Dagur - 29.08.1984, Side 9
29. ágúst 1984 - DAGUR - 9
Þór
vann
Leiftur
„Leiftur er með mjög fram-
bærilegt deildarlið og á sumum
sviðum gáfu þeir okkur ekk-
ert eftir,“ sagði Guðmundur
Sigurbjörnsson formaður
knattspyrnudeildar Þórs eftir
leik Leifturs og Þórs um helg-
ina.
Hér var um vináttuleik að ræða
vegna hátíðahaldanna sem
standa yfir í Ólafsfirði þessa dag-
ana. Þórsarar komust í 2:0 með
mörkum Guðjóns Guðmunds-
sonar og Óla Þórs Magnússonar,
en Geirhörður Ágústsson minnk-
aði muninn fyrir Leiftur sem
leikur í 2. deild næsta keppnis-
tímabil.
Jónas Róbertsson mun væntanlega ekkert gefa eftir í Keflavík.
„Erum ekki sloppnir“
- segir Guðmundur Sigurbjörnsson formaður knattspyrnudeildar Þórs
„Við förum til Keflavíkur með
því hugarfari að sækja þangað
þrjú stig,“ sagði Guðmundur
Sigurbjörnsson formaður
knattspyrnudeildar Þórs er við
ræddum við hann um leik ÍBK
og Þórs sem fram fer í Keflavík
á laugardag.“
„Við þurfum fleiri stig til að
gulltryggja okkur í 1. deildinni
næsta keppnistímabil," sagði
Guðmundur. „Ég tel að við eig-
Púki
að
störfum
Einhvers konar púki var að
leik á íþróttasíðunni hjá okkur
s.l. mánudag, ekki prentvillu-
púki, heldur frændi hans sem
heitir sennilega hugsunarvillu-
púki.
Afrek púkans var að gera
Sverri Þorvaldsson Golfklúbbi
Akureyrar að íslandsmeistara í
golfi 1984, en Sverrir varð
Norðurlandsmeistari í þeirri
íþrótt um síðustu helgi.
Á þessu tvennu er nokkur
munur eins og gefur að skilja.
Vonandi er þetta þó fyrirboði
þess að Sverrir eigi eftir að láta
meira til sín taka er fram líða
stundir þannig að við getum látið
það á þrykk fara með réttu að
hann hafi orðið íslandsmeistari.
Annars biðjum við velvirðingar
á störfum púkans.
Menn hlægja dátt þegar þeir verða meistarar. Þarna hlær Sverrir þegar hann
varð Akureyrarmeistari í sumar. Hann hefur væntanlega hlegið þegar hann
tók við bikarnum sem Norðurlandsmeistari um helgina, og ætli hann hafí
ekki hlegið ennþá meira þegar hann var sagður Islandsmeistari í Degi sl.
mánudag? Og ætli hann hlægi ekki ef hann á eftir að verða íslandsmeistari?
„Enn eykst spennan
í 2. deildinni“
Spennan á toppi 2. deildar ís-
landsmótsins í knattspyrnu er
nú í hámarki þegar þrjár um-
ferðir eru til loka mótsins. FH-
ingar hafa tryggt sér sæti í 1.
deild næsta keppnistímabil,
Tindastóll og Einherji hafa
þegar fallið í 3. deild en öll hin
liðin eru í harðri baráttu um
laust sæti í 1. deild að ári.
Þar standa Víðismenn og
UMFN best að vígi, hafa 24 stig,
ÍBÍ, KS og Völsungur 23 stig,
ÍBV 22 og UMFS 20 stig. Og á
föstudag og laugardag verður enn
látið sverfa til stáls er 16. umferð
mótsins fer fram.
Þá skýrast línur væntanlega
eitthvað. Víðismenn fá FH í
heimsókn, Einherji leikur gegn
ÍBÍ á Vopnafirði , ÍBV og Tinda-
stóll leika í Eyjum, UMFS og
UMFN í Borgarnesi og á Siglu-
firði mætast heimamenn og
Völsungar frá Húsavík. Þar verð-
ur án efa hart barist, enda gengur
jafnan mikið á er þessi lið eigast
við. Það lið sem tapar stendur
mun verr að vígi í hinu mikla
kapphlaupi sem háð er um sætið
í 1. deild og því ætti að vera
óhætt að bóka stórleik þar sem
ekkert verður gefið eftir.
um möguleika gegn Keflvíking-
unum ef menn mæta til leiksins
með réttu hugarfari, ákveðnir í
því að berjast til síðustu stundar
og selja sig dýrt.“
- Óvíst er hvort Árni Stefáns-
son getur leikið þennan leik með
Þór. Fyrir leikinn gegn KR á
dögunum var Árni kominn með 8
refsistig og hann fékk að líta gula
spjald dómarans í þeim leik. Ef
hann fær eitt stig til viðbótar
sleppur hann, en verði refsistigin
hins vegar tvö eða fleiri eins og
menn óttast verður Árni í leik-
banni á laugardaginn.
