Dagur - 13.08.1984, Blaðsíða 12
ÞJÓNUSTA
FYRIR
HÁÞRÝSTISLÖNGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
„Mun
halda
þessu
starfi
áfram“
- segir Jón Gíslason
sem endurbyggir
Gamla Lund
„Ég er ákaflega undrandi yfir
þeim hávaða sem orðið hefur
um þetta mál. Ég þykist hins
vegar vita af hverju hann er til-
kominn, þeim leiðist sjálfsagt
að það skuii hafa verið tekið
fram fyrir hendurnar á þeim
húsfriðunarnefndarmönnum
og þjóðminjaverði,“ sagði Jón
Gíslason húsasmíðameistari í
samtali við Dag.
Eitt Reykjavíkurblaðanna
hefur gert úr því mikið mál að
Jón sem keypt hafði Gamla-
Lund skuli hafa rifið húsið og
hefur blaðið fengið ýmsa aðiia
eins og Þór Magnússon þjóð-
minjavörð til þess að lýsa undrun
sinni yfir því, og jafnvel reiði.
Jón keypti húsið á sínum tíma,
og fékk strax áhuga á því að
koma því í nothæft ástand. Hins
vegar kom í ljós að ekkert var
nýtilegt í húsinu, og tók Jón því
þá ákvörðun að fá fagmann til
þess að teikna húsið upp eins og
það var í upprunalegri myr.d, í
því skyni að endurbyggja það.
Var gamla húsið síðan rifið.
"Ég mun halda þessu starfi
áfram,“ sagði Jón, en hann hefur
þegar hafist handa um endur-
smíði hússins. „Það hafa þegar
haft samband við mig aðilar sem
hafa hug á að nýta húsið, t.d.
menn sem telja að húsið sé
heppilegt fyrir myndlistarsýning-
ar. Ýmisleg önnur starfsemi í
húsinu kæmi einnig til greina eins
og smærri fundir og þess háttar.“
Jón Gíslason.
Þrátt fyrir stressið og stritið í öllum alls staðar, þá geta sumir sofið - alltaf.
Mynd: KGA
Verðhrun á illseljanlegri rækju:
i
„Hættum ekki
í bili að
minnsta kosti“
— segir Valdimar Kjartansson sem á sæti
í stjórn Árvers hf. á Árskógsströnd
„Þetta er mjög slæmur tími
hjá okkur, bæði til þess að
halda áfram og einnig til þess
að stöðva vinnsluna,“ sagði
Guðmundur Ingólfsson fram-
kvæmdastjóri rækjuvinnslunn-
ar Árvers h.f. á Árskógsströnd
er við ræddum við hann um
þau tilmæli Félags rækju- og
hörpudisksframleiðenda að
vinnslu rækju í landinu yrði
hætt. Miklir erfiðleikar hafa
verið með sölu á rækju, birgðir
hafa hlaðist upp í landinu og
auk þess hefur nánast orðið
verðhrun á mörkuðum erlend-
is.
„Við höfum tekið á móti um
270 tonnum af rækju síðan
vinnsla hófst hjá fyrirtækinu,“
sagði Guðmundur. Það má segja
að við höfum fengið nægilegt
hráefni og hér hafa yfir 30 manns
unnið af tvískiptum vöktum. Við
erum búin að framleiða um 60
tonn og höfum geta losnað við
um helming þess.
„Það er hins vegar salan sem er
vandamálið. Breska verðið er nú
um 1,80 sterlingspund fyrir pund-
ið af rækjunni en var t.d. 2,40
pund á síðasta ári. Það er geysi-
legt framboð á rækju og ég hef
t.d. heyrt að Norðmenn séu farnir
að bjóða lægra verð en 1,80
pund. En við munum halda fund
og athuga hvernig við bregðumst
við þessu vandamáli."
- Sá fundur var haldinn í
fyrrakvöld og við spurðum Valdi-
mar Kjartansson sem á sæti í
stjórn Arvers h.f. hverjar niður-
stöður hefðu orðið þar.
