Dagur - 22.08.1984, Síða 8
8 - DAGUR - 22. ágúst 1984
Oskum eftir hreinlegu
lagerhúsnæði
á Akureyri. Allt kemur til greina.
Upplýsingar í síma 91-19495 milli kl. 17 og 19
alla daga.
Nú er fiskurinn
í ís í okkar
kæliborði
Margar tegundir svo sem:
Ýsa (Barselóna) ★ Fiskpottréttir
Nýr iax ★ Marineraður fiskur
Fiskur í raspi ★ Og fleira og fleira.
Lögtaksúrskurður
Hér með úrskurðast, að lögtök geti farið fram fyrir
vangoldnum þinggjöldum skv. þinggjaldaseðli
1984, er féllu í eindaga hinn 15. þ.m. og eftirtöld-
um gjöldum álögðum eða áföllnum 1984 á Akur-
eyri, Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, eignaskattur,
sóknargjald, kirkjugarðsgjald, slysatryggingagjald
v/heimilisstarfa, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmála-
gjald, slysatryggingagjald atvinnurekenda skv.
36. gr., lífeyristryggingagjald skv. 20. gr., atvinnu
leysistryggingagjald, sjúkratryggingagjald, gjald í
framkvæmdasjóð aldraðra, sérstakur skattur á
skrifstofu- og verslunarhúsnæði og vinnueftirlits-
gjald. Ennfremur fyrir skipaskoðunargjaldi, lesta-
og vitagjaldi, bifreiðaskatti, skoðunargjaldi bif-
reiða, slysatryggingagjaldi ökumanna, þunga-
skatti skv. ökumælum dieselbifreiða febrúar,
mars, apríl og maí sl., söluskatti fyrir apríl, maí og
júní sl., og viðbótar- og aukaálagningum sölu-
skatts vegna fyrri tímabila, launaskatti v/1983 og
gjaldföllnum launaskatti 1984, skemmtanaskatti
og miðagjaldi, söluskatti af skemmtunum, sýslu-
vegaskatti skv. 23. gr. I. nr. 6/1977, skipulags-
gjaldi af nýbyggingum, tryggingagjaldi af skips-
höfnum ásamt skráningargjöldum, vörugjaldi af
innl. framleiðslu, gjöldum af innl. tollvörutegund-
um, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum,
matvælaeftirlitsgjaldi, gjaldi til styrktarsjóðs fatl-
aðra, og til hvers konar gjaldahækkana.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum, ásamt
dráttarvöxtum og kostnaði verða látin fara fram
að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýs-
ingar, verði þau eigi að fullu greidd innan þess
tíma.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Daivík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu,
20. ágúst 1984.
Maðurinn í skóginum.
Mynd: KGA.
Ólafsfirðingar á vina-
bæjamóti í Noregi
- Næsta mót í Ólafsfirði eftir 2 ár
Tuttugu og fjórir Ólafsfirðing-
ar með bæjarstjórann Yaltý
Sigurbjarnarson í broddi fylk-
ingar eru nýkomnir heim frá
vinabæjamóti í Horten í Nor-
egi.
Hópurinn flaug til Kaup-
mannahafnar og hafði svo við-
komu í vinabæ sínum í Dan-
mörku, Hillerpd áður en haldið
var til Noregs. í Hilleród var vel
tekið á móti hópnum og eins í
Horten sem er í Oslófirði.
í liópi Ölafsfirðinga voru þrír
fulltrúar bæjarins, félagar úr
kvenfélagi, sóknarnefnd, Nor-
ræna félaginu, Sparisjóðnum og
þá kepptu 6 stúlkur í íþróttum. í
lok vinabæjamótsins í Horten
buðu fulltrúar Ólafsfjarðar til
vinabæjamóts í Ólafsfirði árið
1986 og mæta þar fulltrúar frá
Horten, Hilleród, Karlskrona í
Svíþjóð og Lovisa í Finnlandi.
Nýjung í filmuvinnu
Mynd: KGA
Þórður Kárason í Pictor:
„Já blessaður vertu, það er alltaf
nóg að gera. Ég kemst aldrei í
frí,“ sagði Þórður Kárason, eig-
andi og starfsmaður prentþjón-
ustunnar Pictor, sem er til húsa
að Brekkugötu 3.
í Pictor er unnin öll alhliða
undirbúningsvinna fyrir prentun
og auglýsingagerð, auk almennr-
ar filmuvinnslu. Og þetta er eina
fyrirtækið á Akureyri með svo-
nefnda Daylight filmuvinnu, sem
er alger nýjung. Tækjakostur er
allur nýr og mjög fullkominn.
Þórður er 19 ára og hefur
undanfarin ár verið við nám og
störf í offsetljósmyndun.
-KGA.
Fjölskylduhátíð
vegna 20 ára afmælis
Sumarbúðanna við Vestmannsvatn
verður sunnudaginn 26. ágúst
Hátíðarguðsþjónusta verður kl. 14 og síðan
er öllum boðið til kaffidrykkju.
Fjölbreytt dagskrá verður fyrir fjölskylduna allan daginn,
bátsferðir, leikir og íþróttir.
Dvalargestir fyrr og nú sérstaklega hvattir
til að koma með fjölskyldur sínar.
Allir velkomnir.
Sumarbúðirnar við Vestmannsvatn.