Dagur - 15.08.1984, Side 12
Akureyri, miðvikudagur 15. ágúst 1984
ÞJÓNUSTA
FYRIR
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
OLÍUSLÖNGUR og BARKA vöNDUÐ vinna
HÁÞRÝSTISLÖNGUR
„Hafnarleysið
er algjörlega
óviðunandi
- segir Hilmar Kristjánsson oddviti á Blönduósi
„Meginrökin fyrir því að við
höfum ekki fengið fjárveiting-
ar til hafnargerðar hér á síð-
ustu árum hafa verið þau að
ekki hafi verið unnið nægilega
að undirbúningi málsins auk
þess sem deildar meiningar eru
uppi um nauðsyn hafnar hér.
Fjárveitingavaldið virðist álíta
aö við eigum eingöngu að
byggja okkar afkomu á verslun
og þjónustu,“ sagði Hilmar
Kristjánsson oddviti á Blöndu-
ósi er við ræddum við hann.
„Þrátt fyrir að hér sé engin
hafnaraðstaða þá hefur verið
mikill vaxtarbroddur í útgerð
héðan. Fyrirtækið Særún á og
gerir út tvo báta sem hafa verið
bæði á rækju- og hrefnuveiðum.
Það er mikill uppgangur í þessu
fyrirtæki og þeir hafa verið í
miklum framkvæmdum í sumar.
Það ástand sem við búum við
varðandi hafnarleysið er hins
vegar algjörlega óviðunandi og
kemur í veg fyrir að þetta geti
þróast með eðlilegum hætti. Það
fylgir því mjög mikill aukakostn-
aður að þurfa að flytja aflann
langar leiðir í landi en bátarnir
hafa landað að mestu leyti á
Skagaströnd en það hefur jafnvel
þurft að aka aflanum á bílum frá
Siglufirði ef bátarnir hafa þurft
að landa þar.
Það hefur verið unnið mikið
undirbúningsstarf vegna hafnar-
gerðarinnar síðustu árin og það
er von okkar að ekki verði hægt
að skjóta sér lengur á bak við það
að veita fé í þessa brýnu fram-
kvæmd á þeim forsendum að
málið hafi ekki verið vel undir-
búið,“ sagði Hilmar.
114 án
atvinnu
Utn síðustu mánaðamót voru
114 skráðir atvinnulausir á Ak-
ureyri samkvæmt upplýsingum
frá Vinnumiðlunarskrifstofu
bæjarins, og voru það 30 karl-
ar og 84 konur.
í júlí voru skráðir 1.875 heilir
atvinnuleysisdagar en það svarar
til þess að 85 manns hafi verið at-
vinnulausir allan mánuðinn. Gef-
in voru út í júlí 314 atvinnuleysis-
bótavottorð með samtals 1.930
heilum bótadögum.
„Fiskur og aftur fiskur, það er það eina sem Islendingar hugsa og tala um, næstum því. Annars eru þeir ágætir. Og
veðrið hérna er miklu betra en ég bjóst við - lopahúfan er algjör óþarfi . . .“ Mynd: KGA
Góður
afli hjá
togurum
ÚA
Togarar Útgerðarfélags Akur-
eyringa hafa aflað vel að
undanförnu. í síðustu viku
landaði Sléttbakur 268 tonnum
og var meginaflinn karf! eða
253 tonn. Skiptaverðmæti
rúmlega 1,5 milljón krónur.
Svalbakur landaði á fimmtu-
dag 161 tonni og var það allt
þorskur nema um 5 tonn. Skipta-
verðmæti aflans var um 1,8 millj-
ónir.
Þegar við ræddum við Einar
Óskarsson hjá ÚA fyrir helgina
sagði hann að von væri á Kaldbak
nú strax upp úr helginni. Sl.
föstudagsmorgun var skipið kom-
ið með 260 tonn af þorski, búið
að setja í alla kassa en jafnvel
reiknað með að skipið kæmi með
um 330 tonn í land.
Mikil vinna var í frystihúsi ÚA
í síðustu viku, og á laugardag var
unnið samkvæmt undanþágu, en
eins og kunnugt er hefur helgar-
vinnubann verið í gildi í sumar og
verður til næstu mánaðamóta.
Akureyrarbær:
Vinnuvika
verkfræðinga
í 38 stundir
„Ég tel að með þessum samn-
ingi sé bæjarstjórn að gefa
fordæmi um styttingu vinnu-
vikunnar hjá öðrum starfshóp-
um,“ segir m.a. í bókun sem
Helgi Guðmundsson gerði á
fundi Bæjarráðs Akureyrar 26.
júlí sl.
