Dagur - 15.08.1984, Síða 9

Dagur - 15.08.1984, Síða 9
15. ágúst 1984 - DAGUR - 9 Þrjú dýrmæt stig í safn Þórsara - eftir 3:0 sigur gegn Fram í gærkvöld „Það sem færði okkur þennan sigur öðru fremur var mikil barátta og vilji til þess að gera hlutina vel inni á vellinum,“ sagði Þorsteinn Ólafsson þjálf- ari Þórs eftir að hans menn höfðu unnið Fram 3:0 í gær- kvöld á Akureyrarvelli. „Þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem strákarnir sýna vilja til þess að sanna sig sem lið og þessi barátta hefur einhverra hluta vegna ekki náðst upp fyrr. Vonandi verður framhald á þessu,“ sagði Þorsteinn Ólafsson. Hagur Þórs í 1. deildinni vænk- aðist verulega við þennan sigur en liðið var áður í botnsætinu ásamt Fram. Þór hoppar því úr 12 stigum í 15 en það er enn löng leið framundan. Leikurinn í gærkvöld fór hægt af stað, Þórsarar þó brattari í byrjuninni en komust lítt áleiðis. Það var ekki fyrr en á 15. mín- útu að Kristján Kristjánsson átti skot sem var varið í horn, og 10 mínútum síðar var hann aftur á ferðinni. Hann hafði þá betur í kapphlaupi við varnarmann Fram sem sá ekki annað ráð en bregða Kristjáni aftan frá inni í vítateig. Guðmundur Haraldsson dómari benti í vítapunktinn og Jónas Róbertsson skoraði úr vítaspyrnunni með laflausu skoti í hægra hornið niðri. Bjarni Sveinbjörnsson fékk ágætt tækifæri til þess að bæta við marki er hann komst einn upp að Krístján Kristjánsson hefur haft betur í kapphlaupi við varnarmann Fram sem sá ekki annað ráð en bregða honum aftan frá. Vítaspyma dæmd og úr henni kom fyrsta mark Þórs. vítateigslínu fyrir miðju marki. En í stað þess að skjóta á Guð- mund Baldursson markvörð sem kom út á móti lék Bjarni til hliðar, fékk á sig varnarmann og skaut framhjá. Mark Þórs númer tvö kom á 33. mínútu og var sérlega vel að því unnið. Bjarni með boltann við hliðarlínu og gaf hann aftur til Jónasar. Jónas sendi boltann inn í vítateig Fram á höfuð Nóa Björnssonar sem hljóp þar í eyðu, Nói skallaði aftur fyrir sig til Kristjáns og hann skoraði með firnaföstu skoti. Gott mark og vel að því unnið. í síðari hálfleik bar fátt til tíð- inda. Framarar lögðu greinilega allt í sölurnar að jafna en á kostn- að varnarleiksins og Þór hefði átt að nýta það. Hvað eftir annað komust Þórsarar upp að vítateig Fram en það vantaði herslumun- inn að klára dæmið. Langskotin fóru framhjá ef þau voru reynd, helst að Guðjón Guðmundsson gerði það en hann hafði ekki ár- angur sem erfiði. En þegar 3 mínútur voru til leiksloka kom þriðja markið og Einar Arason var þar að verki. Boltinn kom rúllandi á móti honum um 25 metra frá marki. Einar skaut honum viðstöðulaust til baka, hitti hann firnavel og við þann þrumufleyg réð Guðmund- ur í marki Fram ekki þótt hann virtist ætla að verja, hann missti boltann aftur fyrir sig eftir að hafa hálívarið. Þórsarar fögnuðu því 3:0 sigri og að vonum var gleði í herbúð- um þeirra eftir leikinn. En sem fyrr sagði er löng leið eftir enn. Leikurinn í gærkvöld sýndi þó leikmönnum Þórs hvað það er sem gildir í hinni hörðu keppni, barátta er víst lausnarorðið ásamt viljanum til að vinna. Bestu menn Þórs voru þeir Jónas Róbertsson, Bjarni Svein- björnsson og Nói Björnsson sem allir áttu mjög góðan leik en margir aðrir stóðu þeim lítt að baki. Lítið reyndi á hinn unga markvörð Baldvin Guðmundsson en þegar hann beitti sér virkaði hann öruggur. Lið Fram olli von- brigðum, algjörlega bitlaust lið og mátti teljast heppið að sleppa með 3 mörk á bakinu. Bæjakeppni og opið mót í tennis Bæjakeppni í tennis milli Ak- ureyrar og Reykjavíkur og opið tennismót verður haldið á Akureyri nú um helgina. Slagurinn hefst kl. 15 á föstu- dag á vellinum við sundlaugina og er opna mótið þá á dagskrá. það heitir því virðulega nafni „Sporthús-open“ og það er Adi- das