Dagur - 13.08.1984, Qupperneq 1
GULLSMIOIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREVRI
\ Wí ll't
FILMUhúsib akureyri 1
67. árgangur
Akurcyri, mánudagur 13. ágúst 1984
91. tölublað
Harkan
var í
fyrirrúmi
- Iþróttir í opnu
Engin mengunarvandamál
hjá nýrri álverksmiðju
- segja fulltrúar bænda í Kanada og mengunarsérfræðingar Alcan
„Það var samdóma álit sér-
fræðinga Alcan í mengunarmál-
um og fulltrúa bænda sem rætt
var við um þessa nýju verk-
smiðju, að engin mengunar-
vandamál væru samfara rekstri
hennar,“ segir m.a. í sameigin-
legri fréttatilkynningu, sem
þátttakendur í kynnisferð Alcan
til Kanada hafa sent frá sér.
Jafnframt er það undirstrikað í
fréttatilkynningunni að náttúru-
fræðilegar aðstæður í nágrenni
vcrksmiðjunnar sem skoðuð var
séu að töluverðu leyti frá-
brugðnar aðstæðum í Eyjafírði.
Undir þetta skrifa þátttakend-
ur í ferðinni; Valur Arnþórsson,
Finnbogi Jónsson, Hermann
Sveinbjörnsson, Ingimar Brynj-
ólfsson, Jóhannes Geir Sigur-
geirsson, Jón G. Sólnes, Jón Sig-
urðarson, Tómas Ingi Olrich,
Tryggvi Gíslason, Valgerður
Bjarnadóttir og Þóroddur Þór-
oddsson. Tilgangur ferðarinnar
var að kynnast starfsemi Alcan í
áliðnaði svo og hvaða áhrif slíkur
iðnaður hefur á hérað þar sem
landbúnaður er snar þáttur í at-
vinnustarfseminni. Skoðað var
héraðið St. Jean, sem er hluti
Quebecfylkis og er af svipaðri
stærð og ísland og íbúafjöldinn
um 270 þúsund manns. Helstu
auðlindir héraðsins eru vatns-
orka, barrskógar og graslendi,
sem nýtt er til kvikfjárræktunar.
Héraðið er eitt helsta mjólkur-
framleiðslusvæði Kanada.
Fyrirkomulag ferðarinnar var
skipulagt fyrirfram af hálfu
Alcan, en ákveðnar breytingar
voru gerðar á dagskrá í samræmi
við óskir hópsins. Meðal annars
var komið á fundi mcð fulltrúum
bændasamtaka í héraðinu og far-
ið var í kynnisferð á kúabú sem
Alcan rekur í 5 km fjarlægð frá
einni af eldri álverksmiöjum
fyrirtækisins í héraðinu. í máli
fulltrúa bænda kom fram að ýms-
ir erfiðleikar hefðu komið fram í
sambúð landbúnaðar og áliðju á
fyrri áratugum, en þau vandamál
væru nú úr sögunni eftir að bætt-
ar mengunarvarnir hefðu komið
til. Fréttatilkynning þátttakenda
í kynnisferðinni er birt í heild á
bls. 8 og 9 í blaðinu í dag ásamt
myndum úr ferðinni. - GS
Hólahátíð var haldin að Hólum í Hjaltadal í gær og var fjölmennt á staðnum. Hér ganga biskupar, prófastar og prestar frá messu, fremstur
er sr. Pétur Sigurgeirsson, biskup, en síðan vígslubiskuparnir sr. Sigurður Guðmundsson og sr. Ólafur Skúlason. Mynd: GS.
„Þetta er búið að vera
að velkjast í kerfinu“
- segir Jón Helgason formaður Einingar um endurskoðun á
sérkjarasamningi ófaglærðs starfsfólks á sjúkrahúsinu og fleiri stöðum
„Þetta mál er búið að vera að
velkjast í kerfínu, og óvíst
hvort búið verður að afgreiða
það þegar við setjumst að
samningaborði,“ sagði Jón
Helgason formaður Einingar
er við ræddum við hann um
endurskoðun á sérkjarasamn-
ingi milli ófaglærðs starfsfólks
á sjúkrahúsum, elli- og dvalar-
heimilum og dagvistunarstofn-
unum sem er í Einingu, og
Akureyrarbæjar.
f sérkjarasamningum s.l. vor
samdi Eining fyrst um ákveðna
hluti fyrir þetta fólk. Síðan kom
verkalýðsfélagið á Húsavík á eft-
ir og náði mun hagstæðari samn-
ingum. Alþýðusamband Norður-
lands annaðist svo samninga fyrir
Siglufjörð, Sauðárkrók og
Blönduós og þeir samningar sem
þar náðust voru mitt á milli þess
sem samið hafði verið um á Ak-
ureyri og á Húsavík.
Verkalýðsfélagið Eining fór
þess vegna fram á það að
samningarnir yrðu endurskoðað-
ir, og færðir til samræmis við það
sem samið hafði verið um fyrir
vestan.
„Það er ekkert stórt sem þarna
munar,“ sagði Jón Helgason. „Ef
við gerum alhliða samanburð
gæti ég trúað að þarna munaði 3-
5%. Kjarasamninganefnd Akur-
eyrar hafnaði málaleitan okkar
samhljóða, en í bæjarráði náðist
naumur meirihluti fyrir þessu. Ég
veit hins vegar ekki hvað gerist í
bæjarstjórninni n.k. þriðjudag
þegar málið verður tekið fyrir
þar. Það er slæmt að sumt af því
fólki sem stóð að samþykktinni í
bæjarráði verður víst ekki við-
statt á bæjarstjórnarfundinum á
þriðjudag,“ sagði Jón.