Á fundinum var m.a. til um-
ræðu kjarasamningur sem Akur-
eyrarbær hefur gert við Stéttar-
félag verkfræðinga. Bæjarráð
samþykkti samninginn, sem m.a.
felur í sér styttingu vinnuvikunn-
ar hjá verkfræðingum, úr 40
stundum í 38 stundir. Vegna þess
segir í bókun Helga: „Ég hlýt að
fagna þessum merku tíðindum og
hvetja önnur stéttarfélög til þess
að veita þessum réttarbótum at-
hygli.“
Samningur Akureyrarbæjar og
verkfræðinganna var endanlega
samþykktur í bæjarstjórn í gær.
Þar kom fram að verkfræðingar
hjá Akureyrarbæ hefðu mun lak-
ari kjör heldur en kollegar þeirra
hjá sjálfstæðum verkfræðistofum
í bænum. Vinnustyttingin væri
því skref til að jafna þetta bil.
Valgerður Bjarnadóttir, bæjar-
fulltrúi Kvennaframboðsins, taldi
styttinguna jafngilda um 9%
launahækkun, þar sem hún kall-
aði á auknar eftirvinnutekjur hjá
verkfræðingunum. Það kom jafn-
framt fram í máli hennar og fleiri
bæjarfulltrúa, að stytting vinnu-
vikunnar væri æskileg, en ekki
tímabær aðgerð á meðan stórir
hópar launafólks geta ekki lifað
af launum eftir 40 stunda vinnu-
viku. - GS.
Síld
á Sigló
Bátar á Siglufirði eru nú að hefja
lagnetaveiðar og síldin hefur þeg-
ar gert vart við sig í firðinum, þó
í litlum mæli sé. Viggó landaði 5
tunnum á sunnudaginn og í gær
mun hann hafa verið með um 2
tunnur. Fleiri bátar lögðu net sín
í gær og vonast Siglfirðingar eftir
drjúgri síldveiði í baust. í landi er
þegar farið að undirbúa söltun,
jafnvel í söltunarstöðvum sem
ekki hafa starfað í mörg ár.
— GS.
Það verður þokumóða
ríkjandi á Norðurland-
inu fram að helgi, suð-
læg átt og skýjað, en
hiti verður breytilegur
að sögn veðurfræðings
Veðurstofunnar í
morgun.
# Jón forseti
Jón G. Sólnes var forseti
bæjarstjórnar Akureyrar á
fundi hennar í gær. Ástæðan
var sú, að Sigfríður Þor-
steinsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar, var fjarverandi og
varaforsetarnir, Helgi Guð-
mundsson og Freyr Ófeigs-
son, gátu heldur ekki mætt.
Þá var ekki um annað að
ræða en leita til aldursforset-
ans, sem reyndist vera Jón
G. Sólnes.
# Reyndist
mesti
gailagripur
Landinn er þekktur fyrir að
vera á varðbergi í viðskiptum
við útlendinga, jafnvel er
reynt að plata þá aðeins; þó
ekki væri nema með því að
selja þeim maðkaða skreið.
Slíkir prettir geta stórskaðað
okkar útflutningsgreinar og
taka á hart á slíkum tilburð-
um. En stundum eru klækírn-
ir svolítið broslegir. Þannig
er hægt að hafa lúmskt gam-
an af sögunni um hrossa-
prangarann, sem seldi einn
sinn allra- allrabesta gæðing
til Þýskalands. Að sjálfsögðu
lét hann hrossið ekki af hendi
fyrr en kaupandinn hafði
gengið á eftir honum með
grasið í skónum; og að sjálf-
sögðu úttroðið veskið á milll
handanna. Niðurstaðan varð
sú, að Þjóðverjinn varð af
innihaldi veskisins, en gekk
glaðbeittur á braut með
hrossið. Þegar til Þýskalands
kom þótti rétt að lúsabaða
hrossið með sterkum efnum.
En þá fór í verra; taglið datt af
gæðingnum! Við rannsókn
kom í Ijós, að íslenski selj-
andinn hafði límt það svona
líka snyrtilega á hrossið! En
þar með var jafntefli á mjlli
kaupanda og seljanda, þvi ís-
lendingurinn var að hefna
ófara í viðskiptum við Þjóð-
verjann.
# Varnarorð
til kartöflu-
bænda
Sérlegur veðurspámaður
Dags hefur þungar áhyggjur
þessa dagana. Hann óttast
sem sé frostnætur á Norður-
landi þegar kemur fram yfir
miðjan mánuðinn. Það er því
hyggilegra fyrir kartöflu-
bændur að vera við öllu búnir
til að verja kartöflugrösin
skemmdum, t.d. með því að
safna heydreif, mosa eða
öðru brennanlegu við garð-
ana. Nú, ef kvikasilfrið á hita-
mælinum dettur niður fyrir
núllið er ekki um annað að
gera en kveikja í og láta reyk-
inn líða um garðana.