„Það verður ekki hætt, ekki í
bili að minnsta' kosti,“ sagði
Valdimar. Ég held hins vegar að
þótt eitthvað losni um á mörkuð-
um þá séu ekki líkur á því að
verðið rjúki neitt upp samhliða
því, framboðið er svo mikið að
verðið gæti frekar lækkað en hitt.
Ef við lítum svo á það sem að
þeim snýr sem eru að fiska rækj-
una þá sé ég ekki að neinn geri út
á rækju ef verðið lækkar frá því
sem nú er. Þetta hefur byggst á
því að það hefur verið góður afli
og varla fallið úr dagur sökum
hagstæðs veðurfars en þegar
veður fara að versna og verðið að
lækka samhliða þá er ekki hægt
að standa í þessu lengur,“ sagði
Valdimar. gk-.
„Engin ákvörðun
verið tekin“
- segir stjórnarformaður
Söltunarfélags Dalvíkur hf.
„Það hefur ekki verið tekin
nein ákvörðun vaðandi það
hvað við gerum, hvort við
hættum rækjuvinnslunni eða
höldum henni áfram,“ sagði
Júlíus Snorrason formaður
stjórnar Söltunarfélags Dalvík-
ur h.f. er Dagur ræddi við
hann.
„Við eigum töluvert miklar
birgðir af rækju en ég hef ekki á
takteinum hversu mikið það er,
þetta hefur safnast upp hjá
okkur, og svo fæst víst eitthvað
lítið fyrir þetta þótt hægt væri að
selja það.
Það eru í gangi þreifingar
varðandi framhald fyrirtækisins
þannig að það er ómögulegt að
segja á þessu stigi hvert fram-
haldið verður, það eru miklu
fleiri þættir sem spila þar inn í,“
sagði Júlíus.
Það eru litlar breyting-
ar fyrirsjáanlegar á
veðrinu norðanlands.
Það verður suðvest-
ankaldi og e.t.v. ein-
hverjar skúrir, að sögn
veðurfræðings í morg-
un.
# Hræringar
í verslunar-
lífinu
Eins og fram kom í Helgar-
Degi þá hefur Leifur „sagna-
banki" Sveinsson fest kaup
á húsnæði því sem tísku-
verslunin Parið hefur átt við
Hafnarstræti. En Parið er ekki
á götunni, því Gunnar Gísla-
son og Ingunn Sigurgeirs-
dóttir, eigendur verslunarinn-
ar, hafa keypt jarðhæðina í
Brekkugötu 3, þar sem Jón
Bjarnason og Bjarki Tryggva-
son hafa verið með veitinga-
sölu og leiktækjasal. Þangað
fer Parið í mun rúmbetri
húsakynni en áður. Nú, svo
er hann Bjössi Sveins, bólstr-
ari, fluttur með bólstrun sina
í gamla Eimskipshúsið við
Skipagötu, sem í rauninni á
að vera búið að rífa. En það
stendur í málarekstri á milli
Akureyrarbæjar og eigenda
hússins og er beðið eftir úr-
skurði Hæstaréttar. Á meðan
fær húsið að standa. Björn
var áður til húsa við Strand-
götu, þar sem eitt sinn var
verslunin Kjöt og fiskur, sem
bræðurnir Mikael og Kristján
Jónssynir ráku. Ekki vitum
við hvað kemur i það hús-
næði, en heyrst hefur að það
verði hljómtækjaverslun, úti-
bú frá Reykjavík.
# Akureyrar-
símaskrá
í fæðingunni
Ailir muna fjaðrafokið sem
útkoma Akureyrarsímaskrár-
innar hefur valdið undanfarin
ár. Jón G. Sólnes var ábyrgð-
armaður skrárinnar fyrst þeg-
ar hún kom út, en þá voru
það ungir sjálfstæðfsmenn
sem stóðu að útgáfunni. f
fyrra gaf Petit skrána út og
Gunnar Berg var ábyrgðar-
maður. Jón og Gunnar máttu
búast við tukthúsvist fyrir til-
tækið, þar sem Póstur og
sími hefur einkarétt á að gefa
út símaskrár. Þrátt fyrir það
lætur Gunnar Berg ekki deig-
an síga, því á næstunni kem-
ur út símaskrá fyrir Akureyri
á hans vegum.