Dagur - 25.07.1984, Qupperneq 3
25. júlí 1984 — DAGUR - 3
„Einstæðir
foreldrar
verst settir“
- segir Jón Björnsson félagsmála-
stjóri Akureyrar en margir leita til
Félagsmálastofnunar um fjárhagsaðstoð
„Við afgreiddum 43 erindi í
júní frá fólki sem hafði leitað
til okkar um fjárhagsaðstoð,“
sagði Jón Björnsson félags-
málastjóri Akureyrarbæjar er
við ræddum við hann, og sagði
Jón að þetta væri nokkuð lægri
tala en verið hefði í vetur.
„Reyndar hittist þannig á í
júní að við vorum að afgreiða
ýmsar vistanir og sumardvalir
sem við tökum þátt í og það
hækkaði töluna eitthvað.
Pað er til í dæminu að sama
fólkið fái hér ávallt aðstoð en það
er mjög lítill hluti af heildinni.
Hinsvegar er algengt að fólk
komi hér á skrá og sé á skrá
nokkra mánuði á meðan það er
að komast í gegn um erfiðleika
þá sem það á við að stríða.“
- Er þetta fólk sem hefur lent
í atvinnuleysi?.
„Þetta getur komið til af ýms-
um ástæðum. Margt af þessu
fólki þarf að lifa af bótum og
sjúkradagpeningum og einstæðir
foreldrar eru nokkuð stór hópur
af þessu. Þetta eru hugsanlega
þeir hópar fólks sem verst hafa
farið út úr þeirri kaupmáttar-
skerðingu sem orðið hefur.
Einstæðir foreldrar eru í ein-
staklega erfiðri aðstöðu, sérstak-
lega ef einhver hörgull er á
vinnu. Þeir geta lent í því að það
kosti þá hátt í það jafn mikið að
kaupa gæslu fyrir börn eins og
vinnan gefur þeim svo í aðra
hönd. Þegar atvinnuleysi er svo
uppi er dálítið um að einstæðir
foreldrar hafi engar aðrar tekjur
en meðlag og mæðra- eða feðra-
laun og þeir geta ekki farið þang-
að sem vinnan er eins og barn-
laust fólk getur. Einstæðir fo'r-
eldrar geta lent í verstu aðstöð-
unni af öllum“.
- Er ástandið verra en undan-
farin ár, fleiri sem þurfa að fá
hjálp?.
„Það varð mikil breyting á
þessu árið 1982, þá fjölgaði mikið
þeim sem þurftu að fá hjálp. Það
er nokkuð um það núna að fólk
sé að velta áfram hlutunum sem
það ræður ekki við, sé að missa
húsnæði sitt og þetta fólk leitar
hingað," sagði Jón Björnsson.
Á fjórða þúsund
manns hafa
skrifað undir
— áskorun um að álverskosturinn
verði skoðaður til hlítar
Á fjórða þúsund Eyfirðingar
hafa undirritað áskorun um
að stóriðjukosturinn verði
skoðaður tii hlítar, sam-
kvæmt upplýsingum Jóns
Arnþórssonar, sem haft hef-
ur umsjón með söfnuninni.
Það er hópur áhugamanna um
framfarir við Eyjafjörð sem beitti
sér fyrir þessari undirskrifta-
söfnun, eftir að álversandstæð-
ingar byrjuðu fundarhöld og
undirskriftasöfnun gegn álveri á
svæðinu. í samtali við Jón kom
fram, að ákveðið hefur verið að
bíða með lokaátak söfnunarinnar
fram yfir sumarleyfi og miða
lokadag hennar við 15. septem-
ber. Þá eru flestir komnir heim úr
sumarleyfum og þá verður líka
afstaðin ferð til Kanada, þar sem
skoðuð verða álver Alcan. í
þeirri ferð verða fréttamenn og
helstu fulltrúar þeirra sem eru
með og á móti því að álvers-
kosturinn verði skoðaður til
hlítar. Sagðist Jón búast við auk-
inni umræðu um þessi mál að
þeirri ferð lokinni.
Jón sagði ennfremur, að á
þessum undirskriftalistum væru
eingöngu nöfn Eyfirðinga, ásamt
heimilisfangi og nafnnúmeri, og
enginn væri yngri en 18 ára.
„Okkar listar eiga því að segja
vilja Eyfirðinga í þessu brýna
hagsmunamáli," sagði Jón Arn-
þórsson í lok samtalsins. - GS
Leiðrétting á verðkönnun
Neytendasamtökin hafa beðið
fyrir leiðréttingu á einu atriði
varðandi nýlega verðkönnun sem
samtökin stóðu að. Þar var undir-
strikað, að epli væru ódýrust í
útibúi KEA við Byggðaveg. Það
er ekki rétt, því eins og sjá mátti
við lestur á niðurstöðum könnun-
arinnar voru eplin ódýrust í KEA
við Hrísalund. Þar með reyndist
Hrísalundur hafa 12 vörutegund-
ir ódýrastar af þeim sem könnun-
in náði til, eða jafnmargar og
Hagkaup.
Eigum úrval af reiðhjólum
3ja gíra á hagstæðu verði.
Einnig þríhjól.
Þá minnum við á útilegu-
vörurnar, tjöld, svefnpoka,
tjalddýnur o.fl. o.fl.
Sport-
og leikfangadeild.
:íl Einmg
Vonim uð tuku upp
smábamaskó í nokkrum geröum.
iniiig dömutöskur og -veski
Skódeild
Sambyggt útvarp
og segulband
á aðeins kr. 3.670,-
Kassettur áteknar og
óáteknar.
Hljómplötur í úrvali.
Einnig mikið úrval af sjónvörpum og
hljómflutningstækjum.
Þá minnum við á bílatækin frá Kenwood og
Audioline.
Hljómdeild.