Dagur - 08.08.1984, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 8. ágúst 1984
Oft var
mjc itt á
m nnni
- Jöfn og spennandi keppni á íslandsmótinu
í hestaíþróttum á Vindheimamelum um helgina
„Viö erum ánægöir með
hvernig mótið gekk fyrir
sig; við vorum heppnir
með veður og tímasetning-
ar stóðust nær upp á mín-
útu,“ sagði Ingimar Ingi-
marsson, mótsstjóri Is-
landsmótsins í hestaíþrótt-
um, sem fram fór á Vind-
heimamelum í Skagafirði
um helgina. Mikið fjöl-
menni var á Melunum, lið-
lega 2.000 manns þegar
flest var, og skemmtu allir
sér hið besta. Að sögn lög-
reglunnar á staðnum átti
hún náðuga daga og
nætur. Að vísu höfðu
margir með sér söngolíu á
glasi, „en það var ekki
nema rétt til að hífa upp
húmorinn og sönginn,“
eins og einn úr mótsstjórn-
inni orðaði það.
Mótið hófst á föstudag með
forkeppni, sem síðan var fram-
haldið á laugardag, en á sunnu-
daginn var keppt til úrslita. Alla
dagana var samfelld dagskrá frá
morgni til kvölds og stóðust tíma-
setningar nær upp á mínútu.
Þannig var alltaf eitthváð um að
vera á mótssvæðinu og fram-
kvæmd mótsins öll Skagfirðing-
um til mikils sóma.
0 Vel ríðandi
unglingar
Unglingarnir sem kepptu á mót-
inu voru vel ríðandi og stóðu sig
með miklum sóma, eða eins og
Ragnar Tómasson, annar af þul-
um mótsins orðaði það; þessir
krakkar hefðu getað unnið hvaða
gæðingakeppni sem var fyrir
nokkrum árum.
Hjörný Snorradóttir reið
Krumma frá Gunnarsholti og voru
þau sigursæl á mótinu. Þau unnu
í fjórgangi 12 ára og yngri, en í 2.
sæti varð Örn Ólason frá Akur-
eyri og Borghildur Kristinsdóttir
varð í 3. sæti. Hjörný og Krummi
sigruðu einnig í tölti, Eiður Matt-
híasson frá Akureyri á Funa varð
í 2. sæti og Örn Ólason á Kubb
varð 3. Hjörný varð einnig stiga-
hæst af knöpum 12 ára og yngri,
Reynir Þrastarson sigraði í ís-
lenskri tvíkeppni sama aldurs-
hóps.
Sólveig Ásgeirsdóttir á Bokku
undan Hrafni frá Kröggólfs-
stöðum var sigursæl í flokki ungl-
inga 13-15 ára. Sólveig er félagi í
Fáki og hún sigraði í fimmgangi.
í 2. sæti varð Helgi Eiríksson á
Steinnes-Blesa og Helgi Ingi-
marsson á Sokka Sörlasyni varð
í 3. sæti. Sólveig sigraði einnig í
fjórgangi í sínum flokki, en þá á
Neista Sörlasyni frá Borgarnesi.
í 2. sæti varð Hinrik Bragason á
Erli Trítilssyni og í 3. sæti varð
Róbert Jónsson á Djákna Þáttar-
syni. Og Sólveig gerði það ekki
endasleppt, því hún sigraði jafn-
framt í tölti 13-15 ára unglinga og
enn á Neista Sörlasyni. Hinrik
Bragason varð í 2. sæti á Erli og
Sonja Grant varð í 3. sæti á
Drottningu. Þar með sigraði Sól-
veig í stigakeppni knapa í þessum
aldursflokki, en Hinrik Bragason
sigraði í íslénskri tvíkeppni.
• Mjótt
á munum
Það var mjótt á munum hjá ungl-
ingunum; munaði sáralitlu á sig-
urvegurunum og þeim sem
höfnuðu í næstu sætum á eftir.
Sömu sögu var að segja hjá þeim
fullorðnu; þar var enn mjórra á
munum, ef eitthvað var. Og úr-
slitin voru ekki ráðin fyrr en síð-
asta daginn, því það kom fyrir að
röðun breyttist verulega í úrslita-
keppninni. Þannig voru dæmi
þess að knapi og hestur, sem
hafnað höfðu í 4. sæti í stigagjöf
forkeppninnar, ynnu sig upp í
sigursætið þegar að niðurröðun-
inni kom í úrslitunum.
