Dagur - 13.08.1984, Blaðsíða 11
13. ágúst 1984 - DAGUR -11
I, Minning:
t Jón Sigurðsson
Borgarhóli
F. 17. sept. 1915-D. 10. júlí 1984
Með Jóni Sigurðssyni eða Jóni á
Borgarhóli, eins og hann var oft-
ast nefndur, er horfinn úr hópn-
um einn af þeim sem settu mik-
inn svip á bernskuheimili mitt á
Munkaþverá. Reyndar bjó Jón
legst af á næsta bæ, en örskammt
er á milli bæjanna Borgarhóls og
Munkaþverár. í mínum huga eru
fjölskyldurnar þrjár, sem þá
bjuggu á Munkaþverá, og fjöl-
skyldan á Borgarhóli sem ein stór
fjölskylda, enda náskyldar og
mikill samgangur milli þeirra.
Jón á Borgarhóli var sá eini úr
þessum stóra fjölskylduhópi sem
ekki var Norðlendingur. Hann
kom að vestan og ég tók snemma
eftir því að Jón skar sig dálítið úr
á ýmsan hátt, bæði í málfari og
öðru. Hann talaði með vestfirsk-
um hreim og notaði önnur orð
yfir ýmsa hluti en hitt fólkið. Að
útliti skar Jón sig einnig úr. Hann
var mun hærri en flestir aðrir og
kraftalegur mjög. Við krakkarnir
vissum að enginn var eins sterkur
og Jón á Borgarhóli. Hann hafði
verið á Bændaskólanum á
Hvanneyri og lært þar ýmsar nýj-
ungar í búskap. Auk þess kunni
hann ýmsar kúnstir fram yfir
aðra, t.d. að spila á harmoniku
og smíða og renna fallega muni,
og hann hafði líka siglt til Eng-
lands með togara.
Allt þetta og ýmislegt fleira
gerði það að verkum að ég leit
mikið upp til Jóns, en það var þó
engin óttablandin lotning. Jón
átti að vísu til að vera dálítið
stuttur í spuna og stundum jafn-
vel dálítið þurrlegur, en það var
aðeins yfirborðið, á bak við bjó
hlýja og glettni sem börn skynj-
uðu fljótt, enda hafði Jón alla tíð
sérstakt lag á að tala við börn og
eignaðist vináttu þeirra strax við
fyrstu kynni. Þannig urðum við
Jón góðir vinir, að sögn hans
sjálfs, undireins daginn sem
hann kom að Munkaþverá til
að verða kaupamaður hjá Stefáni
ömmubróður mínum. Ég var
ekki há í loftinu þá og man því
ekki þau fyrstu kynni, en þegar
ég man eftir mér var Jón giftur
Siggu frænku minni og þau farin
að búa í litlu húsi á Munkaþverá.
Jón Sigurðsson fæddist á Bæj-
um á Snæfjallaströnd 17. sept.
1915. Foreldrar hans voru hjónin
María Rebekka Ólafsdóttir og
Sigurður Ólafsson. Ólst Jón upp
á Bæjum hjá foreldrum sínum í
stórum hópi systkina. Alls voru
þau fimmtán, og fjórtán komust
upp, en auk þess átti Jón hálf-
bróður, samfeðra. Foreldrar Jóns
voru orðlagðir fyrir dugnað, enda
hefur þurft átak til að koma upp
svo stórum barnahópi. Á þeim
árum var afkoma alþýðufólks
ekki slík að það hefði ráð á að
styðja börn sín til náms. Bæja-
systkinin, sem öll voru atgervis-
og hæfileikafólk, hlutu því sjálf
að afla sér menntunar eftir því
sem tækifæri gáfust.
Um vorið 1933 birtist í blaði
auglýsing frá Halldóri Vilhjálms-
syni skólastjóra á Hvanneýri þess
efnis, að nemendur ættu þess
kost að vinna fyrir námskostnað-
inum á Hvanneyrarbúinu eftir
veru sína í skólanum. Þeir Bæja-
bræður fréttu af þessari auglýs-
ingu, og varð það úr, að Jón og
Óskar bróðir hans, sem var
nokkrum árum eldri, hófu nám á
Hvanneyri um haustið og stund-
uðu það í tvo vetur, en unnu svo
á búinu fyrir námskostnaði. Án
efa hefur Jóni gengið námið vel,
því hann var mjög næmur og
verklaginn. Minntist hann dvalar
sinnar á Hvanneyri með ánægju
og taldi sig hafa haft mikið gagn
af henni. Segja má að hún hafi
skipt sköpum í lífi hans.
