Dagur - 08.08.1984, Side 2
2 - DAGUR - 8. ágúst 1984
Hefurðu tínt
sveppi?
Adam Ingólfsson:
Nei, aldrei.
Ása Þorsteinsdóttir:
Nei, aldrei.
Sigurlaug Sveinsdóttir:
Nei, það hef ég ekki gert.
Heiða Vagnsdóttir:
Nei, en ég hef áhuga á því og
jað er mikið borðað af svepp-
um heima hjá mér.
Pétur Kúld:
Nei, ég borða ekki gorkúlur.
- ef árangur á að nást í jafnréttisbaráttunni,
segir Karolína Stefánsdóttir, formaður Jafnrettisnefndar Akureyrar
„Ég er Hörgdælingur, flutti
hingað til Akureyrar 1980 og
hef unnið á ráðgjafar- og sál-
fræðideild skóla hér á Norður-
landi eystra.“ Það er Karólína
Stefánsdóttir, formaður Jafn-
réttisnefndar Akureyrar sem
komin er í Viðtal Dagsins.
Karólína var fyrst spurð um
upprunann og hvað hefði dreg-
ið hana til Akureyrar.
„Ég lærði félagsráðgjöf í
Þrándheimi í Noregi, flutti þaðan
til Bergen og vann þar og lærði
meira í 2 ár. Eftir árin tvö í Berg-
en flutti ég til Reykjavíkur og
vann þar á barnageðdeild í 1 ár
og þaðan kom ég svo hingað.“
- Geturðu sagt okkur eitthvað
af ráðgjafar- og sálfræðideildinni?
„Hún er deild innan fræðslu-
deildar skóla og við þjónum yfir
30 skólum hér á Norðurlandi
eystra. Við deildina starfa 2 sál-
fræðingar, sérkennarar og svo er
rúmlega 1/2 staða félagsráðgjafa.
Við förum í alla skóla í umdæm-
inu, höfum reynt að sinna stærstu
skólunum mest, en við höfum
ekki einu sinni getað sinnt þeim
almennilega. Það hefur verið
mikið að gera og mikið álag á
okkur með erfið mál. Hér er eng-
in barnageðdeild sem getur tekið
erfiðustu tilfellin og lítil geðþjón-
usta almennt, sem er mjög alvar-
legt. Þörfin fyrir þessa þjónustu
er miklu meiri en við getum
sinnt.“
- Jafnréttisnefnd. Hvað gerir
hún?
„Þessi nefnd er ný, varð til við
síðustu bæjarstjórnarkosningar.
Þegar við byrjuðum vantaði allt
skipulagt vinnuplan fyrir nefnd-
ina. Jafnréttisráð er bakstuðning-
ur og það var með hugmynd um
hvað jafnréttisnefndir sveitarfé-
laga ættu að gera, þetta hefur svo
verið að smá þróast. Við byrjuð-
um á því að taka okkur góðan
tíma til að ræða jafnréttismálin.
Það var ekkert vitað um stöðu
mála á Akureyri. Fjármagni var
veitt til að gera könnun á atvinnu-
þátttöku kvenna á Akureyri og
henni er nú lokið. Við gerðum
einnig könnun á því hvernig
jafnréttislögunum er framfylgt í
skólum og kom í ljós að í kennslu
er jafnrétti, t.d. fá börn bæði
kennslu í smíðum og hannyrð-
um, en það sem vantar er jafn-
réttiskennsla. Skólarnir sýndu
því áhuga að fá bækling til að
kenna eftir og hann er nú kominn
út. Það voru þær Valgerður
Magnúsdóttir og Guðrún Hall-
grímsdóttir sem unnu þennan
bækling."
- Hverjar voru helstu niður-
stöður könnunarinnar?
„Það sem var mest sláandi var
gífurlegur launamunur kynjanna.
Karlar hafa 49% hærri laun og
það sem er furðulegt við þetta er
að launamunur virðist aukast
með meiri menntun. Það er alltaf
sagt við konur að þær eigi bara að
mennta sig til að standa jafnfætis
körlum í launum, en það virðist
vera til lítils. Við gerðum sérstaka
könnun á starfsmönnum Akur-
eyrarbæjar og þar kom í ljós að
engin kona hefur fasta yfirvinnu,
það eru aðeins karlmenn sem
hafa þau hlunnindi. Með þessari
könnun vildum við líka vita hvað
væru kvenna- og hvað karlastörf.
