Dagur - 29.08.1984, Qupperneq 12

Dagur - 29.08.1984, Qupperneq 12
Akureyri, miðvikudagur 29. ágúst RAFGEYMAR [ BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA VIÐHALDSFRÍIR VEUIÐ RÉTT MERKI Játaði fljótt og vel Bílvelta var.ð við austustu brúna yfir Eyjafjarðará nærri flugvelli um helgina. Pegar lögreglan kom á staðinn var ökumaður á bak og burt, en fljótlega fannst hann og viðurkenndi að hafa ekið undir áhrifum áfengis. F>á var um helgina brotist inn í rakarastofu í Strandgötu á Akur- eyri og þaðan stolið rakvélum og myndavél. Greiðlega gekk að hafa upp á þeim er þar var að verki og játaði hann bæði fljótt og vel. Grímsey: Vantar vindinn „Hún mallar fínt, en það vant- ar bara meiri vind,“ sagði Steinunn Sigurbjörnsdóttir í Grímsey er við spurðum hana hvernig ástatt væri með'vind- mylluna þar á bæ. „Það þarf þó varla að óttast það þegar kemur fram á haustið og veturinn að það verði ekki nægur vindur hérna. Það virðist loksins allt vera í fínu lagi með relluna, hún hefur snúist nokkra dagparta síðan gengið var frá henni og hún var þá búin að hita í yfir 20 gráður vatnið. Hún virðist því loksins yera komin í gott lag enda er búið að vanda mikið til þessa verks. Það komu margir gallar í ljós sem búið er að laga svo nú vantar ekkert nema vindinn. Ég veit þó ekki hvort sjómennirnir ! okkar eru á sama máli,“ sagði Stéinunn. „Hann var geipifjörugur í dræt t i,“ sagði Guðmundur Hrafn Brynjarsson um makrfl sem hann veiddi við bryggju á Oddeyrartanga á sunnudag- inn. Makrfllinn var 44 cm langur og 860 grömm að þyngd og er einn sá stærsti sem veiðst hefur hér við land. Þetta er sjaldgæfur fiskur við ísland, helst verður hans vart í torfum og hafa nokkrir veiðst úr slíkum. Segja má að einsdæmi sé að makríll veiðist við bryggju hér á landi, en merkilegra er þó hversu stór þessi fiskur var. - KGA. Guðmundur Hrafn með makrílinn. Þetta er óneitanlega fallegur fiskur. Mynd: KGA. Veiddi makríl á stöng - einn þann lengsta sem veiðst hefur hér við land Hátíðahöld í Ólafsfirði: Troðfullt í Tjarnarborg „Þetta hefur gengið alveg Ijómandi vel fram að þessu og ég vona að það verði svo áfram,“ sagði Guðbjörn Am- grímsson formaður afmælis- nefndarinnar í Ólafsfirði, en Ólafsflrðingar halda nú mikla hátíð og fagna 100 ára afmæli byggðar í Olafsfjarðarhorni. Hátíðahöldin hófust á laugar- dag með leik Leifturs og Þórs frá Akureyri í knattspyrnu og sigraði 1. deildarlið Þórs 2:1 í nokkuð fjörugum leik. Hátíðin var svo formlega sett á sunnudag og þá um kvöldið var skemmtun í Tjarnarborg og „alveg troðfullt út úr dyrum“ eins og Guðbjörn orðaði það. Guðbjörn tjáði okkur að mikið hefði verið af aðkomufólki í Ólafsfirði, margir burtfluttir Ólafsfirðingar hefðu mætt á stað- inn og sumir þeirra komið langt að. Hátíðahöldin í tilefni af- mælisins standa yfir fram á að- faranótt sunnudags og er skipu- lögð dagskrá á hverj u kvöldi. gk-- Skagaströnd: Ný gerð toghlera Vélaverkstæði Karls Berndsen á Skagaströnd hefur hannað og hafið framleiðslu á nýrri gerð rækjutoghlera. Toghlerar þessir hafa fjórar opnanlegar raufar og eru þeir því mun léttari í drætti og hífingu en venjulegir hlerar. Vinna um borð í ræicjubátum gengur fljótar fyrir sig en ella. Þessir toghlerar frá Karli Berndsen vinna svipað og flugvélavængir, þeir mynda einhvers konar sig fyrir aftan sig og hleypa sjónum í gegn. Sagði Karl að byrjað hefði verið á þessu á sl. vetri og væri eftirspurn mikil. Mest hefðu þeir þó selt til bátanna við Flóann og á Snæfells- nes. - mþþ. Hinn nýi toghleri sem framleiddur er á Skagaströnd. Næsta sólarhringinn verður norðaustangola eða hægviðri í fyrstu og norðaustangola eða kaldi á miðum og ann- esjum síðar í dag. Það verður skýjað og skúrir á stöku stað. Á morgun verður svipað veður, kannski heldur kaldara. # Allar túttubyssur í ruslið! Einhvers staðar stendur að aldrei sé góð vísa of oft kveðin og því vill S&S taka undir með móðurinni sem hringdf í Lesendahornið sl. mánudag og var að vekja at- hygli á þeirri hættu sem staf- ar af leik barna með túttu- byssur. Sonur hennar varð fyrir því að fá skot úr túttu- byssu í annað augað með þeim afleiðingum að hann missti sjónina á auganu. Sá sem skaut ætlaði ekki að meiða neinn en samt fór sem fór. Því er það vinsamleg ábending til allra barna sem eiga túttubyssur að gefa ruslafötunni túttubyssurnar áður en eitthvert óhapp hendir. Pabbar og mömmur mega gjarnan hjálpa til við út- rýminguna á túttubyssunum. # Júving olíufélagið Frá því að okkar ástkæri Dall- asþáttur hvarf af skjánum á síðastliðnum vetri hafa sumir vart gengið heilir til skógar, enda hætti þátturinn á svo viðkvæmum tíma. Miss Ellý var að ná sér upp úr heilmiklu þunglyndi og menn horfðu fram á bjartari tíma. Þá var allt rifið frá manni og yfirvöld gáfu i skyn að við fengjum ekkert meira að sjá. Við yrð- um bara að fylgjast með i gegnum slúðurdálka Reykja- vfkurblaðanna, en þau hafa verið nokkuð iðin við að segja frá gangi mála á Sáðfork. Við höfum t.d. frétt að SuEllen hafi látið skrifa sig út úr þáttunum og hverfur hún að sjónarsviðinu á mjög svo hetjulegan hátt. Eldur kemur upp á búgarðinum og sú stutta gerir sér Iftið fyrir og bjargar JoðErrum í tveim- ur eintökum, en verður sjálf eldinum að bráð. Því er þetta rifjað upp hér, að nú geta landsmenn fengið Dallas- þætti á videóspólum í ákveðnu olíufélagi. Gárung- arnir margfrægu voru ekki lengi að skira viðkomandi olíufélag. Júving olfufélagið skal það heita. Videóeigend- ur hugsa hlýtt til vetrarins, að sjá litlu barbýdúkkurnar og fylgjast með viðburðarrfku Iffi þeirra.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.