Dagur - 08.08.1984, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 8. ágúst 1984
„Strákarnir leggja sig
fram í íþróttunum“
— Björgvin Jörgensson segir frá degi á Hólavatni
Á Hólavatni hefnr KFUM
og K rekið sumarbúðir fyrir
börn frá árinu 1965. Þar hef-
ur frá upphafi verið for-
stöðumaður Björgvin Jörg-
ensson, hann hefur sér til
aðstoðar foringja, sem eru
unglingspiltar og ráðskonur
tvær, Þóreyju Sigurðardótt-
ur og Valgerði Önnu Sig-
urðardóttur. Við litum inn
á Hólavatni í síðustu viku og
ræddum þá við Björgvin um
lífið og starfið í sumarbúð-
unum.
„Það er ekki fullur flokkur hjá
okkur núna, mest geta verið hér
28 börn í einu. Þau eru á aldrin-
um 8-12 ára og skiptast á
drengja- og stúlknaflokkar. Yfir-
leitt eru fjórir flokkar yfir sumar-
ið, tveir drengja og tveir stúlkna.
Þetta er með minnstu sumarbúð-
um sem ég veit um. Það er miklu
heimilislegra að hafa sumarbúðir
litlar. Þá er betra tækifæri til að
kynnast öllum mjög vel. Það
skapast mjög gott samband, en
þegar börnin eru orðin 80-90 þá
verða persónuleg tengsl mikið
minni."
- Tilgangur sumarbúðanna er
kristilegur?
„Já, markmiðið er að kynna
börnunum kristindóminn. Sum-
arbúðirnar eru reknar innan
kirkjunnar en ekki undir hennar
stjórn. Það er mun sjálfstæðara
starf sem þannig vinnst. Grund-
völlur sumarbúðanna er hin lút-
erska trú. Börnin sem hingað
koma eru þó ekkert endilega úr
KFUM og K, en samt er nú mik-
ið um það.“
- Koma þau víða að?
„Já, þau gera það. Oftast eru
nú flestir frá Akureyri, en það er
talsvert um börn frá öðrum
stöðum líka. Það koma hingað
börn frá Ólafsfirði, Reykjavík og
Mosfellssveit svo ég nefni dæmi.
Sumarbúðirnar að Hólavatni eru
þekktar víða.“
- Getur þú sagt okkur frá því
hvernig dagurinn líður hjá
ykkur?
„Hversdagslega er vakið kl.
8.30 og þá þvo drengirnir sér og
bursta tennur sínar. Síðan förum
við út að fána og fáninn er
hylltur. Við syngjum sérstakan
söng eftir Friðrik Friðriksson
stofnanda KFUM. Þá er komið
að morgunverði, sem oftast er
brauð og mjólk, hafragrautur og
súrmjólk. Á sunnudögum er
kakó til tilbreytingar.
Eftir morgunverð er biblíulest-
ur. Drengirnir koma með Nýja
testamentið með sér og við kenn-
um þeim að fletta upp í því og
förum síðan yfir helstu kjarnaat-
riði kristindómsins.
Um tíuleytið eru íþróttir á
dagskrá. Oftast velja strákarnir
að fara í fótbolta og við höfum
ágæta aðstöðu til þess, það eru
hér tveir vellir. Frjálsar íþróttir
eru einnig vinsælar, hástökk,
langstökk og ýmiss konar hlaup.
Það er siður hér að skrá öll met
og hefur verið gert frá fyrstu tíð.
Það er hægt að setja Hólavatns-
met og einnig aldursfiokkamet og
það er mikill hugur í drengjunum
að slá metin, því þau eru öll
skrásett og nöfn methafanna eru
birt uppi á sérstakri töflu. Þeir
leggja sig mikið fram í íþróttun-
um.
íþróttir eru stundaðar fram að
mat, og eftir hádegi er ekki
skipulögð dagskrá, svona yfir-
leitt. Þeir geta verið hvort heldur
sem er úti eða inni. Oftast fara
þeir niður að vatni og leika sér í
bátunum, en það er rétt að komi
fram hér, að enginn fær að fara út
á vatn án þess að vera í björgun-
arvesti.
Klukkan 7 að kvöldi blásum
við til fánakveðju og þá safnast
allir saman við fánann aftur og
annar söngur eftir Friðrik er
sunginn. Eftir kvöldverð er frjáls
stund um tíma eða fram að
kvöldvöku. Foringjarnir undir-
búa hana og þar er margt sér til
gamans gert. Leikir, skrýtlur,
upplestur og margt fleira. Eg er
að lesa framhaldssögu sem ég
þýddi í sumar og hefur enn ekki
fengið endanlegt heiti, en við
köllum hana: „Getur flugvélin
lent“. Ég les handritið fyrir þá og
ekki annað að sjá en þeim líki
vel.
Eftir kvöldvökuna fá drengirn-
ir ávexti eða djús og kex og fara
svo niður og bursta tennur. Þegar
allir eru komnir í rúmið, les ég
aðra framhaldssögu: „Börn óveð-
ursins". Við endum síðan hvern
dag með kvöldbæn og um 22.30
er farið að sofa. Annars biðja
þeir mig alltaf að lesa lengur, sag-
an er svo spennandi.
Á helgidögum er dagskráin
ekki alveg eins, við höfum ein-
hvers konar barnaguðsþjónustu
á sunnudögum í stað biblíulest-
ursins, syngjum barnasálma og
einhver þátttakenda les pistil og
við höfum trúarjátninguna ævin-
lega yfir.
Meðan á dvalartímanum
stendur förum við í dagsferð inn
í Leyningshóla og göngum þar
um og skoðum. Við tökum með
okkur nesti og drengirnir hafa af-
skaplega gaman af þessari ferð.
Þarna er farið í leiki sem foringj-
arnir hafa með að gera, það fer
allt eftir hvernig foringjarnir eru
innréttaðir hvað er gert. Stund-
um er farið í reiptog, svo er ansi
vinsæll leikur sem við köllum
„falinn fjársjóð“, þá eru dreng-
irnir látnir leita að vísbendingum
að því hvar fjársjóðurinn er og
fikra sig smám saman að honum.
Síðasta kvöldið endar með
veislu og þá koma foreldrar
stundum í heimsókn. Veislan
byrjar klukkan 8, við kveikjum
upp í arni og það er mikið um að
vera hjá okkur, góður matur og
ýmsir leikir er flokknum hafa
þótt skemmtilegir."