umboðið á íslandi sem gefur öll verðlaun í það. Þessu móti verður svo framhaldið kl. 10 á sunnudagsmorgun. Á laugardaginn kl. 10 hefst hins vegar bæjakeppnin og er það í þriðja skipti sem hún fer fram. Reykjavíkurliðið hefur sigrað í bæði skiptin 3:2 eða með minnsta mun, en Haukur Jó- hannsson einn af forsprökkum Akureyrarliðsins segir sig og sína menn aldrei hafa verið sprækari en einmitt nú og því eigi að snúa dæminu við. Hópferð á Skagann Knattspyrnudeild KA hyggst gangast fyrir sætaferð til Akra- ness á laugardaginn, en þá á KA að leika gegn íslands- meisturum Skagamanna þar. Ef næg þátttaka fæst verður lagt af stað frá Lundarskóla kl. 7.30. Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Níelsson í síma 23482 eða 22287. Verð er áætlað 700 krónur. Ingimundarmót að Jaðri Tvö opin golfmót verða haldin hjá Golfklúbbi Akureyrar um næstu helgi. Um er að ræða minningarmótið um Ingimund Árnason og Ragnarsmótið sem er opið mót fyrir konur. Minningarmótið um Ingimund Árnason eða Ingimundarmótið eins og golfarar kalla það, er orð- ið eitt af fjölmennari mótum landsins og hefur verið geysilega vel sótt undanfarin ár. Ekkert bendir til þess að þar verði breyt- ing á og hafa t.d. fjölmargir sunn- lenskir kylfingar boðað komu sína á Jaðarsvöll um næstu helgi. Leiknar verða 36 holur með og án forgjafar. Það er Ragnar Lár myndlist- armaður sem hefur veg og vanda af opna kvennamótinu, Ragnars- mótinu. Mjög vinsælt mót hjá kvenfólkinu og þær leika um verðlaun með og án forgjafar, alls 36 holur. HNEYKSLI „Það er víst óhætt að segja að Knattspyrnusumbaml íslands hafl sett niður við þetta mót, það er ekki ofmælt," sagði Cíestur Jóns- son, en hann var fararstjóri tveggja llða úr KA seni tóku þátl i „Pollamóti" KSÍ i Reykjavík um helgina. - Það myndi sennilega hcyrast citthvaö cf leikmönnum i meist- araflokki værí uppúlagl að hafa fataskipti undir hemm liimni fyrir leiki, og það i ausandi rigningu. Eða ætli það yrði ekki „söngur" ef í miðjum leik kæmu menn og hcimtuðu af þeiin varamanna- bekkinn? Scnnilega yrði hávuði, en við þetta urðu strákamir að sætta síg. Veðrið í Reykjavík um helgina var dæmigert Rcykjavíkurrigning- arveður og voru lcikirnir í mótinu lútnir fara fram á grasbleðli sem er á milli aðulvallur i Laugardal og sundlaugarinnar og á lítt skylt við knatlspyrnuvöll. Þegar b-liö KA var að leika til úrslita við FH komu skyndilegu vullarstarfsmenn að varamanna- bekknum. Báðu þeir strákana aö standa upp af bckknum því þeir ætluðu að taka bekkinn og flytja i burt. L'ndrandi stóðu strúkarnir á fætur, og ætli þuð sé ekki eíns- dæmi að vuramunnabekkur sé tek- inn af liði í iniðjum leik? Punkturinn yfir i-ið í þessu móti var svo cr verðluunaufliendingin fór fram. KA-mcnn vissu reyndar ekki af þvi að verðlaunaafhending- unni hefði verið flýtt og voru þvi ekki viðstaddir. B-liö KA sem lék til úrslita í stnum flokki við FH og tapaði eftir vítaspyrnukeppni 3:5 fékk reyndar sín verðlaun síðar, en þau voru bolir með auglýsíngu Eimskips í bak og fyrir. - Já, það má ætla að forráöu- incnn KSÍ telji sig geta lioðið þeim yngstu upp ú hvað sem er. Þeir skyldu þo íhuga það að strúkurnir sem klæddu sig úr í ausundi rign- ingu í útiklefa við sundluugina, léku svo ú þúfuni við sundlaugina, misstu varamannahekk sinn og fengu auglýsingabo! frú Eimskip fyrir 2. sætið þeir nuina þessa hluti. Strákamir i b-liði KA unnii Tindustól 16:0, gerðu jafntelli 0:0 við Akranes og unnu ÍBK 2:0 úður en þcir léku til úrslita við FH. Þeiin leik lauk 3:3 og vann FH síð- an í vitaspyrnukcppni. A-lið KA lék við Stjörnuna og ÍBK í riðlukeppninni og vann báðu leikina. í undanúrslítuni tupaði KA hins vegar fyrir Fram og IR og varð liöið i 4. sæti. O.XtS'** .vj.LIJá.i .fJ.LJJÍ:

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.