Dagur - 29.08.1984, Síða 3

Dagur - 29.08.1984, Síða 3
Listamennimir þeir sem sýna í Listasafni ASI. Ex-sept hópurinn: r Sýnir í Listasafni ASI Sýningarhópurinn ex-sept verður með sýningu í Lista- safni ASÍ 1. til 16. september. Það eru þeir Kristinn G. Jó- hannsson, Guðmundur Ar- mann Sigurjónsson og ÓIi G. Jóhannsson sem fylla þennan hóp, sem var stofnaður fyrir ári. Þeir félagarnir hafa síðan verið að undirbúa þessa sýn- ingu. Þetta eru fremur ólíkir lista- menn sem þarna eru í kompaníi. Guðmundur Ármann sýnir 20 grafíkmyndir, allar unnar á þessu ári. Hann segist vera kominn inn á nýja braut, vera að brjótast út úr realismanum. Nú er eins kon- ar þema hjá Guðmundi, fuglar í landslagi. Óli G. Jóhannsson sýnir 20 akrýlmálverk, 2 teikningar og 5 grafíkmyndir. „Þetta spannar allt frá dauðum hænum yfir í lifandi hesta,“ sagði Óli um viðfangsefn- in. Yfirskrift verka hans er: Svona er lífið. „Aldrei þessu vant er lítið um báta hjá mér,“ bætti Óli við. Auk þess liggur frammi á sýningunni grafíkmappa sem ber titilinn Hestar og eru það 5 silkiþrykkmyndir. Verkin hefur Óli unnið frá árinu ’79 og fram á þennan dag. Kristinn G. Jóhannsson á sýn- ingarafmæli 1. sept. en þá eru 30 ár frá hans fyrstu einkasýningu, sem var á Hótel Varðborg. „Ég kveð um bæjarbraginn," sagði Kristinn, „yrki um munstur og kveð um Súlur.“ Myndir Kristins eru afrakstur síðustu 2 ára og eru um 20 talsins, unnar með olíu og krít. Sem fyrr er nefnt stendur sýn- ingin í Listasafni ASÍ dagana 1. til 16. september og er opin um helgar kl. 14-22 en aðra daga kl. 16-20. - KGA. Sjónvarps- búðin opnuð á Akureyri „Það er búið að vera alveg klikkað að gera síðan við opn- uðum,“ sagði Haukur Ar- mannsson í Sjónvarpsbúðinni, sem var opnuð í Standgötunni á fimmtudaginn. Það er útibú frá Sjónvarpsbúð- inni í Reykjavík og þarna kennir ýmissa grasa. Það eru sjónvarps- tæki, stereosamstæður, ferða- tæki, myndsegulbönd og fleira smálegt. Auk þess eru þeir með myndbandaleigu., Starfsmaður auk Hauks er Sigurður Magnús- 29. ágúst 1984 - DAGUR - 3 Blomberq Stílhrein hágæða heimilistæki 2ja ára ábyrgð Komið og gerið kjarakaup í nýju versluninni Raf í Kaupangi. m ■■ NÝLAGNIR BkAp sd; Kaupangi v/Mýrprveg. Simi 26400. Verslið hjá fagmanni. Útvegsmenn Norðurlandi Útvegsmannafélag Norðurlands boðar til fundar laugardaginn 1. sept. nk. kl. 13.30 i Sjallanum (Mánasal). Fundarefni: Staða útgerðar í dag. Sjávarútvegsráðherra, Halldór Ás- grímsson kemur á fundinn. Félagar fjölmennið. Stjórnin. Hafrafras í pökkum Sóigrjón í 950 gr pökkum River-hrísgrjón 3 Ibs pakkar Rivita hrökkbrauð í pökkum Athugið opið til kl 19.00 á föstudögum og frá kl. 9-12 á laugardögum Kjörbúð KEA Sunnuhlíð Það er hægt að gera sannkölluð reyfarakaup stendur út þessa viku Barnafatnaður ★ Dömufatnaður Herrafatnaður ★ Bútar og skór

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.