Það kom í ljós að konur eru mik-
ið í opinberri þjónustu og iðnaði,
t.d. fiskiðnaði, þær vinna líka
meira árstíðabundin störf. Karlar
vinna fjölbreyttari störf, eru
meira í stétt eigenda, stjórnenda
og faglærðra.
Þetta er aðeins örlítið brot af
niðurstöðunum. Það mætti líka
nefna að það kom í Ijós að ástand
í dagvistunarmálum hér í bæ er
mjög slæmt. Það er engin dag-
vistun fyrir 74% barna á aldrin-
um O-ó ára. Þetta er mjög alvar-
legt ástand þegar svona margar
konur eru farnar að vinna úti.“
- Hvað er framundan hjá
nefndinni?
„Nefndin er sammála um að
viðhorfsbreyting þurfi að koma
til. Við ætlum því að leggja meiri
áherslu á fræðslu og breyta þann-
ig viðhorfunum. Það verður
fundur með skólastjórum þar
sem bæklingurinn verður
kynntur. Á næsta ári lýkur áratug
kvenna, sem hófst með kvenna-
árinu 1975. Þá ætla kvennasam-
tök og jafnréttissamtök að gera
eitthvað og við verðum með í
því. Það hefur verið rætt um
göngu kringum landið og fleira;
Nefndin hefur áhuga á að fá hing-
að ráðstefnu um jafnréttis- og
skólamál sem haldin var í
Reykjavík í vor. Þeir sem héldu
hana eru tilbúnir að koma hingað
norður.“
- Er staða jafnréttismála hér
lakari, en t.d. í Reykjavík?
„Það er erfitt að segja til um
það. Það er fjöibreyttari þjónusta
í Reykjavík og fleira menntafólk
og það hefur sín áhrif. En mér
hefur fundist mikill áhugi á þess-
um málum hér. Það hefur verið
skemmtilegt að búa hér á undan-
förnum árum, það er vakning og
alltaf eitthvað að gerast. Ég vona
að karlarnir átti sig á því hvað
þetta er mikilvægt fyrir þá líka.
Ég vil taka svo sterkt til orða að
þetta snerti framtíð mannkyns,
þ.e. að þeir taki meiri þátt í fjöl-
skyldulífinu og að gildi karla og
kvenna komist í jafnvægi. Þetta
er mjög flókið og það eru margir
sem misskilja jafnréttisbarátt-
una, halda að konur vilji verða
eins og karlar. Það er ekki svo
með þorra kvenna, þær vilja bara
að sín gildi séu metin til jafns við
gildi karla.“ -HJS
Karolína Stefánsdóttir.
Margir hafa
áður hjólað
yfir kaldan
Sprengisand
Jón Jónssnn á Fremstafelli hafði
samband við blaðið.
Ég bjó að Mýri í Bárðardal fram
til ársins 1940. Á þeim tíma er ég
bjó þar man ég eftir einum Breta
sem kom hjólandi yfir Sprengi-
sand og auk þess tveimur ungum
íslendingum. Þeir gætu hafa ver-
ið fleiri sem þetta léku þótt ég
muni ekki eftir því.
Þjóðverjarnir tveir sem Dagur
ræddi við á dögunum og höfðu
hjólað yfir Sprengisand voru því
ekki fyrstir til þess eins og þeir
gáfu í skyn.
Karnival verði
sumarkveðjuhátíð
Kona á Akureyri hringdi:
Ég var að lesa Dag og sá þá í les-
endahorninu tillögu frá lesanda
um nafnið karnival sem honum
líkar ekki og mér ekki heldur.
Mér hefur dottið í hug að það
væri ekki svo galið að kalla þetta
„Sumarkveðjuhátíð á Akureyri"
og halda þessa hátíð um miðjan
ágúst. Mér finnst þetta vera þess
virði að koma því á framfæri til
athugunar.