Dagur - 29.08.1984, Síða 2
14 - DAGUR - 29. ágúst 1984
„KA á að geta unnið
Breiðablik og Fram“
- segir KA-maðurinn Eyjólfur Ágústsson
„Það sem mér hefur fyrst og
fremst þótt vanta í KA-liðið í
sumar er meira spil í kringum
miðjumennina. Þeir eru sterk-
ir og berjast vel, en mér finnst
þeir ekki nægilega beittir í spil-
inu,“ sagði Eyjólfur Ágústsson
er við ræddum við hann um
frammistöðu KA í 1. deildinni
í sumar og möguleika liðsins á
að halda sæti sínu í deildinni.
Eyjólfur hóf að leika með
meistaraflokki KA árið 1966.
Hann lék með ÍBA liðinu frá
1968 og þar til Þór og KA hófu að
senda lið sitt í hvoru lagi og hann
hætti ekki að leika með meistara-
flokki KA fyrr en 1982. Hann
hefur því langa reynslu að baki,
og er því dömbær á þá hluti sem
við ræðum við hann.
- Nú var KA að vinna útileik
um helgina, sigraði Þrótt 3:2 en
hafði tapað fyrir Þrótti heima-
leiknum. Þetta er ekkert eins-
dæmi að liðinu gangi betur á úti-
velli, hvað veldur?
„Þetta hefur verið vandamál,
og mér fannst heimavöllurinn
aldrei neinn heimavöllur þegar
ég var í þessu. Ég veit ekki hvað
veldur þessu. Það er að mínu
mati ekki hræðsla við áhorfend-
ur, heldur tel ég að líklegri skýr-
ing sé að á útivelli eru menn
hræddari og taka hugsanlega bet-
ur á. Þetta hefur li'ka komið í ljós
að ef það hefur vantað einn
eða tvo menn í liðið þá eru hinir
hræddir og berjast meira og
betur.“
- Þú talaðir um miðjuna og
spilið sem þar vantar sem aðal-
veikleika liðsins, í hverju liggur
þá helsti styrkleiki liðsins að þínu
mati?
„Ég veit varla. Erlingur er góð-
ur í vörninni og hún er mjög
þokkaleg þrátt fyrir mörg mörk í
sumar, það er góð barátta á miðj-
unni en mér finnst framlínu-
mennirnir ekki fá úr nógu að
moða. Steingrímur er t.d. búinn
að vera góður í sumar en hann
fær ekki nóg að gera. Það vantar
t.d. „stungur“ upp í hornin á
Steingrím eins og t.d. Elmar fékk
svo mikið af á sínum tíma, hann
kom boltanum fyrir og þetta
skapaði hættu. En ég held að það
sé ekki einn hlutur sem er helsti
styrkleiki KA, hugsanlega það
hversu jafnt liðið er.“
- Og hvernig líst þér á fram-
haldið?
„KA lagaði stöðu sína veru-
lega með sigri á Þrótti, og KA á
að geta unnið bæði Breiðablik og
Fram. Breiðablik hefur nú ekki
unnið nema einn leik á heima-
velli sínum og eru ekki sterkir, og
ég hef þá trú að KA geti unnið
þá og svo Fram hérna heima í síð-
asta leiknum. Það er auðvitað
slæmt að missa Erling í leikbann
í þessum leikjum, en hver veit
nema hinir tvíeflist þá eins og ég
var að tala um hér að framan.
Það er alveg bölvað að missa Erl-
ing en við verðum að vona að
það örvi hina.“
- Hverjir falla?
„Fram og Breiðablik. Ef við
vinnum þessi lið þá er farið að
þrengjast að þeim og ég trúi því
að þau falli.“
Eyjólfur Ágústsson.
Marki fagnað í sumar. Vonandi fagna Njáll og hans menn fleiri mörkum
áftur en yfir lýkur.
Flugleiðir fljúga 101 smm í viku
frá Reykjavík til ájunggstgða um aUt land[
Hornaípðut
Húsavft-
jcaBötður
3° stonU^\ v£
\\ svftuuU1
4 stnnuvo ^
4 smnaU''
1 smnum
15 srnrmro vlku
2 stnnurn r ^
*
2 stnnu'u v&u
NIOIUM-' ^ 3 síuuUíU / \n\ax \
Patreteíiörðut 5 srnnu®
Sauðártooku. l9 smnum v&u
Vestmannaeým 2 stnnuí'-- —rr
pjngeyrr .
__-—
FLUGLEIÐIR
Gott fólk hjá traustu félagi