Dagur - 13.08.1984, Qupperneq 8
8 - DAGUR -13. ágúst 1984
«
Lærdómsrík ferð Eyfirðinga í álverksmiðjur Alcan í Kanada
Vinnuskilyrði í alla
staði mjög góð
— Sameiginleg fréttatilkynning ellefumenninganna sem fóru til Alcan
Sameiginleg fréttatilkynning frá
þátttakendum í kynnisferð til
Kanada:
Dagana 7.-10. ágúst sl. fór 11
manna hópur Eyfirðinga í kynn-
isferð til Kanada og heimsótti
kanadíska álfyrirtækið Alcan.
Tilgangur ferðarinnar var að
kynnast starfsemi Alcan í áliðn-
aði svo og hvaða áhrif slíkur iðn-
aður hefur á hérað þar sem land-
búnaður er mikilvægur þáttur í
atvinnustarfseminni. Petta
hérað, sem heitir Sagueny-
St. Jean og er hluti Quebecfylkis,
er af svipaðri stærð og ísland og
íbúafjöldinn um 270.000 manns.
Helstu auðlindir héraðsins eru
vatnsorka, barrskógar og gras-
lendi sem nýtt er til kvikfjárrækt-
ar. Héraðið er eitt helsta mjólk-
urframleiðslusvæði Kanada.
Öll sú orka sem verksmiðjur
Alcan nota í Kanada kemur frá
eigin orkuverum. Orkufram-
leiðsla Alcan í umræddu héraði
er um 2.700 MW, sem er rúmlega
þrisvar sinnum meira en öll raf-
orkuframleiðsla á íslandi.
Fyrirkomulag ferðarinnar var
skipulagt fyrirfram af hálfu Alcan
en ákveðnar breytingar voru
gerðar á dagskrá í samræmi við
óskir hópsins. M.a. var komið á
fundi með fulltrúum bændasam-
taka í héraðinu og farið var í
kynnisför á kúabú sem Alcan
rekur í 5 km fjarlægð frá einni af
eldri álverksmiðjum fyrirtækisins
í héraðinu. í máli fulltrúa bænda
kom fram að ýmsir erfiðleikar
hefðu komið fram í sambúð land-
búnaðar og áliðju á fyrri ára-
tugum, en þau vandamál væru
nú úr sögunni eftir að bættar
mengunarvarnir hefðu komið til.
Hópurinn skoðaði eitt raforku-
ver og tvær álverksmiðjur.
Önnur álverksmiðjan, sem hóf
starfsemi 1926, er ein sú stærsta í
heiminum með um 450.000 tonna
framleiðslu á ári. Þessi verk-
smiðja var endurbyggð að
nokkru leyti á stríðsárunum og
vakti það athygli hópsins að þá
þegar tók Alcan í notkun lokaða
bræðsluofna. Síðari verksmiðjan
sem hópurinn skoðaði var byggð
í þremur áföngum á árunum
1977-1984 og er árleg framleiðsla
hennar nú, fullbúinnar, um
170.000 tonn. Verksmiðja þessi
er búin mjög fullkomnum meng-
unarvörnum og að mati hópsins
eru vinnuskilyrði í alla staði mjög
góð. Það var samdóma álit sér-
fræðinga Alcan í mengunarmál-
um og fulltrúa bænda sem rætt
var við um þessa nýju verksmiðju
að engin mengunarvandamál
væru samfara rekstri hennar. í
þessu sambandi telur hópurinn
rétt að leggja áherslu á að nátt-
úrufarslegar aðstæður í nágrenni
verksmiðjunnar eru að töluverðu
leyti frábrugðnar aðstæðum í
Eyjafirði.
Fulltrúar Alcan leituðust við
að svara öllum spurningum sem
fram komu í ferðinni á mjög op-
inskáan hátt og vakti athygli
hópsins sú ríka áhersla sem fyrir-
tækið leggur á góð mannleg sam-
skipti innan fyrirtækisins, við
nágranna þess og samfélagið í
heild.
Þátttakendur í ferðinni voru
Valur Arnþórsson, sem jafn-
framt var fararstjóri, Finnbogi
Jónson, Hermann Sveinbjörns-
son, Ingimar Brynjólfsson, Jó-
hannes Geir Sigurgeirsson, Jón
G. Sólnes, Jón Sigurðarson,
Tómas Ingi Olrich, Tryggvi
Gíslason, Valgerður Bjarnadótt-
ir og Þóroddur Þóroddsson.
Engin sjáanleg mengun er frá nýja
álverinu.
Athugað hvort einhver mengunaráhrif sjáist á barri trjánna . . .
. . . og athugað upp í nautgrip á búgarði Alcan í sama tilgangi.