Dagur - 25.07.1984, Page 11
25. júlí 1984-DAGUR-11
Tímaritið
Þroskahjálp
Tímaritið Þroskahjálp 2. tölu-
blað 1984 er komið út. Útgefandi
er Landssamtökin Þroskahjálp.
í ritinu er að finna ýmsar grein-
ar, upplýsingar og fróðleik um
málefni fatlaðra.
Sem dæmi um efni má nefna:
Þorsteinn Þorsteinsson frá
Skálpastöðum skrifar grein sem
hann nefnir „Um tímasprengj-
ur“. Greinina byggir hann á er-
indi sem hann flutti á Landsþingi
Þroskahjálpar síðastliðið haust,
um ráðgjöf og stuðning við for-
eldra fatlaðra barna.
Grein um atvinnumál ritar
Friðrik Sigurðsson og Einar
Hólm Ólafsson fjallar um
menntamál.
Frásögn af starfsemi Deildar
blindra og sjónskertra Álftamýr-
arskóla skrifuð af Þorbirni
Bjarnasyni.
Þá geinir Ásta María Hjalta-
dóttir frá tómstundarstarfi van-
gefinna unglinga og sagt er frá
myndlistasýningu á Sólheimum í
Grímsnesi.
Af öðru efni má nefna fasta
þætti s.s. „Af starfi samtakanna"
og „Hirt úr blöðum“.
Tímaritið Þroskahjálp er sent
áskrifendum og er til sölu á skrif-
stofu samtakanna Nóatúni 17,
105 Reykjavík. Áskriftarsíminn
er 91-29901.___________
Lauga-
hátíft
Héraðssamband S.-Þingeyinga
efnir nú í ár eins og undanfarin ár
til Laugahátíðar um verslunar-
mannahelgina. Að venju verður
vandað til dagskráratriða og alls
undirbúnings svo að flestir finni
eitthvað við sitt hæfi og megi líða
sem best í því fagra umhverfi,
sem Laugastaður býður upp á.
Forráðamenn þessarar sam-
komu hafa leitast við að skapa
það öryggi, sem til þarf, öllum
þeim sem sækja Laugahátíð. Það
er einlæg von Laughátíðarnefnd-
ar að Laugahátíð ’84 megi sýna
og sanna að hægt er að halda
fjöldasamkomu, þar sem sönn
hátíð ríkir meðal þátttakenda.
Tímaritið
Storð
Tímaritið STORÐ, fyrsta hefti
þessa árs, er nú komið út. Louisa
Matthíasdóttir, listmálari, prýðir
forsíðu ritsins og hefst það jafn-
framt á ítarlegu viðtali við hana,
eftir Matthías Johannessen, rit-
stjóra Morgunblaðsins. Grein-
inni fylgja nýjar myndir af lista-
konunni eftir Pál Stefánsson, svo
og myndir af málverkum hennar.
STORÐ efnir síðan til um-
ræðna um þekkingu ungs fólks á
íslandi á sögu sinni og menning-
ararfleifð, og taka þau Arnór
Hannibalsson, lektor, Ólafur
Proppé, lektor, Fríða Á. Sigurð-
ardóttir, rithöfundur, Vilhjálmur
Hjálmarsson, fyrrv. menntamála-
ráðherrá, Kristín Halldórsdóttir,
alþingismaður, Einar Kárason,
rithöfundur og Andrés
Björnsson, útvarpsstjóri þátt í
þeirri umræðu.
Með þessu tölublaði STORÐ-
AR skiljast jafnframt leiðir Har-
alds J. Hamar og Almenna bóka-
félagsins, sem gáfu út ritið í sam-
einingu frá upphafi. í inngangs-
orðum að STORÐ segir Harald-
ur: „Það hefur orðið að sam-
komulagi að hvor haldi til síns
heima - og STORÐ fylgi þeim
aðilanum sem sérhæft hefur sig í
útgáfu tímarita.“
DA LVl KURSKOLI
Skipstjórnarnám
Á Dalvík er starfrækt 1. stigs skipstjórnarnám
sem veitir rétt til stjórnunar fiskiskipa allt að
120 lestum. Námið er skipulagt í samvinnu við
Stýrimannaskólann í Reykjavík.
Umsóknir fyrir skólaárið ’84-’85 þurfa að berast
fyrir 20. ágúst.
Umsóknum fylgi:
a) Afrit af prófskírteini grunnskóla.
b) Vottorð um siglingatíma.
c) Heilbrigðisvottorð.
d) Augnvottorð frá augnlækni.
e) Sakavottorð.
f) Vottorð er staðfesti sundkunnáttu.
Upplýsingar gefur skólastjóri í símum 61380 og
61491.
Heimavist er á staðnum.
Skólastjóri.
Komið við í Byggðavegi
og verslið í ferðalagið.
Kjömarkaðsverð
er hagstætt verð.
Bifvélavirki
Nemi eða maður vanur bílaviðgerðum óskast á
verkstæði úti á landi. Umsóknir er greini nafn og
símanúmer sendist afgreiðslu blaðsins merkt:
„Bílaviðgerðir".
Dýrin kunna ekki umferðarreglur. Þess vegna þarf að sýna aðgæslu
í nánd þeirra. Hins vegar eiga allir hestamenn að kunna umferðar-
reglur og ríða hægra megin og sýna bílstjórum sams konar viðmót
og þeir ætlast til af þeim.
UMFERDAR
RÁÐ
Útboð
Kaupfélag Svalbarðseyrar auglýsir hér með eftir
tilboðum í flutning á starfsmönnum frá Akureyri til
Svalbarðseyrar til vinnu, og frá Svalbarðseyri til
Akureyrar að aflokinni vinnu. Um er að ræða
10—15 manns.
Útboðsgögn fást á skrifstofu Kaupfélag Sval-
barðseyrar þar sem allar frekari upplýsingar eru
veittar. Tilboðum ber að skila fyrir 15. ágúst nk. til
Kaupfélags Svalbarðseyrar.
Kaupfélag Svalbarðseyrar áskilur sér rétt til
að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Saurbæjarhreppur
Skattskrá Saurbæjarhrepps 1984 liggur frammi í
Torfufelli og Hleiðargarði frá 25. júlí til og með 8.
ágúst 1984.
Kærufrestur verður frá 25. júlí til og með 23.
ágúst nk.
Oddvitinn.
140 lítra kæliskápur.
Hæð 85 cm.
Breidd 45 cm.
Dýpt 60 cm.
Verð aðeins kr. 9.190,-
310 lítra kæliskápur.
Hæð 159 cm.
Breidd 55 cm.
Dýpt 60 cm.
Verð aðeins kr. 17.640,
410 lítra kæliskápur.
Hæð 160 cm.
Breidd 68 cm.
Dýpt 60 cm.
Verft kr. 24.600,-