Dagur - 29.08.1984, Blaðsíða 7
29. ágúst 1984 - DAGUR - 7
mmir, en samt er best að fara ekki að
kemur upp á þá þart stundum að
vera hér heilu dagana. Svo er
alltaf hægt að vera að smíða og
dunda við ýmislegt þannig. Einn-
ig er töluvert bókhald í kringum
þetta, það þarf að vita allt um
hvern einstakling."
Við blaðamenn fórum að vor-
kenna aumingjans refnum að
hanga daga langa í búri, en fá
ekki að hlaupa frjáls í tæru fjalla-
loftinu og leggjast á sauðfé sér til
lífsviðurværis. En slíkt mun eðli
hans samkvæmt náttúrufræði-
bókum.
„Þeir virðast ekki hafa áhuga
á að hreyfa sig og sætta sig ágæt-
lega við lífið í búrunum. Pegar
þeir eru frjálsir eru þeir mest á
ferli til að leita sér að æti, og það
er helst á næturnar. Ég held að
þessir refir sem aldir eru upp í
búrum og fá reglulega að éta geti
ekki bjargað sér úti í náttúrunni.
Peir eru að verða hálfgerð
húsdýr, samt ekki eins gæflynd
og kýr og kindur. Það er ekki
beint hægt að flokka þau grimm,
en samt er best að fara ekki að
þeim með látum.“
Við látum þetta verða lokaorð-
in í spjalli okkar við þá Steingrím
og Pétur á Skriðulandi og lýkur
þá frá refum að segja. mþþ
helstu upplýsingum um viðkomandi
Hér var góður bissniss, enda tuskubrúður ávallt vinsælar.
,, Vöru markaðurc fi
í Reistarárrétt!
Það var mikið líf og fjör í
Freyjulundi í Arnarneshreppi
sl. laugardag. Þar var haldinn
svokallaður útimarkaður, nán-
ar til tekið í Reistarárrétt og
kom þangað fjöldi fólks.
Þeir sem höfðu eitthvað til sölu
fengu pláss og var mönnum út-
hlutað dilkum í réttinni. fyrir
sölustarfsemi sína. Ótrúlegt úrval
ýmissa hluta var á boðstólum og
væri og langt mál að telja það allt
upp hér, en nefna má grænmeti,
kartöflur, þurrkuð blóm,
klukkur, sveppi, saumavörur o.
fl. o.fl.
Ýmsar uppákomur voru á
svæðinu og fjöldi fólks sem lagði
leið sína að Reistarárrétt kunni
greinilega vel að meta þetta
framtak sem var undirbúið af
ungmennafélögum í Skriðu- og
Arnarneshreppi. Veðrið lék líka
við hvern sinn fingur þannig að
allt hjálpaðist að við að gera
þetta að sem. allra bestri sam-
komu.
Tískusýning, eða hvað?