Dagur


Dagur - 15.08.1984, Qupperneq 11

Dagur - 15.08.1984, Qupperneq 11
15. ágúst 1984 - DAGUR -11 Atak til sjónverndar - Gíróreikningur söfnunarinnar ennþá opinn Svo sem menn muna beittu Lionsmenn sér fyrir almennri söfnun í byrjun sumars í þágu Augnlækningadeildar Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri. Höfuðtilgangurinn var að bæta svo tækjakost deildarinnar að hún sé fær um að gegna hlutverki sínu samkvæmt nútímakröfum. Lionsfélagar þakka öllum al- menningi, félögum og fyrirtækj- um, sem hafa veitt þessu brýna verkefni drengilegan stuðning. Örugglega verður þakklæti þeirra sjúklinga, sem njóta munu góðs af, enn meira. Telja verður að viðunandi ár- angur hafi náðst í söfnuninni og enn er ekki útilokað að hægt verði að kaupa þau fjögur tæki, sem að var stefnt. Eitt þeirra hef- ur þegar verið greitt að fullu, pöntun hefur verið staðfest á öðru og kaup hinna tveggja verið í stöðugri athugun. „Kaupgetan“ liggur þó ekki endanlega fyrir þar serri upplýsingar skortir um fram- lög nokkurra aðila til söfnunar- innar, sem reiknað var með. Pá eiga örfáir söfnunaraðilar eftir að gera fullnaðarskil til fram- kvæmdanefndar. Kaffi kökur og gos í göngugötu Föstudaginn 17. ágúst frá kl. 14- 18 mun Náttúrulækningafélagið á Akureyri efna til kaffisölu í göngugötunni, þar sem kökur og gosdrykkir verða á boðstólum auk kaffis. Allur ágóði mun renna til heilsuhælisins í Kjarna- skógi. Parna gefst því Akureyr- ingum og bæjargestum tækifæri til að fá sér hressingu í innkaupa- leiðangrinum, um leið og gott málefni er stutt. AUAR STÆROIR HÓPFEROABflA f lengri og slummri ferdir SÉRLEYFISBlLAR AKUREYRAR H.F. Bifreiðastjórar: Hafið bílbænina í bílnum og orð hennar hugföst, þegar þiö akið. Fæst í kirkjuhúsinu Reykjavík og Hljómveri, Akureyri. Til styrktar Orði dagsins Eins og að framan greinir eru ennþá of margir endar lausir svo að á þessu stigi sé hægt að gera fulla grein fyrir niðurstöðum „Átaks til sjónverndar 1984“. Það verður gert svo fljótt sem kostur er, en á meðan leggur framkvæmdanefnd áherslu á að söfnunarféð komist sem fyrst til skila í formi nýrra lækningatækja eða njóti hagstæðustu ávöxtunar. Lionsmenn þakka gott sam- starf við verðugt verkefni. P.S. Gíróreikningur „Átaksins" er ennþá opinn og er nr. C 15130-0 Hrífuball Vinnuskólanum verður slitið með hinu árlega Hrífuballi laugardagskvöldið 18. ágúst í Dynheimum. Ballið hefst kl. 10.00 ■ Skemmtiatriði. P.S. Síðasta útborgun fer fram í Gróðrarstöðinni föstudaginn 24. ágúst. Frá kjörbúðum KEA Stórverðlækkun á lambalifur Aðeins kr. 66 pr. kg saEffli dh Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma HALLFRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR Norðurgötu 54 er andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri verður jarð- sungin frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 16. ágúst kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna. Vignir Jónasson, Birna Jónasdóttir, Lísa Jónasdóttir, Elin Sveinsdóttir, Ásdís Jóhannsdóttir Hersteinn Tryggvason Hreinn Hrafnsson börn og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, EINAR G. EINARSSON, lögregluflokkstjóri, Þórunnarstræti 103, Akureyri, sem lést 9. ágúst verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 17. ágúst kl 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á minningarsjóð Jakobs Jakobssonar. Hermfna K. Jakobssen, börn, tengdabörn og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við útför móðursystur okkar KRISTBJARGAR KRISTJÁNSDÓTTUR, frá Jódísarstöðum. Rósa Árnadóttir, Svanhildur Ó. Árnadóttir, Kristján Árnason, Guðrún Elín Jónasdóttir, Steingrímur Jónasson, Auður Jónasdóttir. Þvottavélar ★ Kæliskápar Stórgott úrval. Greiðsluskilmálar eða staðgreiðsluafsláttur. Við erum mjög sveigjanlegir í samningum. At«t ltVI lm II ■ GLERÁRGOTU 20 — 600 AKUREYRI - QÍMI 22233 Á söluskrá: Melasíða: 2ja herb. íbúð á 1. hæð. Flatasíða: Einbýlishús í byggingu. Keilusíða: 2ja herb. íbúð á 3. hæð. Hrísalundur: 2ja herb. íbúð á 4. hæð. Smárahlíð: 2ja herb. lítil íbúð á 1. hæð. Tjarnarlundur: 2ja herb. íbúðir á 3. og 4. hæð. Eiðsvallagata: 3ja herb. risíbúð. Laus strax. Hafnarstræti: 3ja herb. neðri hæð. Byggðavegur: 3ja herb. neðri hæð. Afh. 15. október. Melasíða: 3ja herb. íbúð á 3. hæð. Strandgata: 4ra herb. neðri hæð í tvíbýli. Tjarnarlundur: 4ra herb. íbúð á 4. hæð. Keilusíða: 4ra herb. íbúð á 2. hæð. Sólvellir: 4ra herb. íbúð á 2. hæð. Grundargerði: 4ra herb. raðhúsíbúð. Fróðasund: 4ra herb. efri hæð í tvíbýli. Tungusíða: 5 herb. einbýlishús með bílskúr. Akurgerði: Fokheld 5 herb. raðhúsíbúð með bílskúr. Stórholt: 3ja herb. íbúð í eldra húsi. Þverholt: 4ra herb. eldra einbýlishús. Mýrarvegur: 5 herb. einbýlishús. ^ Símsvari tekur við skilaboðum allan sólarhringinn. Fasteignasalan hf opið frá Gránufélagsgötu 4, . . _ _ - efri hæð, sími 21878 W. 5—7 e.h. Hreinn Palsson, lögfræöingur Guömundur Jóhannsson, viðskiptafræðingur Hermann R. Jónsson, sölumaður Efnaverksmiðjan Sjöfn getur bætt við þremur starfsmönnum í sápu- verksmiðju. Upplýsingar veitir verksmiðjustjóri. Starfsmaður óskast sem fyrst (karl eða kona). Upplýsingar á skrifstofunni. B.S.O.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.