Íþróttasíða Dags hyggst hleypa
af stokkunum getraunaþætti í
næstu eða þarnæstu viku og
verður þátturinn með svipuðu
sniði og í fyrra.
Áformað er að ná til eins
áhanganda hvers knattspyrnuliðs
í 1. deildinni ensku, og fá við-
komandi til þes að spá um úrslit
á einum getraunaseðli og þá sem
fulltrúi þess félags er hann heldur
með. Það eru engin vandræði að
ná til áhangenda þekktustu lið-
anna, en okkur vantar að komast
í samband við áhangendur eftir-
taldra lið:
Chelsea, Coventry, Norwich,
Sheffield Wed., Sunderland.
Southampton og Leicester.
Við biðjum stuðningsmenn
eftirtaldra félaga vinsamlegast að
hafa samband við íþróttasíðuna,
síminn er 24222.
Þegar allir hafa spáð um úrslit
á einum seðli, vindum við okkur
í úrslitakeppnina. Hún verður
með því sniði að þrír þeir efstu
spá til úrslita í nokkrar vikur og
sá sem bestum heildarárangri nær
þá, hreppir titilinn „Getrauna-
kóngur Dags 1985.“
Reynir
tapaði
fyrsta
leiknum
„Ég er ekki búinn að afskrifa
möguleika okkar á að komast
í 3. deild, það er alveg
öruggt,“ sagði Svanlaugur
Þorsteinsson sem situr í stjórn
knattspyrnudeildar Reynis,
Árskógsströnd er við ræddum
við hann eftir leik Reynis og
Leiknis frá Fáskrúðsfirði um
helgina.
Sá leikur var fyrsti leikurinn í b-
riðli úrslitakeppni 4. deildar og
fór fram á Árskógsströnd.
Heimamenn áttu nær allan fyrri
hálfleikinn en þeim virtist fyrir-
munað að skora. Leiknismenn
fengu hins vegar eitt marktæki-
færi og nýttu það, og er þeir
skoruðu aftur í síðari hálf-
leiknum gáfust Reynismenn upp.
Úrslitin urðu 3:0 fyrir Leikni.
Þriðja liðið í úrslitum b-riðils-
ins er Tjörnes, og eftir tvöfalda
umferð í þessum riðli kemst eitt
liðanna upp í 3. deildina. Næsti
leikur riðilsins er í kvöld og mæt-
ast þá Tjörnes og Reynir.
í hinum úrslitariðli 4. deildar
leika Ármann, Léttir og ÍR
Tvö mót
hjá G.A.
Tvö golfmót verða hjá Golf-
klúbbi Akureyrar um næstu
helgi, keppt verður um Sjóvá-
bikarinn og einnig um hinn
svokallaða Nafnlausa bikar.
Keppnin um Sjóvábikarinn
hefst kl. 10 á laugardagsmorgun
og verða leiknar 18 holur með
fullri forgjöf. Á sunnudag hefst
keppni kl. 9 um Nafnlausa bikar-
inn og er væntanlegum keppend-
um bent á það að kl. 8.45 ber
þeim að vera mættir inn á vallar-
svæðið. Verði þeir það ekki hafa
þeir fyrirgert rétti sínum til þátt-
töku.
Hjá Golfklúbbi Ólafsfjarðar
verður keppt um Útgerðarfélags-
bikarinn og leiknar þar 36 holur
með og án forgjafar. Þeir á Húsa-
vík ætla ekki heldur að sitja að-
gerðarlausir og keppa þeir í svo-
kölluðu „Frico-Scandia“ móti.
Þóroddur
og
Kjartan
á línunni
„Þetta er fyrsta verkefnið sem ég
fæ sem FIFA-dómari, en ég verð
varadómari í þessum leik,“ sagði
Þóroddur Hjaltalín knattspyrnu-
dómari. Þóroddur mun í byjun
október verða línuvörður í leik
norsku meistaranna og þeirra
pólsku í Evrópukeppninni og fer
leikurinn fram í Noregi.
Kjartan Tómasson, hinn Akur-
eyringurinn sem hefur dæmt í 1.
deild í sumar fær einnig verkefni,
hann verður línuvörður í leik
danska liðsins Árhus KFUM og
liðs frá Tékkóslóvakíu í Evrópu-
keppni félagsliða.