Að afloknu námi á Hvanneyri
vorið 1935 bjóst Jón til heimferð-
ar, en þurfti að bíða nokkra daga
í Reykjavík eftir skipsferð
vestur. Hitti hann þá bónda
norðan úr Eyjafirði, Stefán Jóns-
son frá Munkaþverá, sem stadd-
ur var á heimili Guðmundar
Finnbogasonar landsbókavarðar
og Laufeyjar Vilhjálmsdóttur,
sem var systir Halldórs á Hvann-
eyri, en Jón hafði kynnst Finn-
boga syni þeirra hjóna, þegar
Finnbogi var að sumri til hjá
frænda sínum á Hvanneyri, og
höfðu þeir Jón orðið góðir vinir.
Stefán á Munkaþverá var mágur
Laufeyjar Vilhjálmsdóttur,
kvæntur Þóru systur hennar. Nú
stóð svo á, að Stefán vantaði
kaupamann og varð það úr, að
Jón réði sig til hans. Það var því
1935 sem Jón leit Eyjafjörð fyrst,
en dvöl hans þar átti eftir að
verða lengri en eitt sumar. Á
Munkaþverá trúlofaðist hann
Sigríði, dóttur Stefáns og Þóru,
og gengu þau í hjónaband árið
1936. Þau byrjuðu búskap á
Munkaþverá, en fluttust árið
1938 í Borgarhól, eignuðust þá
jörð nokkrum árum seinna og
bjuggu þar alla tíð síðan, fyrir
utan þrjú ár sem þau áttu heima
á Akureyri, þegar þau þurftu að
hætta búskap um sinn vegna van-
heilsu Sigríðar.
Þau hjónin eignuðust sex börn.
Eru þau: Stefán Þór flugstjóri,
búsettur í Luxemburg, kvæntur
Auði Hauksdóttur, Arnheiður,
gift Frey Ófeigssyni héraðsdóms-
lögmanni, Akureyri, Sigmar
Kristinn vistmaður á Sólborg,
Jón Eyþór flugvirki, Kópavogi,
Þorgerður sem starfar á tann-
læknastofu, Hafnarfirði, Þóra
Hildur, gift Þorsteini Vilhelms-
syni skipstjóra, Akureyri. Auk
þeirra átti Jón son, ívar, sem nú
er látinn.
Jón á Borgarhóli var mjög fjöl-
hæfur maður, vel greindur og
bókhneigður. Smiður var hann
ágætur, þótt hann hefði lítið sem
ekkert lært í þeim efnum, en syst-
kinin frá Bæjum munu fleiri vera
hög í höndum og einn bróðirinn,
Halldór í Miðhúsum, Eiðaþing-
há, fyrrverandi smíðakennari, er
kunnur listasmiður. Jón smíðaði
margan góðan grip, þeirra á með-
al leikföng sem mér eru minnis-
stæð, þó nú séu brotin og týnd,
ennfremur ýmsa nytjahluti, svo
sem húsgögn og fleira. Urðu
þessir smíðisgripir til á stopulum
stundum frá búverkum. Á síð-
ustu árum, þegar Jón hafði að
mestu hætt búrekstri, eignaðist
hann betri tæki til smíða en hann
hafði áður haft og sá þá fram á að
geta látið gamlan draum rætast;
að smíða fagra gripi. En þá var
heilsu hans tekið að hnigna, svo
gripirnir urðu færri en hann hefði
kosið.
Það var ekki aðeins heimili
Jóns sjálfs sem naut þess hvílíkur
hagleiksmaður hann var, því ná-
grannarnir leituðu oft til hans,
þegar hagvirkni þótti við þurfa,
og hann ætíð reiðubúinn öðrum
til hjálpar, án þess spurt væri um
endurgjald. Naut fjölskylda mín
þessarar hjálpsemi Jóns ríkulega.
