Dagur - 08.08.1984, Blaðsíða 9
8. ágúst 1984 - DAGUR - 9
KA og Þór leika á laugardag í
Akureyrarmótinu í knatt-
spymu og hefst leikurinn á
aðalvellinum kl. 14.
Öruggt má telja að bæði liðin
tefli fram sínum bestu mönnum,
því mikið er í húfi. Það lið sem
sigrar í þessum leik hlýtur Akur-
eyrarmeistaratitil og auk þess %
af ailri innkomu á leikinn. Það er
því orðið fjárhagslegt atriði fyrir
félögin að tefla fram öllu sínu
sterkasta og sigra.
Verði jafnt að venjulegum
leiktíma mun verða framlengt og
ef framlengingin nægir ekki til
þess að fá úrslit fer fram víta-
spyrnukeppni.
Opið
mút á
Húsa-
vík
„Við eigum von á miklum
fjölda kcppenda á þetta mót
hjá okkur og það er allt til
reiðu hjá okkur að taka við
fjölmenni, völlurinn mjög góð-
ur og allt klárt,“ sagði Skúli
Skúlason formaður kapp-
leikjanefndar Golfklúbbs
Húsavíkur, en Opna Húsavík-
urmótið verður haldið um
næstu helgi.
Mótið hefst kl. 9 á laugardag
og verður síðan fram haldið kl. 8
á sunnudagsmorgun. Leiknar
verða 36 holur með og án forgjaf-
ar og keppt verður í karlaflokki,
kvennaflokki og drengjaflokki.
KA-peningur
til sölu
Knattspyrnudeild KA hefur
gefíð út „KA-peninginn“ en
það er veglegur peningur í
öskju, sleginn af fyrirtækinu
ÍS-SPOR í Reykjavík.
Upplagið er 300 stk. og er
Sveinn Kristjánsson á Akureyri
„yfirsölustjóri“ peningsins. Ut-
gáfa peningsins er liður í fjár-
öflun knattspyrnudeildar KA og
er mönnum bent á hið takmark-
aða upplag.
Vona að menn
verði tilbúnir“
- segir Helgi Ragnarsson sem þjálfar KA í handboltanum í vetur
„Ég er bara í stuttri ferð hérna
núna, var með eina æfingu og
lagði Iínur fyrir næstu vikurnar
en Þorleifur Ananíasson mun
sjá um liðið þangað til ég kem
aftur í byrjun september,“
sagði Helgi Ragnarsson þjálf-
ari handknattleiksliðs KA í
stuttu spjalli við Dag um helg-
ina.
Helgi er enginn nýgræðingur
þegar þjálfun er annars vegar.
Hann hefur í mörg ár verið við-
riðinn þjálfun bæði í handknatt-
leik og knattspyrnu. S.l. vetur
var hann aðstoðarmaður Geirs
Hallsteinssonar með FH-liðið
sem var ósigrandi þá, og í sumar
er hann aðstoðarmaður og lið-
stjóri FH í knattspyrnu. Hann
hefur m.a. þjálfað handbolta-
menn í Vestmannaeyjum og Fær-
eyjum með góðum árangri og
einnig gerði hann kvennalið FH
að íslandsmeisturum á sínum
tíma.
„Þetta leggst vel í mig hérna á
Akureyri með KA-liðið,“ sagði
Helgi. „Ég vona bara að menn
verði tilbúnir til þess að leggja sig
fram við það verkefni okkar að
efla handboltann í KA og ef
menn eru tilbúnir að taka á mál-
um af krafti er ég óhræddur.“
- Nú hafa gamlir refir í KA-
liðinu hætt keppni, ert þú ekki
kvíðinn þess vegna?
„Nei, ég sé enga ástæðu til
þess, því það kemur alltaf maður
í manns stað og KA á mjög efni-
lega leikmenn eins og t.d. Jón
Kristjánsson. En allt snýst þetta
að mínu mati um það hvort menn
eru tilbúnir að færa þær fórnir sem
þarf til þess að ná árangri.
Ég mun fá upplýsingar frá
Birgi Björnssyni, mínum gamla
félaga og þjálfara úr FH, hann
gjörþekkir öll mál hjá KA og það
verður gott að geta leitað til hans
ef ég þarf á því að halda.“
,0ruqqur siqur á
brúðkaupsdaqinn“
— Jón Þór Gunnarsson sigraði í Jaðarsmótinu í golfi
og gekk svo í hjónaband sama daginn
Jón Þór Gunnarsson golfleik-
ari í Golfklúbbi Akureyrar tók
daginn snemma sl. sunnudag.
Hann var mættur á teig síöari
dag Jaðarsmótsins kl. 8 um
morguninn og er hann hafði
lokið við að spila 18 holur og
tryggt sér sigur í mótinu hélt
hann strax af golfvellinum og í
kirkju þar sem hann gekk í
hjónaband með unnustu sinni
Birgittu Guðmundsdóttur.
Þegar verðlaunaafliendingu
mótsins var lokið voru honum
síðan færð hin glæsilegu sigur-
laun Jaðarsmótsins í brúð-
kaupsveisluna af formanni
Golfklúbbs Akureyrar Gísla
Braga Hjartarsyni.
Um 70 keppendur mættu til
leiks í Jaðarsmótið að þessu sinni
og leiknar voru 36 holur með og
án forgjafar. Blíðskaparveður
var báða keppnisdagana, sérstak-
lega á laugardag þegar keppend-
ur sem komu í mótið af Suður-
landi voru að niðurlotum komnir
og kvörtuðu mikið vegna hitans
sem þeir eru óvanir.
Úrslit mótsins urðu þau að án
forgjafar sigraði Jón Þór Gunn-
arsson sem fyrr sagði, en hann
lék á 155 höggum. Skúli Skúlason
frá Húsavík tryggði sér annað
sætið örugglega á 159 höggum og
þeir Gunnar Þórðarson GA og
Axel Reynisson GH voru jafnir í
3.^1. sæti.*Þeir fóru í bráðabana
um 3. sætið og þá hafði Gunnar
það af að sigra í 3. tilraun.
Ásmundur Bjarnason, hinn
gamalreyndi íþróttamaður sem
m.a. var í fremstu röð íslenskra
frjálsíþróttamanna hér á árum
áður og býr á Húsavík sigraði í
keppni með forgjöf, lék á 141
höggi nettó. Jón Þór Gunnarsson
varð þar í 2. sæti á 143 höggum
og Arnór Þorgeirsson GA þriðji
á 145 höggum.
Útvegsbanki íslands á Akur-
eyri gaf öll verðlaun í mótið og
voru þau hin glæsilegustu. Gísli
Bragi Hjartarson formaður GA
og fulltrúi Útvegsbankans Har-
aldur Sigurðsson sáu svo um
verðlaunaafhendinguna í móts-
lok.
Nú skal
leika
til
þrautar