 130-140 manns, með þeim sem eru á Hjalteyri. Við erum með skreiðarverkunina á Hjalteyri. Það eru 90-100 manns í frystingunni og 30-40 í skreiðarverkun og saltfiski. - Gengur vel? „Já, það hefur gengið mjög vel. Aflinn er að vísu minni en í fyrra, það hefur því dregist eitthvað saman hjá okkur. Ætli um stöðu útgerðarinnar í fjórð- ungnum, ég á sæti í þeirri nefnd og við höfum nú gert ráðherra grein fyrir stöðu þessara mála og vonumst til að hægt verði að leysa þennan vanda með sam- starfi. Við viljum ekki neinar þvinganir. Við vonumst til að út- gerðinni verði sköpuð þau skil- yrði að hægt verði að gera hana út án taps. - Hvað gerir framkvæmda- stjóri útgerðarfélags? Framkvæmdastjórastarfið er að mestu fólgið í rekstrarlegum þáttum, peningaumsvifum og slíku. Við sjáum eingöngu um rekstur togaranna, það er engin fiskverkun eða slíkt á okkar snærum. Það eru 4 togarar á Dal- vík og þar af eru 2 í eigu Útgerð- arfélags Dalvíkinga. - Er alltaf jafn eftirsótt að komast á togara? Það hefur verið það, en tekjur sjómanna hafa dregist aftur úr öðrum atvinnugreinum og það hefur leitt til þess að þessi störf eru ekki eins eftirsótt og áður Það var gerð örlítil lagfæring á kaupinu núna og menn eru ekki alveg eins óánægðir. Það eru samt engin vandræði að manna togarana, það er hins vegar meiri hreyfing í þessu. Meira um að menn hætti og fari í annað, áður voru þetta alltaf sömu mennirnir. - Nú varst þú bæjarstjóri hér á Dalvík í 9 ár, hver hefur þróun- in verið hér á staðnum á þessum tíma? Það hafa náttúrulega orðið töluverðar breytingar hér, íbúum hefur fjölgað og bærinn stækkað. Þrátt fyrir það hefur meginundir- staðan ekkert breyst, hér snýst allt um fiskinn og í kringum það er verslun og þjónusta, það hefur ekkert breyst. Breytingarnar hér voru í takt við það sem annars staðar gerðist, það var mikil upp- bygging á 8. áratugnum. Margt í fiskiðnaðinum hefur þó breyst, það er öruggari hráefnisöflun, það er skuttogurunum að þakka. Sumum finnst þeir vera bölvaldar alls núna, en ég er ekki sammála því. Það hefur ekki verið offjár- test í sjávarútvegi frekar en öðru í þjóðfélaginu. HJS „Strákarnir telja snyrtingu og pökkun vera verkefni fyrir stelpur“ - Heimsókn í frystihús Dalvíkur aflinn sé ekki um 10 tonnum minni en í fyrra á sama tíma. Við höfum dregið úr söltun og skreið- arverkun, en aukið frystinguna um 25%. Frystingin er það eina sem er hagkvæmt núna. Skreið- armarkaðir eru lokaðir og salt- fiskur hefur selst illa. - Á hvaða markaði fer fiskur? „Aðallega á Bandaríkjamark- að. Við höfum líka selt lausfryst- an karfa og grálúðu á Frakk- landsmarkað og þorsk á Bretland. Lausfrysti fiskurinn selst vel, hann losnar jafnóðum út úr húsinu. Markaðurinn hefur ekki enn mettast af lausfrystum fiski því það eru ekki öll frystihús komin með lausfrystitæki. í raun- inni er ekki slæm birgðastaða á neinu markaðslandi núna, en það er erfiðast á Bandaríkjamarkað, það er lægra verð þar. - Svo við snúum okkur þá að blessuðum kvótanum, kom hann illa niður á ykkur? „Nei, ekki svo mjög. Hann er ekki svo mikið lægri en aflinn var hjá okkur í fyrra. Kvótinn ætti ekki að klárast fyrr en seint í haust og það gæti þá orðið örlítið stopp hjá okkur í árslok. Annars er þetta allt svo óljóst að það er erfitt að spá nokkru. - Er eitthvert félagslíf í frysti- húsum. Er fólk ekki orðið svo út- keyrt eftir strit dagsins að það fer bara heim að hvíla sig? „Jú, hræddur er ég um það. Það er ekkert sérstakt félagslíf innan frystihússins. Fólk sér um sínar tómstundir sjálft. Það er haldin árshátíð og svo gerir fólk sér glaðan dag á Sjómannadag- inn. - Er mikið af skólakrökkum í vinnu hjá ykkur í sumar? „Já, það er nokkuð mikið. Við ráðum stelpur allt niður í 15 ára ef svo ber undir. Við verðum að gera það meðan sumarfríin eru. Aðspurður sagði Teitur að þetta væru aðallega stelpur. Strákarnir neita þó þeim sé boðin vinna, finnst snyrting og pökkun ekki vera við sitt hæfi. En það skal tekið fram að það fyrsta sem blaðasnápur sá á ferð sinni um húsið var strákur við snyrtingu. - Það er ekkert svartsýnishjal í ykkur? ,Nei, ég held að framtíðin sé bara björt. HJS. s»E ioflBn ::: Mjolkursamlag KEA ððð Akureyri Simi96-21400

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.