Dagur - 15.08.1984, Blaðsíða 8

Dagur - 15.08.1984, Blaðsíða 8
8 - DAGUR -15. ágúst 1984 Skotveiðimenn Gæsavertíðin nálgast Eigum Brno tvíhleypur nr. 12 Verð kr. 20.160 Hornet Brno riffla Verð kr. 19.390 Stevens pumpur og Mosberg Verð kr. 15.750 Verð kr. 14.980 Ódýrar þriggja tommu magnum einhleypur væntanlegar í næstu viku Verð kr. 5.850 Aldraðir Iðjufélagar Farin verður dagsferð til Skagafjarðar, að Hól- um og víðar, sunnudaginn 26. ágúst. Mæting í Brekkugötu 34 kl. 8.30. Hafið samband við skrifstofu Iðju fyrir miðviku- daginn 22. ágúst, sími 23621. Ferðanefnd. AKUREYRARBÆR Kartöflugeymsla Kartöflugeymslur bæjarins verða hreinsaðar inn- an skamms. Þeir sem eiga kartöflur eru beðnir um að tæma hólf sín í síðasta lagi þriðjudaginn 21. ágúst, kl. 17.30-18.30. Greiðsla fyrir kartöfluhólf er 300 kr. og ber að greiða það gjald á bæjarskrifstofunni 21/8-1/9. Breytingar og afgreiðsla á nýjum hólfum fer síðan fram á skrifstofu garðyrkjudeildar í gömlu Gróðr- arstöðinni. Garðyrkjustjóri. Kjörbúðir KEA auglýsa Nýr og reyktur LUNDI í helgarmatinn Hætta er á atvinnuleysi í fískvinnslu víða á Norðurlandi á næstunni. Þorskkvótinn víða að klárast — og þá blasir atvinnuleysið við „Stakfellið er að koma inn núna með um 170 tonn af þorski og er það restin af kvóta skipsins,“ sagði Páll Árnason hjá Útgerðarfélagi N.-Þingey- inga á Þórshöfn er við ræddum við hann í fyrradag. Þorskkvóti Stakfellsins var 1.600 tonn og sagðist Páll ekki vita hvað nú tæki við. „Það er ekkert spaug að binda skipið í 4- 5 mánuði eins og nú blasir við en ætli það sé nokkuð annað sem hægt er að gera. Afli bátanna hef- ur verið tregur og þetta þýðir sennilega ekki annað en atvinnu- leysi á staðnum," sagði Páll. „Við áttum eftir 36% af okkar þorskafla um síðustu mánaða- mót,“ sagði Vilhelm Þorsteinsson hjá Útgerðarfélagi Akureyringa hf. „Það þýðir að við áttum um 1.800 tonn og það er algjörlega út í hött að spá nokkru um það hversu langan tíma tekur að veiða það magn. Það fer að sjálf- sögðu eftir aflabrögðum.“ Þráinn Gunnarsson hjá Höfða hf. á Húsavík sagði að fyrirtækið sem gerir út tvo togara, Júlíus Havsteen og Kolbeinsey, ætti kvóta sem myndi endast út árið. „Við tókum snemma þá stefnu að setja Júlíus Havsteen á rækju og það þýðir að við eigum nægan þorskkvóta fyrir Kolbeinsey út árið.“ „Ef kvótinn verður ekki auk- inn eins og menn hafa hugsanlega gert sér vonir um eða ef ekki tekst að fá kvóta inn á svæðið þaðan sem hann er ekki nýttur þá er dökkt framundan," sagði Valdimar Bragason hjá Útgerð- arfélagi Dalvíkinga hf. Það fyrir- tæki gerir út togarana Björgvin og Björgúlf og eru þeir búnir með þorskkvóta sinn. Valdimar sagði að hugsanlegt væri að veiða fyrir aðra og landa hjá þeim. Það myndi t.d. annar togari þeirra gera nú í vikunni. - Tveir minni togarar eru á Dalvík, Baldur og Dalborg sem Ufsa- strönd gerir út og munu þeir eiga eftir eitthvað af kvóta sínum ennþá. „Rauðinúpur á eftir 2-3 túra,“ sagði Hólmsteinn Björnsson hjá Jökli á Raufarhöfn. „Við eigum einnig smávegis af ýsu og kola en það getur orðið erfitt að ná því. Það er hætt við því að það verði að binda togarann áður en langt um líður og loka báðum frysti- húsunum hér og þá blasir alls- herjar atvinnuleysi við.“ „Það er hryllilegt ástand sem við blasir,“ sagði Þorsteinn Ás- geirsson framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar hf. er við ræddum við hann. Að sögn Þorsteins er Ólafur Bekkur búinn með sinn þorskkvóta og væri fyrirhugað að breyta kvóta grá- lúðu og karfa í þorsk og með því móti gæti skipið farið 2-3 túra áður en binda þyrfti það eins og fyrirsjáanlegt er. Aðrir togarar á Ólafsfirði, Sigurbjörg og Sólberg eru annað hvort búnir með kvót- ann eða að ljúka við hann. „Hegranesið og Drangey eiga eftir samtals 400 tonn af sínum þorskkvóta, en Skapti er búinn með sinn,“ sagði Bjarki Tryggva- son framkvæmdastjóri Útgerðar- félags Skagfirðinga er við rædd- um við hann. Bjarki sagði að mjög hefði verið dregið úr sókn- inni að undanförnu til þess að hægt væri að hafa undan í vinnsl- unni með góðu móti, ef það hefði ekki verið gert væru þeir búnir með þorskkvótann. Hann sagði að togararnir hefðu verið látnir liggja inni í 5-7 daga á milli túra. Hvað tæki við á næstu vikum sagðist hann ekki vita, ekki hefði verið tekin um það endanleg ákvörðun ennþá. Einar Sveinsson framkvæmda- stjóri hjá Þormóði ramma á Siglufirði sagði að Sigluvík ætti eftir um 80 tonn og Stálvík 296 tonn. Ef þeir nýttu sér heimildina til millifærslu þá ætti Sigluvíkin eftir að veiða 257 tonn en Stál- víkin 489 tonn. „Forlögin hafa hagað málum þannig hér á Siglufirði að við höfum ekki getað rifið þetta upp eins og aðrir, við höfum verið með skip í viðgerðum og breyt- ingum þannig að sennilega erum við betur settir í dag en margir aðrir.“ Einar sagði að sú staða hefði verið rædd að ef fyrirsjáanlegt væri að allir togararnir myndu ekki klára kvóta sinn yrði hann fluttur á milli skipa innan bæjar- ins, en þessi mál væri öll ófrá- gengin. gk-. Stakfellið er búið með þorskkvóta sinn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.