í fjórgangi sigraði Sigurbjörn
Bárðarson frá Fáki á Gára
Blossasyni úr Strandasýslu. í 2.
sæti varð Þórður Þorgeirsson á
Snjalli Ófeigssyni og Einar Ö.
Magnússon varð þriðji á Tinnu
Sörladóttur. Einar og Tinna
komu, sáu og sigruðu í töltinu á
sunnudaginn, eftir að hafa verið
í 4. sæti í undankeppninni. Tinna
fór á kostum og skaust með Ein-
ar upp í fyrsta sæti í úrslitakeppn-
inni. Hún var jafnframt kjörin
fallegasti hestur mótsins af
„leynilegri dómnefnd“ og var vel
að þeim heiðri komin eins og hún
bar sig.
Sörli 653, sá eini sanni frá
Sauðárkróki, getur verið stoltur
af afkvæmum sínum, sem í mörg-
um greinum voru í röð fremstu
hesta á mótinu. í öðru sæti í tölt-
inu varð Þórður Þorgeirsson á
Snjalli Ófeigssyni. Sigurbjörn
Bárðarson varð 3. á Gára og
Gylfi Gunnarsson varð 4. á Krist-
al frá Kolkuósi.
í fimmgangi sigraði Ragnar
Ingólfsson á Þorra Sigurðar Snæ-
björnssonar á Höskuldsstöðum
eftir jafna og spennandi keppni.
í 2. sæti varð Einar Magnússon á
Gosa Stígandasyni frá Stykkis-
hólmi og Ragnar Hinriksson varð
3. á Sörla frá Norðurtungu
Gustssyni 923. Tómas Ragnars-
son varð 4. á Ási Háfetasyni 804
og í 5. sæti varð Guðni Jónsson á
Don Camillo frá Stóra-Hofi.
í hindrunarstökki sigraði Sig-
urbjörn Bárðarson á Gára með
79.56 stig. í öðru sæti varð Erling
Sigurðsson á Hannibal Stjarna-
syni 610 með 74.8 stig.
í gæðingaskeiði varð Tómas
Ragnarsson hlutskarpastur á Ási
Háfetasyni og hlutu þeir félag-
arnir samtals 85.5 stig. En það
var mjótt á munum, því Reynir
Aðalsteinsson varð í 2. sæti á
Hörpu Hrafnsdóttur með 83.5
stig og Erling Sigurðsson varð 3.
með 79 stig. Það var líka jöfn og
spennandi keppni í hlýðniæfing-
um, en Reynir Aðalsteinsson og
Harpa stóðu uppi sem sigurveg-
arar í lokin. Þau hlutu 33.2 stig,
en Benedikt Þorbjörnsson á
Styrmi Ófeigssyni varð 2. með
31.5 stig. í 3.-4. sæti urðu Erling
Sigurðsson á Hannibal og Guðni
Jónsson á Röðli Reynissyni frá
Árgerði.
Þórður Ragnarsson sigraði í ís-
lenskri tvíkeppni fullorðinna
með 148.14 stig. Tómas Ragnars-
son sigraði í skeið-tvíkeppni með
212.1 stig og Erling Sigurðsson
sigraði í ólympískri tvíkeppni
með 109.76 stig. Erling var jafn-
framt stigahæsti knapi mótsins og
reið frá móti þakinn gull,-silfur-
og bronspeningum eins og orðu-
lagður hershöfðingi, auk þess
sem hann hampaði veglegum
bikar. -GS
Fimm efstu gæöingarnir í töltinu; f.v. Baldvin Guölaugsson á Senjor, Gylfi Gunnarsson á Kristal, Sigurbjörn Bárðarson á Gára,
Þórður Þorgeirsson á Snjalli og sigurvegararnir, Einar Magnússon og Tinna Sörladóttir.
Erling Sigurðsson var sem orðulagður hershöfðingi.
Ragnar Ingólfsson og Þorri Sigurðar á Höskuldsstöðum sigruðu í flmmgangi.
Þau sigruðu í tölti unglinga 13-15 ára; f.v. eru Sonja Grant á Drottningu, Hinrik
Bragason á Erli og sigurvegararnir, Sólveig Asgeirsdóttir og Neisti Sörlasonur.
Einar Magnússon á Tinnu. JeXt’ 0g myildÍr: GS