Dagur - 29.08.1984, Page 4
4 - DAGUR - 29. ágúst 1984
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI:. 24222
ÁSKRIFT KR. 150 Á MÁNUÐI -
LAUSASÖLUVERÐ 22 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GÍSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRÍKUR ST. EIRlKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Kröfugerðin brot
á samningum
Forystumenn Alþýðusambands Vestfjarða hafa
komið með mjög athyglisverð sjónarmið í launa-
málaumræðuna sem nú stendur yfir vegna upp-
sagnar samninga frá 1. september n.k. í viðtali
eins dagblaðanna við Pétur Sigurðsson, forseta
Alþýðusambands Vestfjarða, segir hann m.a. á
þessa leið:
„50% launahækkun til verkamanna nú, fyrsta
september, stæði ekki lengi. Hún yrði tekin eins
og skot, enda hafa ólíklegri ríkisstjórnir en þessi
hagað sér þannig. . . Ef krafa Verkamanna-
sambandsins ætti að skila því sem hún felur í
sér, hlýtur hún að fela í sér stórfelldar þjóðfé-
lagslegar breytingar og með henni er ekki staðið
við gerða samninga frá því í febrúar. “
Þannig farast Pétri Sigurðssyni, forseta
Alþýðusambands Vestfjarða, orð þegar hann er
inntúr álits á kröfugerð Guðmundar J. Guð-
mundssonar fyrir hönd félaga í Verkamanna-
sambandi íslands. Þetta eru athyglisverð um-
mæli, ekki síst þar sem þau koma frá einum af
þekktustu forystumönnum verkalýðshreyfingar-
innar í landinu, sem auk þess er kunnur af því að
sýna atvinnurekendum enga linkind.
Alþýðusamband Vestfjarða hefur farið fram á
7% almenna launahækkun 1. september og að
fiskvinnsluflólk hækki um einn flokk, sem þýðir
um 9,5% hækkun til þess. Þessar kröfur eru
byggðar á því, að með þeim sé verið að viðhalda
þeim kjarasamningi sem gerður var í febrúar sl.
og gilda átti til 15. apr á næsta ári með áfanga-
hækkunum. Með kröfugerð af því tagi sem Al-
þýðusamband Vestfjarða hefur lagt fram er
reiknað með að takist að viðhalda þeim kaup-
mætti sem var á síðasta ársfjórðungi ársins
1983. Pétur Sigurðsson sagði m.a. í umræddu
blaðaviðtali:
„ Við vissum stöðuna í febrúar þegar samið var
og af hverju sögðum við ekki þá: Hingað og ekki
lengra. Mér finnst meiri ábyrgð í því að reyna að
standa við þann samning sem við gerðum í
febrúar, en auðvitað ætlumst við þá til að hinir
samningaðilarnir standi líka við hann. Eftir að
hann rennur út í apríl verða komin önnur tíma-
mót. Þá verðum við að skoða uppskeruna. Það
var samdóma álit flestra að í febrúar hafði verka-
lýðshreyfingin gert skynsamlegan samning mið-
að við efnahagsaðstæður og um leið undirstrik-
að það að hún vildi að ríkisstjórnin glímdi við
ástandið, “ sagði forseti Alþýðusambands Vest-
fjarða.
Ef ríkisstjórnin hefur einhver tök á að hafa
áhrif á gang samningaviðræðna sem nú eru
framundan ætti hún að beita sér fyrir þeirri
niðurstöðu sem þarna er rætt um. Þarna er nán-
ast um að ræða „tilboð sem ekki er hægt að
hafna“.
Hér er nóg að gera við upptökuvélina og krakkarnir máttu varla vera að því að líta upp.
„Mjög góð
uppskera“
- segir Kristján Hreinsson kartöfiubóndi
Við eruni nýlega byrjaðir að
taka upp og sprettan er mjög
góð,“ sagði Kristján Hannes-
son kartöflubóndi að Kaup-
angi þegar Dagur heimsótti
henn í garðinn, hvar allt var í
fullum gangi við upptöku.
„Hér í grendinni eru flestir
byrjaðir eða að byrja að taka
upp.“
Og alls staðar hafa menn þá
sögu að segja að sprettan sé með
einsdæmum góð, að sögn
Kristjáns. „Menn jafna þessu
gjarnan við sumarið 1939, sem er
talið eitthvert albesta sumar í
manna minnum. Gamlir menn
telja þetta sumar minna mjög á
það. Veðurfræðingar segja okkur
að sumrin '19, ’81 og ’83 hafi ver-
ið þau köldustu á öldinni, þannig
að nú er heldur betur annað upp
á teningnum."
í spjalli við Kristján kom fram
ð enn væri ekki búið að taka upp
nægilega mikið til að hægt væri
að spá um hversu margföld upp-
skeran yrði. „Ég setti niður í 7-8
hektara sem er svipað og venju-
lega.“
Sumarmarkaðsverð á kart-
öflum er verulega hærra en
haust- og vetrarverð og því er
það nú að lækka í áföngum.
„Þegar byrjað er að taka upp fyr-
ir sumarmarkaðinn er reiknað
með að uppskeran sé ekki nema
kannski rúmlega hálfsprottin og
þá er hún seld á hærra verði,“
sagði Kristján.
- Nú hafa heyrst raddir um að
kartöfluuppskeran í ár verði og
mikil og offramleiðsla verði.
„Þegar uppskeru er lokið,
seinni partinn í september verða
væntanlega menn um allt land
látnir ganga í geymslurnar að
mæla birgðirnar. Þá fyrst verður
að Kaupangi
hægt að sjá hvort þetta verður of
mikið, það liggur ekki ljóst fyrir
ennþá,“ sagði Kristján.
Það var mikið að gera við
upptökuna og bóndi mátti vart
vera að því að tala við blaða-
mann. Okkur þótti ekki vert að
trufla, þökkuðum Kristjáni fyrir
spjallið og yfirgáfum svæðið,-
KGA.
Kristján Hannesson: Menn jafna þessu saman við sumarið 1939.
Uppskeran hjá Kristjáni er óneitanlega væn.