Minnist ég þess með þakklæti um
leið og langrar og góðrar vináttu
hans og margra ánægjulegra
stunda hjá Jóni og Siggu á Borg-
arhóli.
Kristín Jónsdóttir.
Það er erfitt að trúa því að elsku
afi okkar sé dáinn. Afi, sem okk-
ur þótti svo vænt um, því hann
var okkur alltaf svo góður. Það
voru ekki svo fá sumur sem við
vorum hjá afa og ömmu í sveit-
inni og áttum við margar ánægju-
legar stundir þar. Afi kunni mik-
ið af sögum, ljóðum og mörgu
fleira, sem hann eyddi miklum
tíma í að kenna okkur. Hann var
gamansamur og gerði hann oft að
gamni sínu við okkur krakkana
og aðra. Síðasta árið átti afi við
erfiðan sjúkdóm að stríða, en
aldrei kvartaði hann þótt oft væri
hann mikið þjáður.
Við þökkum elsku afa fyrir all-
ar ánægjustundirnar, sem við átt-
um með honum og kveðjum
hann með sárum söknuði.
Minningin um afa mun ylja okk-
ur um ókomin ár. Ömmu vottum
við dýpstu samúð og biðjum Guð
að styrkja hana í sorg sinni.
Sigga, Auður og Laufey.
Þín bernskuár liðu á Bæjum við Djúp,
þeim bæ, sem þér öllum var kærri,
þar strandfjöllin rísa með gnæfandi gnúp
og gjöfuli særinn er nærri.
Þeim böndum, sem tengja við bernskunnar reit,
á brott er ei gerlegt að þoka.
Því enda þótt flutt sé í fjarlæga sveit,
þau fanga til ævinnar loka.
Oss blöskrar hve tímans bylting hröð
burtu því gamla ryður,
bæir og garðar og hjallar og hlöð
hverfa og molna niður.
En allt, sem kærast við áttum hér,
hver átthagablettur fríður,
í heimi, sem okkur hulinn er,
heilt og ósnortið bíður.
Nú þjakar ei lengur né þyngir gang
þrauta lamandi fjötur,
en heim á bernskunnar blómavang
eru beinar, skjótfarnar götur.
Og nú, þegar loks þinni lausn er náð,
og lengur ei meinin ægja,
þá verður ei hikað né heldur áð
á heimleið þinni til Bæja.
Vinir þig kveðja er þú heldur nú heim
þá hásumardagar líða,
og þér er nú hlíft við hretum þeim,
haustfölva og vetrarkvíða,
sem umflúið getur enginn sá,
er áfram skal lífsstríð heyja,
en ellinnar byrði bera má,
og bíða þess eins að deyja.
Vorri síðustu för ei fresta má,
nær fáum vér kvöð um hana.
Inn til þín líta eflaust þá
ýmsir, af gömlum vana,
skeggræða margt og skiptast á
skrýtlum og gamanorðum,
og ófáar vísur yrkja og skrá,
eins og svo margoft forðum.
Baldur Eiríksson.
Smáauglýsingaþjónusta Dags
Þaö skal tekið fram vegna hinna
fjölmörgu sem notfæra sér
smáauglýsingar Dags aö ef
endurtaka á auglýsinguna strax
í næsta blaði eöa næstu viku
bætast aðeins 40 kr. við verð fyr-
ir eina birtingu. Verð smáauglýs-
ingar er nú 220 kr., miðað við
staðgreiðslu eða ef greiðslan
er send í pósti, en 280 kr. ef ekki
er staðgreitt. Ef þessi nýja þjón-
usta er notuð þá kostar auglýs-
ingin nú 260 kr. birt tvisvar.
Tilboð þetta miðast eingöngu við staðgreiðslu.
Bankastörf
Innlánsstofnun óskar að ráða starfsfólk til
bankastarfa. Verslunarskóla eða sambærileg
menntun æskileg.
RÁONINGARÞJÓNUSTA
FELL hf. Kaupvangsstræti 4 -Akureyri - simi 25455
Staða bréfbera
er laus til umsóknar.
Allar upplýsingar á skrifstofu stöðvarstjóra, Hafn-
arstræti 102, 2. hæð.
Stöðvarstjóri.