Dagur - 22.08.1984, Síða 3
22. ágúst 1984 - DAGUR - 3
Leikfélag Akureyrar:
Nýtt leikár hafið
Nýtt lcikár er hafi hjá Leikfé-
lagi Akureyrar og hefst þaö
með samlestri á gamanleiknum
„Einkalíf“ eftir Noél Coward.
Þetta er klassískur gaman-
leikur um 50 ára gamall og hef-
ur verið mjög vinsæll á undan-
förnum árum. 5 leikarar koma
fram í verkinu og eru aðalhlut-
verk í höndum Sunnu Borg,
Gests E. Jónassonar, Theó-
dórs Júlíussonar og Guðlaugar
Maríu Bjarnadóttur. Leik-
stjóri er Jill Brooke Árnason,
en leikmynd og búninga gerir
Una Collins, en hún gerði
einnig búninga fyrir My Fair
Lady sem sýnt var við miklar
vinsældir á síðasta leikári.
í vor hætti leikfélagið að sýna
Kardemommubæinn fyrir fullu
húsi og mun því hefja sýningar á
honum aftur. Fyrsta sýning verð-
ur 8. september og fyrirhugað er
að sýna út september, þannig að
þeir sem misstu af þessu sívinsæla
barna- og fjölskylduleikriti í vor
hafa enn tækifæri til að sjá það.
Jólaleikritið verður nýtt leikrit
sem Sveinn Einarsson fyrrum
þjóðleikhússtjóri er að skrifa fyr-
ir Leikfélag Akureyrar og ber
það nafnið „Ég er gull og ger-
semi“. Aðalpersónan í því er
Sölvi Helgason er Davíð Stefáns-
son gerði ódauðlegan með bók
sinni Sólon Islandus. Sveinn mun
leikstýra verkinu sjálfur, en í
hlutverk Sölva hefur enn ekki
verið ráðið.
í byrjun næsta árs hefjast
æfingar á söngleiknum um þá
frægu söngkonu Edith Piaf, eftir
Pam Gems. Sigurður Pálsson
leikstýrir því verki, en að sögn
Signýjar Pálsdóttur leikhússtjóra
er ekki ákveðið endanlega hver
fær að spreyta sig á aðalhlutverk-
inu.
Að lokum má geta þess að síð-
asta ár var metár í sögu félagsins,
sýningargestir voru tæp 20
þúsund. Alls voru 55 sýningar á
My Fair Lady, 17 á Súkkulaði
handa Silju og 27 á Karde-
mommubænum. - mþþ.
Atvinnu- og
menntamái
- verða aðalmálin á 26.
Fjórðungsþingi Norðlendinga að
Reykjum í Hrútafirði
26. Fjórðungsþing Norð-
inga verður haldið að Reykj-
um í Hrútafirði 30. ágúst til 1.
september 1984. Rétt til þing-
setu eiga 94 fulltrúar sveitarfé-
laga og sýslufélaga á Norður-
landi, auk alþingismanna og
annarra gesta.
Pingsetning fer fram fimmtu-
dag 30. ágúst kl. 8.30 e.h. og
hefst með setningarávarpi
formanns, Þórðar Skúlasonar,
sveitarstjóra Hvammstanga.
Gerð verður grein fyrir fram-
lögðum málum nefnda og fjórð-
ungsráðs. Framkvæmdastjóri
sambandsins Áskell Einarsson,
flytur skýrslu um'starfsemi sam-
bandsins. Tillögur endurskoðun-
arnefndar sveitarstjórnarlaga
verða kynntar af ritara nefndar-
innar Hólmfríði Snæbjörnsdótt-
ur. Síðan verða ávörp gesta og al-
mennar umræður.
Á föstudagsmorgun að lokinni
skýrslu iðnráðgjafa, Friðfinns K.
Daníelssonar og framsögu Einars
Eyþórssonar um atvinnuráðgjöf
í Noregi verður rætt um nýjar
leiðir í atvinnumálum. Frani-
sögumenn eru: Ingjaldur Hanni-
balsson, forstjóri Iðntæknistofn-
unar íslands, Eyjólfur K.
Jónsson, alþingismaður og Torfi
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri.
Eftir hádegi verður aðalum-
ræðucfni menntunarmál dreifbýl-
isins - fjárhagsleg staða og
stjórnun. Framsögumenn verða
Ragnhildur Helgadóttir, mennta-
málaráðherra, Valgarður Hilm-
arsson, oddviti og Snorri Björn
Sigurðsson, sveitarstjóri. Guð-
mundur Ingi Leifsson, kynnir
rekstur fræðsluskrifstofa og Atli
Guðlaugsson, formaður Menn-
ingarsamtaka Norðlendinga
ávarpar þingið.
Á föstudagskvöld verður sam-
kværni með kynningardagskrá í
boði Vestur-Húnvetninga. Þing-
inu lýkur síðari hluta laugardags-
ins með afgreiðslu mála og kosn-
ingum til fjórðungsráðs og
nefnda.
Fyrir þinginu liggja m.a. til-
lögur um staðarval stóriðju,
stöðu Kröfluvirkjunar, atvinnu-
stöðu sveitanna, skóiamál í dreif-
býli, endurskoðun útvarpslaga,
háskólakennslu á Norðurlandi og
valdadreifingu og byggðajafn-
vægi.
Til sölu
Che jlet Malibu árg. 1979. 6 cyl., sjálfskiptur
með vökvastýri.
Upplýsingar í Véladeild KEA
sími 22997 og 21400.
Bútar-Skór-
og fleira og fleira.
Þetta er alvöruútsala sem
enginn ætti aö missa af